Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 34

Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202134 Útvarp rauf einangrun í sveitum landsins þegar RÚV hóf útsendingar 1930 Nú um þessar mundir er Ríkis­ útvarpið 90 ára. Hinn 21. desem­ ber 1930 var fyrsta formlega útsend ingin þegar sendistöðin á Vatnsendahæð ofan Reykjavíkur var tilbúin. Otto B. Arnar loft­ skeytafræðingur hafði reynt að reka útvarpsstöð frá 1926 til 1928 en varð að hætta vegna fjárskorts. Innflutningur á viðtækjum var ekki mikill enda kostaði útvarp á bilinu 260 til 550 krónur á meðan verkamannalaun voru ekki nema 1 kr. á tímann og bændur fengu 40 til 80 aura fyrir eitt kíló af nautakjöti. Það hefði því tekið verkamann frá einum og hálfum mánuði til þriggja mánaða að vinna fyrir einu útvarps­ tæki og bóndinn hefur þurft að selja rúmlega hálft tonn af kjöti. Eftir stofnun RÚV var sett á laggirnar viðtækjasmiðja til að mæta þörfum landsmanna svo ná mætti sendingum útvarpsins. Fyrst voru framleidd mjög ódýr einföld tæki sem náðu aðeins sendingum RÚV í Reykjavík og nágrenni. Fæstir sveitabæir höfðu rafmagn og því voru tækin drifin áfram af rafhlöðum sem hægt var að hlaða. Viðtækjastofa Ríkisútvarpsins var með sérstaka þjónustu til að hlaða rafgeymana. Einnig voru einstaka sveitabæir með vindmyllur á þeim tíma. Menn fóru jafnvel fótgangandi dagleið með rafgeymi á bakinu til að fá hann hlaðinn. Einn var þó hugvitsmaðurinn, Pétur Símonarson í Vatnskoti í Þingvallasveit, sem útbjó dínamótor á reiðhjól. Hjólið var fest á grind og lét hann bændur snúa hjólinu þar til geymirinn var hlaðinn. Það gat tekið allt upp í þrjá tíma. Fyrstu útvörpin sem smíðuð voru höfðu tvo lampa og aðeins fyrir heyrnartól sem einn gat hlust­ að á í einu. Fljótlega var bætt við einum lampa í viðbót til að drífa hátalara. Þessi fyrsta útgáfa náði ekki sendingum RÚV til dæmis á Vestfjörðum. Þá var bætt við einum lampa í viðbót sem gerði tækið næmara. Til að auðkenna tækin var fyrsta gerðin skýrð SUÐRI og næsta gerð fékk nafnið Vestri. Mest var fram­ leitt af þeirri gerð. Árið 1938 var búið að framleiða 550 tæki og 200 fyrir skip, en þau tæki voru í málm­ kassa á meðan hin voru í trékössum. Eftirspurnin var mikil en erfitt var að fá íhluti í smíðina þegar nær dró stríðsbyrjun sem hamlaði fram­ leiðslunni. Þá var brugðið á það ráð að fá íhluti frá Ameríku og því eru tækin eftir það blönduð evrópskum og amerískum íhlutum. Að jafnaði unnu 3–5 menn að þessari smíði. Viðtækjasmiðjan hætti störfum 1949. Á Austfjörðum var erfitt að nota Vestra því þar voru sendingar erlendra útvarpsstöðva mjög sterkar og því var brugðið á það ráð að smíða vandaðri tæki sem gátu frekar einangrað sendingar RÚV frá þeim erlendu. Sú útgáfa fékk heitið AUSTRI. Þau tæki voru framleidd að mestu eftir pöntunum. Áfram var smíðin þróuð eftir því sem á leið. Smíðuð voru sér­ stök lítil tæki sem fengu heitið SUMRI og var ætlað fyrir sum­ arhús í nágrenni Reykjavíkur. Svo kom vandað þriggja lampa tæki sem heitir SINDRI. Það var með stærri hátalara og hljómbetra. Auglýsing í blaðinu „Útvarps­ tíðindi“ í ferbrúar 1947 er svohljóð­ andi: Viðtækjasmiðja Ríkisútvarpsins smíðar eftir pöntun eftirfarandi gerðir af viðtækjum: Þriggja lampa tækið „Sindri“, fyrir 6. 