Bændablaðið - 28.01.2021, Page 39

Bændablaðið - 28.01.2021, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 39 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Afkvæmarannsóknir í sauðfjárrækt árið 2020 Ein besta leiðin til að meta gæði veturgömlu hrútanna er að prófa þá á skipulagðan hátt. Vel fram­ kvæmd afkvæmarannsókn ætti því að vera fastur póstur í starf­ semi allra sauðfjárbúa sem vilja ná auknum árangri. Í þessum greinarstúfi verður farið nokkrum orðum um afkvæmarannsókn­ ir á vegum bænda framleiðslu­ árið 2020 en niðurstöður ásamt um fjöll unum eru nú aðgengilegar á heimasíðu RML. Haustið 2020 voru 77 sauð­ fjárbú sem uppfylltu skilyrði um styrk hæfar afkvæmarannsóknir, en verkefnið er styrkt af þróunarsjóði sauðfjárræktarinnar. Afkvæma­ hóparnir voru 777 og þar af voru veturgamlir hrútar í prófunum 481. Þátttakendur eru heldur fleiri en árið 2019 en þá voru þátttökubúin 72. Vissulega eru mun fleiri sem prófa lambhrútana með einhverjum hætti en hér er aðeins fjallað um afkvæmarannsóknir sem uppfylla ákveðin skilyrði. Bændum hafa staðið til boða styrkir út á hvern veturgamlan hrút sem er í samanburðinum. Helstu kröfur eru þær að a.m.k. 5 hrútar séu í samanburði og þar af a.m.k. 4 veturgamlir. Þeir þurfa að eiga 8 eða fleiri ómmæld afkvæmi og 15 eða fleiri afkvæmi með kjötmats­ upplýsingar. Síðan eru menn hvattir til að framkvæma samanburðinn á þann hátt að niðurstöður afkvæma­ hópanna séu sem allra best sam­ anburðarhæfar. Tilgangurinn með þessari vinnu er að hvetja bændur til að prófa lambhrúta á skipulagð­ an hátt og stuðla að framförum í stofninum fyrir bættum skrokk­ gæðum. Um niðurstöður Heildareinkunn úr afkvæma rann­ sóknunum byggir á þrem þáttum sem allir hafa jafnt vægi. Það er einkunn fyrir kjötmatsniðurstöður (gerð og fita), einkunn fyrir fall­ þunga og einkunn úr líflamba­ skoðun. Líflambaskoðunin bætir við mikil vægum upplýsingum m.a. um verðmæ tasta skrokkhlutann sem er bakvöðvinn. Heildareinkunnin gefur síðan til kynna hversu mikla yfir­ burði hver hrútur sýnir í samanburði innan búsins. Erfitt er því að bera þessar einkunnir saman milli búa. Synir sæðingastöðvahrútanna Í þessum uppgjörum eru margir synir stöðvahrútanna áberandi. Klettur 13­ 962 frá Borgarfelli, Mávur 15­990 frá Mávahlíð og Fáfnir 16­995 frá Mýrum 2 eiga flesta syni, 23 til 24. Með 10 til 20 syni eru Dreki 13­953, Durtur 16­994, Drjúgur 17­808, Reykur 14­812, Ebiti 13­971, Spakur 14­801, Dúlli 17­813 og Guðni 17­ 814. Af þessum ofantöldu hrútum er meðaleinkunn Durtssonanna hæst en synir Durts skipa sér víða í fremstu röð sem lambafeður. Af einstökum gripum Í töflu 1 má sjá yfirlit yfir þá hrúta sem ná 120 stigum eða fleirum í heildareinkunn. Sá hrútur sem mesta yfirburði sýnir í þessum uppgjörum er ónefndur gripur frá Svarfhóli í Laxárdal nr. 18­502. Á Svarfhóli var jafnframt umfangsmesta afkvæma­ rannsókn haustsins en þar voru 35 hrútar í samanburði enda um að ræða eitt af stærstu sauðfjárbúum landsins. Þessi hrútur er aðkeyptur frá Broddanesi, sonur Svala 14­071 og dóttursonur Djákna 13­065. Því miður er þessi öflugi lambafaðir fallinn. Sá hrútur sem gerir næstmest útslag í heildareinkunn afkvæma­ rannsókna og með hæstu einkunn úr kjötmatshlutanum þetta árið er Suddi 17­120 frá Skarðaborg. Suddi er gamalreyndur kappi sem hefur á síðustu árum verið alveg í sérflokki á búinu sem lambafaðir og gerir úts­ lag bæði í mati á lifandi gimbrum og í flokkun sláturlamba. Suddi er kominn af sterkum meiði í Skarðborg og tiltölulega fjarskyldur sæðinga­ stöðvahrútunum. Þriðji hrúturinn á listanum er einnig gömul kempa en það er Svartur 17­372 frá Hvammi í Lóni. Svartur er sonur Kletts 13­962 frá Borgarfelli sem gerir því Svart athyglisverðan sem alhliða kynbóta­ grip, en Klettur var eitilmagnaður ærfaðir. Í næstu tvö sæti raða sér hrútar úr afkvæmarannsókn í Forsæludal í Vatnsdal, þeir Glókollur 19­372 og Skuggi 19­373. Báðir þessir hrútar eru aðkeyptir frá Ingu Ragnheiði á Svínafelli 3 í Öræfum. Glókollur er sonarsonur Ebita 13­971 frá Melum og dóttursonur Fannars 14­972 frá Heydalsá. Skuggi er hins vegar af hyrndu fé og stendur Hvati 13­926 frá Hesti honum næstur af stöðva­ hrútum. Ef horft er til niðurstaðna mæl­ inga eða mats á einstökum þáttum, þá má nefna hér nokkra afburðarhrúta. Tveir hrútar ná einkunninni 13,1 fyrir gerð sláturlamba. Það eru þeir Bjartur 19­081 frá Litlu­Reykjum, Reykjahverfi, sonur Kambs 16­038 sem síðar verður getið, og Viðar 17­844 frá Efri­Fitjum. Viðar var í afkvæmaprófun vegna sæðinga­ stöðvanna en hann var einnig tek­ inn með í annað uppgjör fyrir búið byggt á rýmri kröfum. Sá hrútur sem átti þann hóp sem mældist með þykkasta bakvöðva­ nn var Kambur 16­038 frá Litlu­ Reykjum. Dætur hans mældust að jafnaði með hvorki meira né minna en 36 mm þykkan bakvöðva að jafn­ aði. Kambur er sonur Gríms 14­955 frá Ytri­Skógum. Sá hrútur sem skartar hæstu með­ altali fyrir lærastig dætra er Tilberi 19­330, Haukatungu­Syðri 1 en dætur hans hlutu 18,9 að jafnaði fyrir læri. Líkt og fleiri afburðargerðarhrútar, er Tilberi aðkeyptur frá Broddanesi og er sonur Hnikils 18­053 og dótturson­ ur Barkar 15­077. Um afrek þessara hrúta og annarra má lesa betur í umfjöllun á vef RML. Að lokum eru bændur hvattir til að nýta sér það til gagns að gera vandaðar afkvæmarannsóknir þar sem sérstök áhersla er lögð á að fá sem bestan dóm á veturgömlu hrútana. Eyþór Einarsson ráðunautur búfjárræktar- og þjónustusviðs ee@rml.is Bú Nafn Númer Faðir Nafn Faðir Númer Eink. Fallþ. Eink. kjötmat Eink. líflömb Eink. Heild Fallþ. Gerð Fita Ómv. Ómf. Læri Aldur Svarfhóll, Laxárdal 18-502 Svali 14-071 115 124 169 135,8 19,3 11,5 7,0 31,5 2,6 17,8 149 Skarðaborg, Reykjahverfi Suddi 17-120 Kappi 14-143 101 153 151 134,8 17,7 12,4 7,0 31,9 2,4 17,9 139 Hvammur, Lóni Svartur 17-455 Klettur 13-962 106 131 151 129,4 16,3 10,4 5,9 30,7 2,1 17,5 149 Forsæludalur, Vatnsdal Glókollur 19-372 Biti 18-509 101 144 138 127,6 16,5 11,1 5,9 30,6 3,6 18,2 143 Forsæludalur, Vatnsdal Skuggi 19-373 Rosi 18-512 104 134 144 127,2 16,7 11,0 6,2 31,6 3,6 18,2 134 Helgustaðir, Fljótum Márus 19-050 Grámann 16-050 100 134 145 126,4 18,5 9,4 5,8 29,0 2,5 17,6 139 Deildartunga, Reykholtsdal Angi 19-326 Strangi 18-689 98 135 143 125,1 17,9 10,3 6,3 31,0 3,0 17,7 147 Árgerði, Sæmundarhlíð Pinni 18-343 Guðni Már 17-091 109 120 145 124,5 19,8 11,5 7,5 33,3 4,0 18,6 127 Staður 2, Reykhólasveit 19-061 Jesper 14-082 122 117 134 124,4 19,4 10,6 6,3 30,2 3,2 17,6 138 Hríshóll, Eyjafirði Goði 19-749 Stormur 16-004 105 148 120 124,3 21,3 12,8 7,5 32,2 3,6 18,3 146 Skörð, Miðdölum 18-054 Bjartur 15-967 137 101 134 124,0 18,8 9,9 6,9 31,5 2,9 17,9 152 Gýgjarhólskot, Biskupstungum Hverfugl 18-247 Fossróful. 17-239 95 139 136 123,7 23,2 11,7 6,6 33,6 2,8 18,3 162 Litlu-Reykir, Reykjahverfi Kambur 16-038 Grímur 14-955 101 125 144 123,4 18,8 12,4 7,8 36,0 3,0 18,7 143 Innri-Múli, Barðaströnd Dabbi 18-326 Sæmi 17-338 115 132 121 122,6 18,6 12,3 6,8 28,8 2,7 18,5 140 Miðdalur, Skagafirði Broddi 19-716 Hnikill 18-053 98 139 132 122,6 17,3 10,5 6,5 30,1 2,4 17,9 143 Burstafell, Vopnafirði Birtingur 19-105 Skuggi 18-293 90 144 134 122,4 17,3 10,1 5,3 30,8 2,8 17,5 133 Bárðartjörn, Grýtubakkahreppi Surtur 19-468 Durtur 16-994 112 114 141 122,1 16,8 9,8 6,5 32,9 2,5 18,2 131 Forsæludalur, Vatnsdal Þróttur 19-371 Logi 18-513 110 142 114 122,1 17,1 10,8 5,6 28,8 2,8 17,5 136 Mýrar 2, Hrútafirði Viður 19-164 Stofn 17-667 113 121 130 121,4 21,0 12,7 8,1 30,7 2,3 18,0 145 Laxárdalur, Hrútafirði Siggi 19-355 Fáfnir 16-995 86 127 150 121,1 17,0 10,4 6,3 35,1 2,8 17,6 136 Þóroddsstaðir, Hrútafirði Reki 18-051 Dreki 13-953 102 130 131 121,0 17,9 11,0 5,7 32,8 2,7 17,5 143 Sámstaðir, Hvítársíðu Vestri 19-298 Mávur 15-990 104 122 136 120,7 17,3 11,1 6,2 30,1 2,4 17,7 132 Skerðingsstaðir, Hvammssveit Purkur 19-237 Fáfnir 16-995 104 135 123 120,5 16,9 9,9 5,4 29,1 2,5 17,6 143 Svalbarð/Kringla, Miðdölum Siggi feiti 19-636 Sjobbi 18-085 124 121 116 120,4 18,5 11,1 7,0 29,7 2,4 17,7 131 Rauðholt, Hjaltastaðaþinghá Haukur 18-449 Trefill 17-435 101 148 113 120,3 17,7 10,4 6,4 32,1 2,8 17,6 146 Bárðartjörn, Grýtubakkahreppi Hreinn 16-451 Svimi 14-956 103 139 119 120,0 16,0 10,2 6,1 31,4 2,8 18,1 139 Haukatunga syðri 2, Kolbeinsthr. Pendúll 18-538 Leynir 16-522 98 120 143 120,0 17,3 11,4 6,3 30,8 2,6 18,3 158 Þóroddsstaðir, Hrútafirði Kappi 16-839 Höfðingi 10-919 103 135 122 120,0 18,0 11,8 6,3 32,4 2,6 17,7 137 Hrifla, Þingeyjarsveit Sorti 18-068 Njörður 15-991 88 119 153 119,9 16,6 10,3 6,9 33,4 2,5 18,3 134 Ketilseyri, Dýrafirði Veltir 19-054 Fleygur 17-061 92 134 134 119,9 16,3 11,0 6,0 29,7 3,2 17,6 131 1. tafla. Hrútar með 120 stig eða fleiri í heildareinkunn FJÓSAINNRÉTTINGAR DSD fjósainnréttingar sem framleiddar eru í Hollandi eru sérsmíðaðar fyrir íslenskar kýr og hafa þegar sannað gildi sitt í íslenskum fjósum. Innréttingarnar eru hannaðar og prófaðar eftir ströngustu gæðakröfum og miða að velferð bæði dýra og manna. Áralöng reynsla hefur leitt af sér innréttingakerfi sem auðvelt er að aðlaga nánast öllum þörfum nútímafjósa. Hafðu samband: bondi@byko.is Til á lager Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KÚPLINGAR í flestar gerðir dráttarvéla Hrossaslátrun Getum bætt við okkur hrossum og folöldum í slátrun. Vinsamlegast hafið samband við Eddu í síma 455 4588 eða sendið pöntun inná bondi@ks.is Einnig má sjá nánari upplýsingar inná heimasíðu KS www.ks.is undir Kjötafurðastöð

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.