Bændablaðið - 28.01.2021, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202124
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
Responsible Foods vinnur að þróun á skyrnasli:
Verður fyrsta matvara sinnar
tegundar í heiminum
– Matarfrumkvöðullinn kom frá Bandaríkjunum og varð agndofa yfir gæðum íslenskra matvæla
Einn matvælafrumkvöðlanna sem
starfa í húsi Íslenska sjávarklasans
við nýsköpun úr íslenskum mat
vælum er dr. Holly T. Kristinsson
matvæla og næringarfræðing
ur. Hún fluttist til Íslands frá
Kaliforníu í Bandaríkjunum árið
2015 og sá strax möguleikana
sem íslenskt hráefni hefur vegna
gæða þess og stofnaði fyrir tæki
sitt, Responsible Foods (RF),
árið 2019 í því skyni að framleiða
og markaðssetja íslenskt heils
unasl á erlendum mörkuðum.
Í úthlutun úr Matvælasjóði um
miðjan desem ber fékk RF styrk
til áframhaldandi þróunar á
skyrnasli, sem Holly telur að eigi
mikla möguleika í útlöndum.
Að sögn Holly ólst hún upp í
Alaska þar sem í boði var fyrsta
flokks sjávarfang og landbúnað-
arvörur eins og við eigum að venjast
á Íslandi. Þegar hún flutti til Flórída
15 ára gömul þá missti hún þessa
tengingu við hágæða hráefni unnin í
héraði en náði henni aftur þegar hún
flutti til Íslands í desember 2015. „Ég
var agndofa yfir íslenskum matvæl-
um og hráefni og eftir að hafa unnið
í ýmsum þróunar- og stjórnunarstöð-
um í stórum bandarískum matvæla-
og innihaldsefnafyrirtækjum sá ég
strax tækifæri til að koma íslenskum
hráefnum á erlendan markað á formi
sem hefur aldrei verið gert áður. Til
að ná þessu markmiði stofnaði ég
Responsible Foods árið 2019 með
það að markmiði að framleiða
einstakt heilsu nasl úr íslensku hrá-
efni. Styrkur frá Tækniþróunarsjóði
sama ár gaf mér tækifæri til að helga
mig þessu markmiði – og rúmlega
ári seinna var framleiðsla komin í
gang,“ segir Holly.
Skyrnaslið verður einstakt nasl á
heimsvísu
Það er ekki bara skyrnaslið sem RF
vinnur að, mörg járn eru í eldinum.
RF er með vörumerkið NæraTM,
sem það markaðssetur vörur sínar
undir. „RF hefur þróað einstakt
poppað ostanasl sem unnið er úr 100
prósent íslenskum osti sem það fær
frá Mjólkursamsölunni. Fyrirtækið
er einnig að þróa umbyltandi nasl úr
mismunandi sjávarfangi sem hefur
þann eiginleika að hafa allt góða
bragð fisksins en er alveg laust við
fiskilykt, sem opnar á alveg nýjan
hóp neytenda, sérstaklega á er-
lendum mörkuðum,“ segir Holly,
spurð um vörutegundirnar sem eru
á snærum Næra.
„Nokkrar mismunandi gerðir af
skyrnasli eru í þróun, sem verður
eina naslið sinnar tegundar í heimin-
um. Með tækninni sem Responsible
Foods notar og hugvitinu sem fyrir-
tækið hefur þróað er hægt að vinna
skyr í fast form til að búa til popp-
aða stökka skyrbita sem eru með
langt geymsluþol við stofuhita.
Gríðarlegur vöxtur hefur verið á
skyri á erlendum mörkuðum, en það
er allt á sama formi og þarfnast kæl-
ingar og er með stutt geymsluþol.
Skyrnaslið sem RF er að þróa
er algjör bylting því nú er hægt að
bjóða neytendum skyrið á hand-
hægu formi og engin kæling er
þörf og hægt er að geyma skyrið
við stofuhita í að minnsta kosti ár.
Þetta opnar marga nýja markaði og
útvíkkar neytendahóps skyrs,“ segir
Holly um þetta einstaka nasl.
Tvær starfsstöðvar
Sem fyrr segir er RF með aðsetur í
húsi Íslenska sjávarklasans á Granda
í Reykjavík og þar fer framleiðslan
líka fram á naslinu úr mjólkur-
vörum; ostinum og skyrinu. „RF
er svo að útvíkka starfsemi sína og
á von á á öðru tæki til landsins í
vor sem verður staðsett í glænýrri
vinnslu sem félagið er að setja upp
með Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga
og Loðnuvinnslunni á Fáskúðsfirði.
Fyrir austan verður lögð aðaláhersla
á vinnslu á nasli úr sjávarfangi sem
fyrirtækið fær spriklandi ferskt frá
Loðnuvinnslunni,“ segir Holly og
bætir við að þar verði áhersla lögð
á nýtingu aukaafurða eins og af-
skurðar og uppsjávarfisks.
Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa
fjárfest í félaginu sem nýlega lauk
fyrstu fjármögnun. Holly segir að
í þeim hópi séu Mjólkursamsalan,
Lýsi, Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga,
Ó. Johnson & Kaaber, en einnig
komi margir sterkir einkafjárfestar
að félaginu. Holly stýrir félaginu
ásamt eiginmanni sínum, dr. Herði G.