12 og 32 volta rafgeyma- spennu. Sparneytið og traust viðtæki sem gefur góð tóngæði. Þriggja lampa tækið „Suðri“ fyrir þurrrafhlöður með spari- stilli sem gefur 30% möguleika á sparnaði rafhlöðunnar. Fjögra lampa súper viðtækið „Austri“ fyrir 6, 12 og 32 volta rafgeyma- spennu. Á fyrstu árum útvarpsins var sérstaklega tekið fram þegar innflutt tæki voru auglýst að lampar fylgdu með ásamt hátalara, sem hét „GELLIR“ í þá daga. Sendistöðin á Vatnsenda var stækkuð 1938 úr 16 kw. í 100 kw. Það breytti miklu fyrir afskekkta sveitabæi á landinu. Þrátt fyrir að erlendum útvarpsstöðvum fjölgaði eftir stríð með auknum sendistyrk nýttust þessi einföldu útvarpstæki ágætlega, sérstaklega inn til sveita. Ég veit dæmi þess að svona tæki var í notkun til ársins 1955 á sveitabæ í Húnavatnssýslu. Öll þessi tæki, hvort sem þau voru innflutt eða heimasmíðuð, þurftu loftnet sem var langur vír ýmist milli húsa eða frá húsi í staur skammt frá. Í einstaka tilfellum stálust bændur til að nota aðra símalínuna sem lá að bænum fyrir loftnet. Ein gerðin af VESTRA er einmitt með þéttum í seríu við loftnetsinntakið sem hefur verið bætt við til að deyfa ekki sambandið á símalínunni. Eins og oft gerist henda menn hlutum þegar notkun er hætt og því er lítið til af þessum heimasmíðuðu útvarpsviðtækjum. Nokkur tæki eru þó til af VESTRA og SUÐRA ásamt örfáum skipatækjum á söfnum. Undirritaður er að kanna hvort einhver veit um AUSTRA, því það tæki virðist hvergi vera til á söfnum svo vitað sé. Auðvelt er að þekkja þessi íslensku tæki frá innfluttum þar sem aðeins voru þrír takkar framan á þeim eins og myndirnar sýna og ekki gler með stöðvarheitum. Einnig er nafn tækisins á bakinu eða miði á botninum merktum Viðtækjaverslun ríkisins. Ef einhver veit um svona tæki, Suðra, Vestra eða Austra væri undirritaður þakklátur að fá vitn­ eskju af því, þótt ekki væri nema til að skoða og taka myndir af tækinu. Sigurður Harðarson rafeindavirki Sími 892-5900 Netfang: siggiradio@gmail.com TÆKNI&MENNING E f einhver veit um svona tæki, Suðra, Vestra eða Austra, væri undirritaður þakklátur að fá vitneskju af því, þótt ekki væri nema til að skoða og taka myndir af tækinu. Sigurður Harðarson. Útvarpstækið AUSTRI sem Viðtækjastofa Ríkisútvarpsins framleiddi á fyrstu árum útvarpsreksturs Íslendinga og var sérhannað til að ná útvarpssendingum RÚV á Austurlandi. SUÐRI var fyrsta gerð útvarpstækja sem Viðtækjastofa Ríkisútvarpsins framleiddi á fjórða áratug síðustu aldar. Útvarpstækið VESTRI var annað í röðinni í framleiðslulínu Viðtækjastofu Ríkisútvarpsins. Mest var framleitt af þeirri gerð. Árið 1938 var búið að framleiða 550 VESTRA-tæki. Útvarpstækið VESTRI var líka framleitt fyrir skip og voru smíðuð 200 slík tæki. Þau tæki voru í málmkassa á meðan hin voru í trékössum. Bakhliðin á útvarpstækinu VESTRA. Merkimiði af botni útvarpstækis. Þessi miði er frá viðgerðarstofu útvarpsins og dagsettur 10. febrúar árið 1949. Bænda bbl.is Facebook HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.