Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202128
LÍF&STARF
Sigurður Halldórsson, stofnandi
og framkvæmdastjóri plastendur
vinnslunnar Pure North Recycling
í Hveragerði, segir íslenskan
landbúnað nú vera í kjörstöðu með
að ná endurnýtingu á öllu plasti
sem til fellur í greininni. Þannig
geti okkar landbúnaður orðið til
fyrirmyndar með einstakri stöðu
á heimsvísu.
„Til mikils er að vinna því um
2.000 tonn af heyrúlluplasti fellur
til í íslenskum landbúnaði á hverju
ári og við viljum aðstoða bændur við
að skila því í endurvinnslu.“
Íslenskur landbúnaður verði
sjálfbær í plastnotkun
„Við erum búin að þróa nýjar
aðferðir til að endurvinna þetta
plast og getum nú auðveldlega
ráðið við það verkefni. Þetta er mjög
spennandi því við erum nú í aðstöðu
til að tryggja í góðri samvinnu við
bændur, að landbúnaður á Íslandi
verði fyrsti landbúnaðargeirinn
í heiminum sem verður sjálfbær
hvað varðar notkun á plasti,“ segir
Sigurður.
Geta tekið við allt að
200 tonnum á mánuði
„Fyrirtækið gengur mjög vel og við
erum nú komin á fullt skrið með
endurvinnslu á rúllubaggaplasti frá
bændum. Við getum tekið á móti
um 150 til 200 tonnum af rúlluplasti
til vinnslu á mánuði og nú vantar
okkur einungis mun meira hráefni
til vinnslu. Síðan erum við búin
að ganga frá samningum við aðila
sem vinna úr hráefninu sem við
framleiðum úr rúlluplastinu og öðru
plasti sem til fellur.“
Biðla til bænda um skil á
rúllubaggaplasti
Sigurður segir að Pure North
Recycling biðli nú til bænda um að
skila rúlluplastinu til sín í endur-
vinnslu. Þá sé æskilegt að bændur
flokki í sundur hvítt og mislitt
plast, því hráefnið úr hvíta plastinu
er verðmeira í endursölu. Þá er líka
æskilegt að bændur skili plastinu
í þessum tveimur flokkum sæmi-
lega hreinu, það spari mikla vinnu
í vinnsluferlinu og geri afurðina
verðmætari.
Vottun skilað fyrir
fækkun kolefnisspora
Sigurður segir að í undirbúningi sé
samningur við Bændasamtök Íslands
um skil á plasti sem til fellur í ís-
lenskum landbúnaði. Þar sé ekkert
því til fyrirstöðu að plast sé uppruna-
merkt þeim bæ sem skilar því inn og
á móti skili Pure North Recycling
viðkomandi bæ vottun um frá-
dráttarbært kolefnisspor fyrir hvert
tonn sem skilað er. Jafnframt verði
spennandi að fylgjast með þeim ár-
angri sem atvinnugreinin nái sem
heild í lækkun kolefnisspors með
skilum á plastinu.
Hann telur borðleggjandi að sams
konar samningar verði gerðir við
sveitarfélög í landinu um skil á plasti
til endurvinnslu.
Til að auðvelda bændum skil á
plasti hefur Pure North Recycling
unnið að því að finna lausnir til
að gera flokkun á hverjum stað
auðveldari og jafnframt valkosti
í leiðum til flutnings á plastinu til
Hveragerðis. Þá hefur fyrirtækið
einnig verið að leita eftir notuðum
fiskikörum til að útvega bændum til
að safna plastinu í. Þá er Pure North
Recycling með til sölu litlar pressur
sem bændur geta keypt til að bagga
plast og minnka þar með umfang
þess verulega. Þessar pressur má líka
nota til að bagga ýmis önnur efni,
t.d. ull eða pappír.
Sigurður leggur því áherslu á að
sem flestar leiðir standi opnar fyrir
bændur til að skila frá sér plastinu í
endurvinnslu.
Plast er frábært efni svo lengi
sem það er meðhöndlað rétt
Hann segir að viðhorf séu smám
saman að breytast gagnvart plastinu
og fólk að hverfa frá þeirri grjóthörðu
neikvæðu andstöðu sem verið hefur.
