Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 24

Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202124 MATVÆLI&MARKAÐSMÁL Responsible Foods vinnur að þróun á skyrnasli: Verður fyrsta matvara sinnar tegundar í heiminum – Matarfrumkvöðullinn kom frá Bandaríkjunum og varð agndofa yfir gæðum íslenskra matvæla Einn matvælafrumkvöðlanna sem starfa í húsi Íslenska sjávarklasans við nýsköpun úr íslenskum mat ­ vælum er dr. Holly T. Kristinsson matvæla­ og næringarfræðing­ ur. Hún fluttist til Íslands frá Kaliforníu í Bandaríkjunum árið 2015 og sá strax möguleikana sem íslenskt hráefni hefur vegna gæða þess og stofnaði fyrir tæki sitt, Responsible Foods (RF), árið 2019 í því skyni að framleiða og markaðssetja íslenskt heils­ unasl á erlendum mörkuðum. Í úthlutun úr Matvælasjóði um miðjan desem ber fékk RF styrk til áframhaldandi þróunar á skyrnasli, sem Holly telur að eigi mikla möguleika í útlöndum. Að sögn Holly ólst hún upp í Alaska þar sem í boði var fyrsta flokks sjávarfang og landbúnað- arvörur eins og við eigum að venjast á Íslandi. Þegar hún flutti til Flórída 15 ára gömul þá missti hún þessa tengingu við hágæða hráefni unnin í héraði en náði henni aftur þegar hún flutti til Íslands í desember 2015. „Ég var agndofa yfir íslenskum matvæl- um og hráefni og eftir að hafa unnið í ýmsum þróunar- og stjórnunarstöð- um í stórum bandarískum matvæla- og innihaldsefnafyrirtækjum sá ég strax tækifæri til að koma íslenskum hráefnum á erlendan markað á formi sem hefur aldrei verið gert áður. Til að ná þessu markmiði stofnaði ég Responsible Foods árið 2019 með það að markmiði að framleiða einstakt heilsu nasl úr íslensku hrá- efni. Styrkur frá Tækniþróunarsjóði sama ár gaf mér tækifæri til að helga mig þessu markmiði – og rúmlega ári seinna var framleiðsla komin í gang,“ segir Holly. Skyrnaslið verður einstakt nasl á heimsvísu Það er ekki bara skyrnaslið sem RF vinnur að, mörg járn eru í eldinum. RF er með vörumerkið NæraTM, sem það markaðssetur vörur sínar undir. „RF hefur þróað einstakt poppað ostanasl sem unnið er úr 100 prósent íslenskum osti sem það fær frá Mjólkursamsölunni. Fyrirtækið er einnig að þróa umbyltandi nasl úr mismunandi sjávarfangi sem hefur þann eiginleika að hafa allt góða bragð fisksins en er alveg laust við fiskilykt, sem opnar á alveg nýjan hóp neytenda, sérstaklega á er- lendum mörkuðum,“ segir Holly, spurð um vörutegundirnar sem eru á snærum Næra. „Nokkrar mismunandi gerðir af skyrnasli eru í þróun, sem verður eina naslið sinnar tegundar í heimin- um. Með tækninni sem Responsible Foods notar og hugvitinu sem fyrir- tækið hefur þróað er hægt að vinna skyr í fast form til að búa til popp- aða stökka skyrbita sem eru með langt geymsluþol við stofuhita. Gríðarlegur vöxtur hefur verið á skyri á erlendum mörkuðum, en það er allt á sama formi og þarfnast kæl- ingar og er með stutt geymsluþol. Skyrnaslið sem RF er að þróa er algjör bylting því nú er hægt að bjóða neytendum skyrið á hand- hægu formi og engin kæling er þörf og hægt er að geyma skyrið við stofuhita í að minnsta kosti ár. Þetta opnar marga nýja markaði og útvíkkar neytendahóps skyrs,“ segir Holly um þetta einstaka nasl. Tvær starfsstöðvar Sem fyrr segir er RF með aðsetur í húsi Íslenska sjávarklasans á Granda í Reykjavík og þar fer framleiðslan líka fram á naslinu úr mjólkur- vörum; ostinum og skyrinu. „RF er svo að útvíkka starfsemi sína og á von á á öðru tæki til landsins í vor sem verður staðsett í glænýrri vinnslu sem félagið er að setja upp með Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga og Loðnuvinnslunni á Fáskúðsfirði. Fyrir austan verður lögð aðaláhersla á vinnslu á nasli úr sjávarfangi sem fyrirtækið fær spriklandi ferskt frá Loðnuvinnslunni,“ segir Holly og bætir við að þar verði áhersla lögð á nýtingu aukaafurða eins og af- skurðar og uppsjávarfisks. Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa fjárfest í félaginu sem nýlega lauk fyrstu fjármögnun. Holly segir að í þeim hópi séu Mjólkursamsalan, Lýsi, Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, Ó. Johnson & Kaaber, en einnig komi margir sterkir einkafjárfestar að félaginu. Holly stýrir félaginu ásamt eiginmanni sínum, dr. Herði G. Kristinssyni, en bæði eru þau mennt- aðir matvælafræðingar og unnu áður hjá Matís í fjölmörg ár og þar áður í Bandaríkjunum. Hún segir að aðalmarkmið RF sé að koma íslenskum hágæðavörum á markað erlendis, en einnig verða þær í boði fyrir íslenska neytend- ur. „Áherslan er lögð á Norður- Ameríku, þar sem mikil eftirspurn er eftir vörum eins og þeim sem RF er að þróa og framleiða. Ég hef einnig mikla reynslu á þeim markaði. Mikill áhugi er einnig á vörunum í Asíu og Evrópu. Þessa stundina er RF að undirbúa sína fyrstu pöntun fyrir erlendan markað.“ Vörur frá Næra eru nýkomnar á markað á Íslandi Næra vörur komu fyrst á markað á Íslandi í lok nóvember 2020 og fást um allt land; meðal annars í Nettó, Hagkaup og ýmsum smærri versl- unum. Holly segir að á markaði séu fjórar gerðir af poppuðu ostanasli úr Gouda-, Cheddar- og Óðalsosti en einnig Prótein-ostanasl með sýrðum rjóma og lauk. „Ostanaslið er mjög próteinríkt og hentar því einstaklega vel fyrir fólk sem er á ketó-mataræði, en einnig fyrir alla sem vilja hollt og gott millimál. Það er líka frábært að nota poppuðu ostabitana í salöt og súpur. Einnig er á markaðnum bragðgott skyrnasl með þremur bragðtegundum, sem er próteinríkt og er sérstaklega þróað með íslenska neytendur í huga. Margar af Næra vörunum eru án laktósa og allar vörurnar eru án glútens og lausar við hnetur.“ Styrkurinn frá Matvælasjóði er að sögn Holly til að styðja við þá miklu rannsóknar- og þróunarvinnu sem er í gangi hjá RF á skyrnaslinu. „Í verkefninu verða þróaðar fjölmargar hollar naslvörur úr mismunandi íslensku skyri ásamt ýmsum íslensk- um innihaldsefnum. Áhersla er lögð á erlenda markaði og að uppfylla ýmsar kröfur sem þeir markaðir hafa umfram Ísland og að vörurnar falli að smekk erlendra neytenda. Sem dæmi er verið að þróa leiðir til að koma Ómega-3 fitusýrum í vörurnar frá Lýsi, með erlenda neytendur sem markhóp. Í aðeins nokkrum munnbit- um verður því hægt að fá dagskammt Omega-3 fitusýra á nýju bragðgóðu handhægu formi og á sama tíma fá alla hollustuna úr íslenska skyrinu.“ Einstök tækni við þurrkun á hráefninu „Tæknin sem RF notar er einkaleyfavarin tækni sem kemur frá fyrirtæki í Kanada og er einstök í heiminum,“ segir Holly þegar hún er beðin um að útskýra tæknina við þurrkunina á skyrinu. „RF er með einkaréttinn á að nota þessa tækni á Íslandi og er einnig með heims- einkarétt á lykilvörum félagsins. Vinnslan byggir þó ekki eingöngu á þessari tækni, heldur líka hugverk- um sem RF hefur þróað og íslenska hráefninu sem er um margt einstakt miðað við sambærileg hráefni erlendis. Kjarni framleiðslunnar er þurrktækni sem hefur þann eigin- leika að þurrka hráefnið á örskömm- um tíma miðað við aðrar aðferðir en einnig undir lofttæmi þannig að lokaafurðirnar fá skemmtilega poppaða áferð. Þurrkunin er svo mild og hröð að næringargildi hrá- efnanna varðveitist, ásamt bragði, og engin þörf er á að kæla vörurnar sem hafa mjög langt geymsluþol.“ Holly nefnir sérstaklega að styrk- ir á borð við þann sem þau fengu úr Matvælasjóði séu afar mikilvægir fyrir nýsköpunarfyrirtæki eins og þeirra. „Við erum gríðarlega þakklát fyrir stuðninginn frá Matvælasjóði, sem og Tækniþróunarsjóði, Fram- leiðnisjóði og Nýsköpunarsjóði námsmanna. Styrkir frá sjóðum eins og þessum eru algjört lykilat- riði fyrir fyrirtækið að halda þróun áfram og koma vörum á markað og þannig skapa störf og verðmæti fyrir Ísland. Við erum líka að þróa ýmsar aðrar vörur eins og er sem innihalda fleiri íslensk innihaldsefni og hrá- efni frá mismunandi aðilum.“ /smh Hluti af vörulínu Næra. Holly T. Kristinsson á og rekur Responsible Foods ásamt manni sínum, Herði G. Kristins- syni. Nokkrar vörutegundir eru þegar komn- ar á markað og fleiri á leiðinni. Cheddar-Ostanasl frá Næra. Skyrnasl.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.