Bændablaðið - 28.01.2021, Side 54

Bændablaðið - 28.01.2021, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202154 Bújörð óskast til kaups Sæmilega hýst bújörð í innan við 2 klst akstursfjarlægð frá Reykjavík óskast til kaups. Búseta yrði á jörðinni og hún nýtt til ræktunar og dýrahalds. Nánari uppl. í síma 854-0488 eða á netfang: landsbyggdin@gmail.com viktoria@hveragerdi.is Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ Austurvegi 69, 800 Selfossi Sími: 480 0000, www.aflvelar.is SNJÓBLÁSARAR Deluxe 24 DLE Vélarstærð: 254cc Vinnslubreidd: 61 cm Vinnsluhæð: 53,3 cm Blásturslengd: 15,2 m Afkastageta: Allt að 56,2t á klst Startari: Rafstart/handstrektur Gírar: 6 áfram/ 2 aftur Mótor: Ariens AX, fjórgengis Vnr.: 539921323 Verð: 410.000 kr. m/vsk Classic 24E Vélarstærð: 208cc Vinnslubreidd: 61 cm Vinnsluhæð: 53,3 cm Blásturslengd: 12,2 m Afkastageta: Allt að 52,3t á klst Startari: Rafstart/handstrektur Gírar: 6 áfram/ 2 aftur Mótor: Ariens AX, fjórgengis Vnr.: 539920328 Verð: 269.000 kr. m/vsk Uppfyllir staðalinn EN 20345: 2011 SRC CI Stærðir: 40-47 Verðtilboð: 14.880 Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is Alvöru vetrarskór með tá- og naglavörn á tilboði. Á annarri hliðinni er rennilás til að auðvelda að fara í og úr skónum. Panda Stralis - TILBOÐ jardir.is HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Til sölu Erum með til sölu notaðan hálkuvarnarbúnað, s.s. snjótennur og kassa aftan á bíla sem notaðir eru til dreifingar á salti og sandi. Áhugasamir hafi samband við Björgvin í síma 775-5021 eða á bjorgvin@gardlist.is Ford Econoline 150 4x4 húsbíll, árg. 1987 v8 302. Nýskoðaður með öllu. Frábær ferðabíll. Verð 1.200.000 kr. staðgreitt. Til greina kemur að skipta á A Liner eða litlu hjólhýsi. Sími 487- 5400 eða 853-5995. Weckman þak- og veggjastál. 0,5 mm galv. kr. 1.550 fm. 0,45 mm litað kr. 1.590 fm. 0,6 mm galv. kr. 1.890 fm. 0,5 mm litað. kr. 1.990 fm. Öll verð með vsk. Afgreiðslufrestur 4-6 vikur. H. Hauksson ehf. S. 588-1130. Netfang: hhaukssonehf@simnet.is Timbur í fjárhúsgólf 32 x 100 mm. Lengdir 4,8/5,1/5,4 m Verð kr. 265 lm með vsk. H. Hauksson ehf. Sími 588-1130. Netfang: hhaukssonehf@ simnet.is Sauðfjárbændur athugið! Höfum til sölu sauðfjárbækur. Hver bók er fyrir 500 fjár. Verð 1.200 kr. Sendum um allt land. Nánari upplýsingar á print@heradsprent.is og í síma 471 1449. Héraðsprent, Miðvangi 1, 700 Egilsstaðir. Óska eftir Kaupi vínylplötur og alls kyns tónlist og tónlistartengt efni. Geri tilboð í söfn. Uppl. gefur Óli í síma 822-3710 eða á olisigur@gmail.com Óska eftir að kaupa Willys jeppa, ár- gerð 1946-1947 í sæmilegu ástandi. Uppl. í síma 863-5100. Atvinna 16 ára drengur óskar eftir að komast í vinnu í sveit. Hraustur, með reynslu úr ferða- og gistiþjónustu og afar handlaginn. S. 869-0672. 42 ára íslenskur karlmaður óskar eftir því að komast til vinnu í sveit eða út á land. Er uppalinn í sveit og eftir rúm 20 ár í höfuðborginni er sveitalífið farið að heilla. Er vanur á flestar vélar og með meirapróf ef það hentar. Hafið samband í síma 844-5687. Húsnæði Er einhver sem á eyðibýli/sumarhús sem ekki er verið að nota og vantar að laga hitt og þetta? Við erum par á fertugsaldri sem erum að leita að húsi með sál. Getum lagað flest allt sjálf og eigum einn hund sem kemur með okkur. Óskum bara eftir að leigja fyrir mjög lítinn pening gegn því að gera eignina betri. Allir staðir koma til greina utan Reykjavíkur. Uppl.