Plast sé frábært efni til ýmissa nota
sem nútíma þjóðfélag komist vart
hjá að nýta sér. Hins vegar þurfi fólk
að vera meðvitaðra til hvaða hluta
plastið er notað og hvernig það er
meðhöndlað þegar það nýtist ekki
lengur. Þá sé mikilvægt að safna öllu
ónýttu plasti saman og koma því í
endurvinnslu svo það fari ekki út
í náttúruna. Telur Sigurður að þar
geti bændur spilað stórt hlutverk sem
leitt geti til bættrar ímyndar fyrir
íslenskan landbúnað, bæði hvað
varðar meðhöndlun á plasti og við
að draga úr kolefnisspori vegna
plastnotkunar.
„Í dag er enn verulegur hluti af
plasti frá landbúnaði flutt utan til
vinnslu eða brennslu í sorporku-
stöðvum. Þess má einnig geta að
því miður hefur urðun á rúlluplasti
aukist á s.l. árum. Þetta er þróun sem
við verðum að snúa við.“
„Umhverfisvænsta plast í heimi“
„Við getum tryggt að allt það plast
sem notað er í landbúnaði verði
endurunnið hér á landi og lækkað
kolefnisspor þess að sama skapi.
Allt það plast sem notað verður í
landbúnaði á Íslandi yrði þannig
umhverfisvænsta plast í heimi
og höfum við þegar látið gera
lífsferilsgreiningu á þessu ferli. Það
er því til mikils að vinna fyrir ásýnd
landbúnaðarins og þau markmið sem
búið er að setja í loftslagsmálum.“
Lykillinn að minnkun
kolefnisspors felst í
vinnsluaðferðinni
Sigurður segir að lykillinn að
80% minnkun kolefnisspors á
plastinu sem hjá þeim er unnið
felist í framleiðsluferli Pure North
Recycling með nýtingu á jarðvarma,
hreinu vatni og grænni raforku
frá vatnsorkuverum. Sambærileg
endurvinnslufyrirtæki úti í Evrópu
og í öðrum löndum sem tekið hafa
við úrgangsplasti frá Íslandi búi
ekki svo vel. Víðast erlendis er
raf- og hitaorka sem til þarf við
endurvinnslu á plasti framleidd
með kolum og eða olíu sem eykur
á kolefnissporið en minnkar það
ekki. Það skapar einstakt tækifæri
á Íslandi.
Plastmengun er farin að hafa
áhrif á vistkerfið í heild og
ekki síst vistkerfi hafsins.
Íslendingar eiga mikið undir í
sjávarútvegi og ferðaþjónustu
með ósnortna náttúru í for
grunni og nú ógnar þessi þróun
afkomu okkar og velferð.
Starfsemi Pure North fellur
vel að aðgerðaráætlun ríkis-
stjórnarinnar í loftslagsmálum
sem og aðgerðaráætlun í mál-
efnum plasts. Plast á að verða
aftur plast og fyrir hvert tonn sem
endurunnið er af plasti sparast 1,8
tonn af olíu.
Í lífferlisgreiningu sem unnin
var fyrir Pure North Recycling er
gerður samanburður á vinnslu-
aðferðum Pure North Recycling
við endurvinnslu annars staðar í
Evrópu og í Asíu. Í þeim niður-
stöðum kemur fram að lægstu
umhverfisáhrifin eru á endur-
vinnslu Pure North Re cycling á
Íslandi. Umhverfis áhrifin eru þar
lægst í 13 af 14 áhrifaflokkum
sem mæld eru er varðar um -
hverfis áhrif. Samkvæmt þess-
um niðurstöðum hefur orðið
koltvíoxíðs sparnaður af vinnslu
Pure North Recycling upp á 1,52
tonn af CO2 ígildum á hvert tonn
af plasti.
Endurvinnslan hjá Pure North Recycling:
Hvert tonn af plasti sparar um 1,8
tonn af olíu og 1,52 tonn af CO2
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Plastendurvinnslan Pure North Recycling í Hveragerði kallar eftir samstarfi við bændur:
Íslenskur landbúnaður sagður í kjörstöðu til að
endurvinna plast sem til fellur í greininni
– Gæti um leið lækkað kolefnisspor vegna plastnotkunar umtalsvert
Svona verður fyrrverandi mislitt rúllubaggaplast af túnum bænda þegar það hefur farið í gegnum vinnsluferli Pure
North Recycling og er orðið að hráefni í nýtt rúllubaggaplast eða aðrar iðnvörur.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, sem stýrir viðskiptum og þróun hjá Pure North Recycling í Hveragerði og Sigurður Hall-
dórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Myndir / HKr.
Harðplastbrettin verða líka að kurli sem nota má til að framleiða nýjar vörur.