Bændablaðið - 28.01.2021, Page 47

Bændablaðið - 28.01.2021, Page 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 47 Aðalstarf mitt er atvinnubílstjóri og því er umferð og umferðar­ menning mér mjög hugleikin. Þegar sólin fer að hækka á lofti er hún óþægileg í augnhæð og hefur blindað margan ökumann­ inn. Eina ráðið við þessu er að passa vel upp á að vera með rúður hreinar. Ótrúlega oft sér maður bílstjóra í umferðinni gera þau mistök þegar þeir keyra á móti sól með óhreina framrúðu að reyna að setja rúðupissið á og freista þess að þrífa óhreinindin. Þetta verður til þess að drullan og vökvinn blandast saman og útsýnið er ekki neitt í nokkra metra, en þessir metrar eru oft ástæða árekstra. Nær væri að passa betur upp á að vera með hreinar rúður áður en lagt er af stað út í umferðina (sjálfur bóna ég oft alla spegla og rúður á morgnana í byrjun vinnudags). Afturljósalausir bílar eru sjálfum sér hættulegastir Mjög margir bílar koma þannig til landsins að eingöngu eru „ljóstírur“ að framan og engin afturljós nema maður kveiki ökuljósin handvirkt. Hins vegar er hægt að breyta þessu í mjög mörgum bílum í tölvunni þannig að ljós kvikna allan hringinn eins og lög gera ráð fyrir (einföld aðgerð sem bílasölumenn ættu að bjóða kaupendum bíla). Í spjalli við þrjá atvinnubílstjóra (landflutninga bílstjóra, leigu bíl­ stjóra og sendibílstjóra) vorum við að spjalla um hvað það væri misóþægilegt að keyra á eftir ljós­ lausum bíl. Niðurstaðan var sú að við vorum allir sammála um að hvítir og gráir bílar væru hættulegri okkur/ þeim sem á eftir ekur en bílar í áber­ andi litum. Við virtumst allir vera að fara óþægilega nálægt þessum hvítu og gráu bílum ef þeir voru ljóslausir (eitthvað sem mætti rannsaka betur), en að keyra í umferðinni á eftir aft­ urljósum er almennt bilið alltaf það sama á móti óreglulegu bili ef engin ljós eru til að elta. Hins vegar vorum við allir fjórir sammála því að alltaf fleiri og fleiri eru að átta sig á að þeir eru ljóslausir að aftan þegar við erum fyrir aftan þá og blikkum á þá háuljósunum til að láta vita af ljósleysinu. Árið í umferðinni byrjar ekki vel, það þarf að bæta Þegar þetta er skrifað hafa tveir lát­ ist í umferðaróhappi það litla sem af árinu er liðið eftir hörmulegt slys í Ísafjarðardjúpi. Að horfa til þess sem nefnt er núllsýn á banaslysum í umferðinni er alltaf í umræðunni, en til þess að það náist þarf að hlusta á alla þá sem telja sig hafa eitthvað fram að færa. Oft hefur spjótum verið beint að Vegagerðinni sem er ósköp eðlilegt, en óskaplega finnst mér döpur svör talsmanns Vegagerðarinnar sem er nánast alltaf á sama veg. Rétt eins og gömul rispuð vínylplata svarar hann: „Vantar pening, vantar pening.“ Fyrir mér mætti stokka upp stjórn Vegagerðarinnar og setja þangað starfandi atvinnubílstjóra, rekstrar­ stjóra flutningafyrirtækja og mann eins og Ólaf Guðmundsson umferð­ arsérfræðing (hefði viljað Ólaf sem fyrst í stjórn Vegagerðarinnar þrátt fyrir að hann sé Sjálfstæðismaður, Framsóknarmaðurinn Sigurður Ingi ætti að ganga í það strax, en sennilega hefur einhver Framsóknarmaður gert verri „skandal“ áður en að ráða Sjálfstæðismann í stjórn Vega­ gerðarinnar. Það er gaman að leika sér á ís, en þar leynast hættur Undanfarinn mánuð hefur mátt heyra í fréttum að í allavega þrem tilfellum hafði manneskja farið niður um ís. Í einu af þessum til­ fellum var um misskilning að ræða (síðastliðinn sunnudag), en sá sem haldið var að fallið hefði niður um ís reyndist kafari við sportköfun. Þarna hefði mátt koma í veg fyrir mikinn viðbúnað ef kafarinn hefði látið vita af sér fyrirfram eða sett upp flagg sem lögregla og björg­ unarsveitir ættu að þekkja og þýðir að verið sé að kafa. Í hin tvö skiptin brast ís undan fólki, annað skiptið var það maður á mótorhjóli sem var að keyra á ísnum og ísinn ekki nógu traustur (alltaf að skoða áður en ekið er út á ísinn). Í öðru tilvikinu höfðu verið gerð stór göt á ís til að kafa undir ísinn og ekki merkt sérstaklega til að vara við vökinni þeim sem á eftir kæmu, en manneskja á skautum lenti í vökinni. Þegar við yfirgefum ís þar sem við höfum verið að leik, skulum við hafa það í huga að það gætu komið einhverjir aðrir að leika á ísnum og hugsanlega leika sér á annan hátt. Höldum áfram að leika okkur, en förum að öllu með gát. Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla. Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi. Sendum um allt land. www.pgs.is pgs@pgs.is s 586 1260 Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík Alternatorinn eða startarinn bilaður? ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 ÁKEFÐ ANDLIT O REIST B ÞARFNASTKLEIF Þ BÆKLINGUR H FJÁLG- LEGUR VÆTA Á F L E Y G U R FJAS EV S S I AÐHEFST G E R I R FORÐA-GJÁLFUR J A GÆFAGLEÐI G I F T A Ó SNYFSIÁLÚT T U T L A MATJURT U VÍSUHLUTI HRÆDD KULDAÞEL B A N G I N HROTTI TVEIR EINSRITRÖÐ S S UPP- TALNINGSLÉTTA LKUSKVANDRÆÐI UNNA S L S K A BRÁÐRÆÐIHNAPPUR A N ÞÍÐA A F Í S A KYNNGIE A T A S T SÓLUNDA E Y Ð A KRAPPIRRAÐAR E L GBÖÐLAST G E L L A SKYLDIR Y GILDRAPÁSA S N A R A AKVERK-SIGI F F FERMA YFIRHÖFNÚT K Á P A TIPLLEIÐBEINA T R Í T LTVEIR EINS Æ TVÍNÓNAEMJAR H I K A SKORDÝRLAUS F L U G A MJÖG D R Æ L N I GRÓÐUR- RÍKI ÓHLJÓÐI F L Ó R A RYK ÍLÁTI A RBRÍARÍTRUFLUN I P A N FLÓNSKA Ó R Á Ð VAFRATVÍHLJÓÐI R Á F AF N G I R Ð A A N FLATBAKA N P I Í R T TÓMUR S A A U MEIÐSLI Ð M U A R RGNAUÐA MAGRIR H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 144 DÆSA BYLGJAST MATJURT HLYKKUR GRAS- BOLLI LITÞROTA STEYPI- REYÐUR FLANA BELJAKI LÆVÍSAN PAKKHÚS HAMINGJA ILLINDI HNÍGA GISTI- STAÐUR JAPLA KRÚSI- DÚLLUR HÉRAÐ Á INDLANDI ÞÖGGUN FÍKINN PRÓFTITILL VAND- VIRKNI TUNGU- MÁLPAPPÍRA TÓNN KALK- STEINN FÓRNAR- GJÖF KAÐALL TROSNA SKÓA DANS STRENGUR UMFRAM ÚT- DRÁTTUR RÍKI Í AFRÍKU TVEIR EINS EIGRA ÓRÓI EYÐI- LEGGJA EINS MÆLI- EINING ÁSÝND NÁLÚSAR KRAP ÍÞRÓTTA- FÉLAG MÁNUÐUR SPIL SÍÐRI GAMALL LIÐUR GEIGUR AFTURHLIÐ KALLORÐ BLAÐ FISKUR VIRKI TÓNLIST NÓTA LEIKUR OP ÁGÓÐI DISKA- GRIND RÝJA STAFUR H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 145 Of margir vaða út í umferðina með ekkert útsýni Afturljós á bílum eiga alltaf að vera kveikt og þeim ber að halda hreinum svo umferð sem á eftir kemur sjái ökutækið áður en það er of seint.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.