Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 49
Útprjónaðar húfur eru alltaf prýði
á höfði. Þessi húfa fyrir börn er
hlý og mjúk, prjónuð úr DROPS
Merino Extra Fine, með norrænu
mynstri.
DROPS Design: Mynstur me-071-bn
Stærðir: 2 (3/5) 6/9 (10/12) ára
Höfuðmál: Ca 48 (50/52) 53/54 (55/56) cm
Garn: DROPS Merino Extra Fine (fæst í
Handverkskúnst)
Ryð nr 42: 50 g í allar stærðir
Rjómahvítur nr 01: 50 g í allar stærðir
Prjónar: Hringprjónn 40 cm, nr 3 og 3,5.
Sokkaprjónar nr 3,5 – eða sú stærð sem þarft til að
fá 22 lykkjur = 10 cm á breidd
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið
er prjónað í sléttprjóni.
Leiðbeiningar: Til að koma í veg fyrir að stykkið
missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er
mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki.
Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er
prjónað ef það herpist aðeins saman.
Úrtaka: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan
prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
HÚFA:
Fitjið upp 96 (100) 104 (108) lykkjur á hringprjón
nr 3 með ryð. Tengið í hring, setjið prjónamerki og
prjónið 1 umferð slétt og síðan stroff (= 1L slétt, 1L
brugðið) í 3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón nr 3,5. og prjónið mynstur
A.1 hringinn (= 24 (25) 26 (27) mynstureiningar með
4 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri
með ör í A.1 er lykkjum fækkað/fjölgað jafnt yfir
að réttum lykkjufjölda eins og útskýrt er að neðan.
ÖR-1: Jafnið lykkjufjöldann í 96 (96) 108 (108) lykkj-
ur (= 8 (8) 9 (9) mynstureiningar með 12 lykkjum).
ÖR-2: Jafnið lykkjufjöldann í 96 (96) 104 (104)
lykkjur (= 12 (12) 13 (13) mynstureiningar með
8 lykkjum).
Ör-3: Jafnið lykkjufjöldann í 96 (96) 108 (108) lykkjur
(= 8 (8) 9 (9) mynstureiningar með 12 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið
ca 16 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið 12 prjónamerki í stykkið með 8 (8) 9 (9) lykkjur
á milli hverra prjónamerkja. Prjónið slétt hringinn
með ryð. JAFNFRAMT í næstu umferð er fækkað um
1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA
= 12 lykkjur færri í öllum stærðum. Fækkið lykkjum
svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í
hverri umferð alls 4 sinnum = 12 (12) 24 (24) lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt án úrtöku. Prjónið 1 umferð
slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 slétt
saman = 6 (6) 12 (12) lykkjur. Klippið frá, þræðið
þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið
að og festið vel. Húfan mælist ca 19 (20) 21 (22) cm
ofan frá og niður.
Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Lillesand húfa
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 7 6 8 4
1 2 7 8 6
9 8 3 1 7
7 9 1 6
2 3 6
5 4 7 3
8 3 2 5 6
5 1 8 9 4
4 9 5 3 7
Þyngst
2 9 6 4
8 5 9 3
9 4 1 7
6 9 2 1
7 3 1 6
5 4 2 9
1 3 6 4
4 5 8 2
5 7 2 8
6 3 9
4 1
2 1 4 6
3 2 9 5 7 1
2 3
9 5 8 1 4 2
8 4 9 7
7 3
2 5 8
7 2 3
5 8 7 1
5 2
7 1 3 2
2 9 5 6
6 7
4 1 8 3
3 5 6
Ætla að verða hestakona
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Mía Vattar Steinólfsdóttir býr á
Akranesi og á einn yngri bróður
sem heitir Nói Vattar. Mía er
mikil sveitastelpa og heimsækir
stundum ömmu og afa í Ytri-
Fagradal og ömmu og afa á
Vattarnesi. Míu finnst gaman á
hestbaki og hefur mjög gaman af
geitum.
Nafn: Mía Vattar Steinólfsdóttir.
Aldur: 7 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Akranes.
Skóli: Grundaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Læra.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestar og geitur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Engin, en
uppáhaldslag er Pink fluffy unicorn.
Uppáhaldskvikmynd: Geitur í
Dalabæ.
Uppáhaldsbók: Bróðir minn
Ljónshjarta.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi fimleika og spila á
ukulele.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Hestakona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að draga pabba með mér
í fallturn.
Hvað verður skemmtilegt að gera
í vetur? Að vera úti að leika sér í
snjónum.
Næst » Mía Vattar skorar á Rúnar
Berg Vattar Hjartarson frá Akranesi
að svara spurningum í næsta blaði.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL