Bændablaðið - 28.01.2021, Page 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202140
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Niðurstöður skýrsluhaldsársins
í mjólkurframleiðslunni 2020
hafa verið reiknaðar og birtar á
vef Ráðgjafarmiðstöðvar land
búnaðar ins, www.rml.is. Hér
verður farið yfir helstu tölur úr
uppgjörinu.
Með þeirri breytingu sem gerð
var fyrir um fjórum árum að afurða
skýrsluhald varð skilyrði fyrir opin
berum greiðslum náði þátttaka í
skýrsluhaldi 100%. Þetta var og er
einsdæmi í heiminum eftir því sem
næst verður komist.
Þeir framleiðendur sem skil
uðu einhverjum, en þó mismiklum
upplýsingum um afurðir kúa sinna
á nýliðnu ári voru 541 en á árinu
2019 voru þeir 556. Niðurstöðurnar
eru þær helstar að 25.649,0 árskýr
skiluðu 6.384 kg nyt að meðaltali.
Það er afurðaaukning um 50 kg frá
árinu 2019 en þá skiluðu 25.819,4
árskýr meðalnyt upp á 6.334 kg.
Jafnframt eru þetta mestu meðal
afurðir frá upphafi vega og fimmta
árið í röð sem þær ná yfir 6.000 kg
eftir árskú. Umreiknaðar í orkuleið
rétta mjólk (OLM) eru meðalafurðir
síðasta árs 6.650 kg/árskú.
Meðalbústærð reiknaðist 48,4
árskýr á árinu 2020 en sambæri
leg tala var 47,6 árið á undan.
Meðalbústærð reiknuð í skýrslu
færðum kúm var nú 64,1 kýr en 2019
reiknuðust þær 62,9. Samtals voru
skýrslufærðar kýr ársins 34.696 tals
ins samanborið við 34.979 árið áður.
Mestar meðalafurðir
á Austurlandi
Svæðaskipting fylgir að segja má
kjördæmum. Á árinu voru mestar
meðalafurðir á Austurlandi, 6.693
kg, og síðan kemur Norðurland
eystra með 6.535 kg.
Stærst eru búin að meðaltali á
Austurlandi, 52,4 árskýr, en næst
stærst á Suðurlandi 50,4 árskýr.
Meðalinnleggið eykst
um 2,5% milli ára
Meðalbúið stækkaði milli ára í takt
við breytingar á innleggi mjólkur og
fækkun innleggjenda. Meðalinnlegg
á bú með innlegg allt árið nam
284.363 lítrum samanborið við
277.417 lítra á árinu 2019. Þetta er
aukning um 2,5% frá fyrra ári. Á
sama tíma fækkaði innleggjendum
mjólkur um þrettán og voru kúabú
í framleiðslu 533 talsins nú um
áramótin 2020/21.
Gríðarleg vanhöld á kálfum
Vanhöld kálfa eru mikil og er þar
einkum um að ræða gríðarlegan
fjölda dauðfæddra kálfa við fyrsta
burð móður. Ríflega fjórði hver
kálfur undan 1. kálfs kvígum fæðist
dauður en slíkt ástand hlýtur að
flokkast sem algjörlega óviðunandi.
Þrátt fyrir rannsóknir og athuganir
á orsökum þessa hefur engin ein
ástæða fundist. RML vinnur nú
að athugun á uppeldi, aðbúnaði og
meðhöndlun 1. kálfs kvígna sem
hugsanlega gæti varpað einhverju
ljósi á ástæður þó best sé að fullyrða
ekkert þar um.
Enn eimir eftir af fornum bú
skaparháttum. Þannig lætur tölu
verður hluti bænda kvígurnar bera
mun eldri en æskilegt er. Þannig var
meðalaldur við 1. burð 27,5 mán. á
síðasta ári eða nánast sá sami og árið
áður. Þessum þætti þarf að gefa meiri
gaum í bústjórninni en allt bend
ir í þá átt að stefna eigi að því að
kvígurnar beri 2224 mánaða gaml
ar. Þarna munar því um hálfu ári með
tilheyrandi rýmiskröfum og auknum
uppeldiskostnaði. Annað sem flokka
verður sem forna búskaparhætti er sú
staðreynd að um 33% allra fæddra
kálfa eru undan heimanautum. Meira
en sextíu ár munu vera síðan farið
var að stunda nautgripasæðingar
hérlendis og eldi þarfanauta því í
raun óþarft. Sæðingar standa öllum
kúabændum til boða á vel viðráðan
legu verði. Ef við lítum til nágranna
landa okkar er langt innan við 10%
fæddra kálfa undan heimanautum og
full ástæða til að við þokum okkur
nær nútímanum hvað þennan þátt
varðar.
Mestar meðalafurðir á
Búrfelli í Svarfaðardal
Mest meðalnyt eftir árskú á ný
liðnu ári, 2020, var hjá Guðrúnu
Marinósdóttur og Gunnari Þór
Þórissyni á Búrfelli í Svarfaðardal.
Nyt eftir árskú reyndist 8.579 kg
sem er aukning um 602 kg frá fyrra
ári. Á Búrfelli er að finna legubása
fjós með mjaltaþjóni sem tekið var
í notkun vorið 2018. Kýrnar á bú
inu kunna greinilega vel að meta
aðstöðubreytinguna en frá því að
fjósið kom til notkunar hafa afurðir
aukist um 1.5001.600 kg/árskú og
voru þó ekki litlar fyrir.
Annað í röðinni var Hurðar
baksbúið ehf. á Hurðarbaki í Flóa
eða Villingaholtshreppi hinum
forna. Þar stýra búi Fanney Ólafs
dóttir og Reynir Þór Jónsson. Þetta
bú var með mestar afurðir eftir
árskú á árinu 2019 en stendur nú
í öðru sæti með 8.445 kg/árskú. Á
Hurðarbaki er nýlegt legubása fjós
með mjaltaþjóni. Þriðja í röðinni
er kunnuglegt meðal afurðahæstu
búa en þar er um að ræða bú þeirra
Guðlaugar Sigurðardóttur og
Jóhannesar Eybergs Ragnarssonar
á Hraunhálsi í Helgafellssveit á
norðan verðu Snæfellsnesi. Þetta er
þriðja árið í röð sem þetta bú hafn
ar í þriðja sæti. Þar á bæ mjólkuðu
kýrnar 8.357 kg/árskú á nýliðnu ári.
Fjósið á Hraunhálsi er básafjós með
rörmjaltakerfi og öll umgengni og
snyrtimennska utan dyra sem innan
til algjörrar fyrirmyndar.
Í fjórða sæti varð bú þeirra
Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á
Kirkjulæk í Fljótshlíð. „Fögur er
hlíðin“ var einhvern tíma haft á orði
og víst er að kýrnar á Kirkjulæk hafa
lengi mjólkað vel. Búið hefur verið
meðal afurðahæstu búa landsins um
áratugaskeið, í sjöunda sæti 2019,
en á síðasta ári skilaði hver árskú
8.353 kg. Þar er að finna legu
básafjós með mjaltabás. Fimmta
búið í röð afurðahæstu búa er á
Göngustöðum í Svarfaðardal en
þar mjólkuðu kýrnar 8.312 kg/
árskú. Á Göngustöðum er nýlegt
legubásafjós með mjaltaþjóni. Sjötta
afurðahæsta bú ársins 2020 var svo
bú Guðbjargar Albertsdóttur og Rúts
Pálssonar á Skíðbakka 1 í Austur
Landeyjum. Kýrnar skiluðu 8.268
kg/árskú en á búinu er legubásafjós
með mjaltaþjóni.
Þessum búum til viðbótar náðu
átta bú yfir 8.000 kg meðalafurðum
eftir árskú eins og sjá má í meðfylgj
andi töflu. Þetta er einu búi færra
með yfir 8 þús. kg meðalafurðir en
á árinu 2019.
Smuga 465 í Ytri-Hofdölum í
Skagafirði mjólkaði mest
Nythæsta kýrin á landinu árið
2020 var Smuga 14648610465 í
YtriHofdölum í Viðvíkursveit í
Skagafirði, undan Síríusi 02032
og móðurfaðir hennar er Þollur
99008. Smuga mjólkaði 14.565 kg
með 4,89% fitu og 3,34% próteini.
Burðartími hennar féll ágætlega að
almanaksárinu en hún bar sínum
sjötta kálfi 3. nóvember 2019.
Hæsta dagsnyt Smugu á nýliðnu
ári var 52 kg og hún var í yfir 40
kg dagsnyt fram á sumar eða til
loka júnímánaðar. Smuga er fædd á
Skúfsstöðum í Hjaltadal í maí 2011
en flutti sig um set rétt fyrir fyrsta
burð sem var hinn 3. ágúst 2013.
Skráðar æviafurðir hennar voru
67.865 kg um síðustu áramót en á
yfirstandandi mjólkurskeiði er hún
komin í 17.322 kg mjólkur.
Fjöldi Afurðir
Uppgjörssvæði Bú - árslok 2020 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
Vesturland 370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 27,7 8.357
Vestfirðir 460128 Hvammur Ólöf og Valgeir 40,9 7.789
Norðurland vestra 570804 Ytri-Hofdalir Ytri-Hofdalir ehf. 30,9 8.019
Norðurland eystra 650221 Búrfell Guðrún og Gunnar 42,6 8.579
Austurland 761412 Núpur Björgvin Rúnar Gunnarsson 108,1 7.640
Suðurland 870736 Hurðarbak Hurðarbaksbúið ehf 51,7 8.445
Nythæstu búin eftir uppgjörssvæðum*
*Uppgjörssvæðunum hefur verið breytt og þau eru nú eingöngu 6 í uppgjörinu eins og á síðasta ári
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur búfjárræktar- og
þjónustusviðs
mundi@rml.is
Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá mjólkurframleiðendum 2020
Sigurður Kristjánsson
skýrsluhald og
prófarkalestur
sk@rml.is