Kristinssyni, en bæði eru þau mennt-
aðir matvælafræðingar og unnu áður
hjá Matís í fjölmörg ár og þar áður í
Bandaríkjunum.
Hún segir að aðalmarkmið RF sé
að koma íslenskum hágæðavörum
á markað erlendis, en einnig verða
þær í boði fyrir íslenska neytend-
ur. „Áherslan er lögð á Norður-
Ameríku, þar sem mikil eftirspurn
er eftir vörum eins og þeim sem
RF er að þróa og framleiða. Ég hef
einnig mikla reynslu á þeim markaði.
Mikill áhugi er einnig á vörunum í
Asíu og Evrópu. Þessa stundina er
RF að undirbúa sína fyrstu pöntun
fyrir erlendan markað.“
Vörur frá Næra eru nýkomnar
á markað á Íslandi
Næra vörur komu fyrst á markað á
Íslandi í lok nóvember 2020 og fást
um allt land; meðal annars í Nettó,
Hagkaup og ýmsum smærri versl-
unum. Holly segir að á markaði séu
fjórar gerðir af poppuðu ostanasli úr
Gouda-, Cheddar- og Óðalsosti en
einnig Prótein-ostanasl með sýrðum
rjóma og lauk. „Ostanaslið er mjög
próteinríkt og hentar því einstaklega
vel fyrir fólk sem er á ketó-mataræði,
en einnig fyrir alla sem vilja hollt
og gott millimál. Það er líka frábært
að nota poppuðu ostabitana í salöt
og súpur. Einnig er á markaðnum
bragðgott skyrnasl með þremur
bragðtegundum, sem er próteinríkt
og er sérstaklega þróað með íslenska
neytendur í huga. Margar af Næra
vörunum eru án laktósa og allar
vörurnar eru án glútens og lausar
við hnetur.“
Styrkurinn frá Matvælasjóði er að
sögn Holly til að styðja við þá miklu
rannsóknar- og þróunarvinnu sem
er í gangi hjá RF á skyrnaslinu. „Í
verkefninu verða þróaðar fjölmargar
hollar naslvörur úr mismunandi
íslensku skyri ásamt ýmsum íslensk-
um innihaldsefnum. Áhersla er lögð
á erlenda markaði og að uppfylla
ýmsar kröfur sem þeir markaðir hafa
umfram Ísland og að vörurnar falli
að smekk erlendra neytenda. Sem
dæmi er verið að þróa leiðir til að
koma Ómega-3 fitusýrum í vörurnar
frá Lýsi, með erlenda neytendur sem
markhóp. Í aðeins nokkrum munnbit-
um verður því hægt að fá dagskammt
Omega-3 fitusýra á nýju bragðgóðu
handhægu formi og á sama tíma fá
alla hollustuna úr íslenska skyrinu.“
Einstök tækni við
þurrkun á hráefninu
„Tæknin sem RF notar er
einkaleyfavarin tækni sem kemur
frá fyrirtæki í Kanada og er einstök
í heiminum,“ segir Holly þegar hún
er beðin um að útskýra tæknina við
þurrkunina á skyrinu. „RF er með
einkaréttinn á að nota þessa tækni
á Íslandi og er einnig með heims-
einkarétt á lykilvörum félagsins.
Vinnslan byggir þó ekki eingöngu
á þessari tækni, heldur líka hugverk-
um sem RF hefur þróað og íslenska
hráefninu sem er um margt einstakt
miðað við sambærileg hráefni
erlendis. Kjarni framleiðslunnar er
þurrktækni sem hefur þann eigin-
leika að þurrka hráefnið á örskömm-
um tíma miðað við aðrar aðferðir
en einnig undir lofttæmi þannig
að lokaafurðirnar fá skemmtilega
poppaða áferð. Þurrkunin er svo
mild og hröð að næringargildi hrá-
efnanna varðveitist, ásamt bragði,
og engin þörf er á að kæla vörurnar
sem hafa mjög langt geymsluþol.“
Holly nefnir sérstaklega að styrk-
ir á borð við þann sem þau fengu úr
Matvælasjóði séu afar mikilvægir
fyrir nýsköpunarfyrirtæki eins og
þeirra. „Við erum gríðarlega þakklát
fyrir stuðninginn frá Matvælasjóði,
sem og Tækniþróunarsjóði, Fram-
leiðnisjóði og Nýsköpunarsjóði
námsmanna. Styrkir frá sjóðum
eins og þessum eru algjört lykilat-
riði fyrir fyrirtækið að halda þróun
áfram og koma vörum á markað og
þannig skapa störf og verðmæti fyrir
Ísland.
Við erum líka að þróa ýmsar
aðrar vörur eins og er sem innihalda
fleiri íslensk innihaldsefni og hrá-
efni frá mismunandi aðilum.“
/smh
Hluti af vörulínu Næra.
Holly T. Kristinsson á og rekur Responsible
Foods ásamt manni sínum, Herði G. Kristins-
syni. Nokkrar vörutegundir eru þegar komn-
ar á markað og fleiri á leiðinni. Cheddar-Ostanasl frá Næra.
Skyrnasl.