í síma 666-1227, Linda. Til leigu Tveggja herbergja íbúð, 55 fm. með sér inngangi og garði. Verð 130.000 kr. á mánuði. Er á Kjalarnesi, 116 Rvk. Uppl. í síma 861-7521. Þjónusta Tek að mér viðgerðir á flestum tegundum sjálfskiptinga. Hafið samband í síma 663-9589 til að fá upplýsingar og tilboð. HP transmission, Akureyri. Netfang: einar.g9@gmail.com, Einar G. Tek að mér að færa yfir á (vídeó, slide, ljósmyndir) á digital. Set myndir á minnislykla eða flakkara. Sýnishorn á Facebook: heima var best. Uppl. í s. 863-7265 og á siggil@simnet.is Næsta Bændablað kemur út 11. febrúar Smáauglýsinga- síminn er: 56 30 300 LÍF&STARF Árið 2020 fór ferðaþjónustan aftur um 10 ár í tölum um fjölda erlendra ferðamanna á landinu. Áhrifin eru gríðarleg og ljóst er að stórt skarð hefur verið höggvið í ferðaþjónustuna sem enginn veit hversu langan tíma tekur að koma á réttan stað á ný. Settar hafa verið fram spár um að í ár komi um 900 þúsund erlendir ferðamenn til Íslands en ljóst er að miðað við stöðu heimsfaraldursins eru þær spár ekki líklegar til að ganga eftir. Þrátt fyrir að ferðaþjónustan sé tilbúin að fara af stað aftur með litlum fyrirvara þá má gera ráð fyrir að endurreisnin gangi hægar fyrir sig en áætlað hefur verið. Það er því enn þá nauðsynlegt að stjórnvöld horfi með opnum huga á möguleika til stuðnings við ferðaþjónustuna til að tryggja það að nægileg þjónusta verði í boði á öllu landinu þegar heimurinn opnast á ný. Möguleikar fyrirtækja innan ferðaþjónustunnar til þess að halda út í gegnum þetta tímabil heimsfaraldurs eru ólíkir og eru þar ýmsar breytur sem ráða för. Sem dæmi má nefna stærð fyrirtækja, aðgengi að fjárfestum og skilning frá bankakerfinu, staðsetningu fyrirtækja, fjárhagsstöðu, tengsl við viðskiptavini, líftíma og árstíðarsveifluna. Starfsemi fyrirtækjanna er ólík og má sem dæmi nefna að á meðan veitingastaðir í stærstu sveitarfélögum gátu fengið til sín Íslendinga á ferðalagi í sumar og þannig haldið í einhverja veltu, þá eru önnur sem halda úti þjónustu frá febrúar til júní ár hvert. Nú stefnir í að þau búi við það að tapa möguleikum til þess að fá til sín viðskiptavini í tvö heil ár. Þetta eru til dæmis fyrirtæki sem bjóða þjónustu til fjallaskíðafólks. Þessir viðskiptavinir eru einmitt þeir sem lögð er mikil áhersla á að fá til landsins til að fylgja stefnu stjórnvalda um ferðaþjónustu, ferðamenn sem skila miklum tekjum, ferðast utan háannasvæða og utan háannatíma. Í ljósi þeirrar stöðu sem við horfum fram á nú, þar sem endurreisn ferðaþjónustu fer seinna af stað en ætlað var, hvet ég stjórnvöld til að horfa með opnum huga á áframhaldandi stuðningsaðgerðir þar sem sér­ stak lega verði hugað að þeim hópum sem ekki hafa getað nýtt stuðninginn hingað til. Auk þess að hugað verði sérstaklega að því að leyfa þá ferðaþjónustu sem hægt er í faraldrinum. Framtíð ferðaþjónustunnar byggir á því hvernig haldið er á spöðunum nú. Við þurfum að halda í mannauðinn eins og hægt er og gæta þess að halda þeim viðskiptatengslum sem hafa verið byggð upp til fjölda ára. Nú er tækifæri til að endurreisa og endurbyggja, horfa á hvað var vel gert og hvað má endurskipuleggja en eitt af því er augljóslega innkoma erlendra ferðamanna inn í landið. Ljóst er að ef mögulegt á að vera að ná markmiðum Íslands um að verða sjálfbært ferðaþjónustuland þar sem fyrirtæki hafa tækifæri til að blómstra um allt land, skila tekjum og bættri þjónustu við íbúa, þarf að setja kraft í að markaðssetja Akureyrarflugvöll sem nýtt hlið inn í landið. Frábær skref hafa verið tekin með fjármögnun nýrrar flugstöðvar og flughlaðs, auk uppsetningar nýs aðflugsbúnaðar, og verður því hægt að bjóða þeim aðilum sem koma til Norðurlands með beinu flugi ásættanlega þjónustu. Áherslan á markaðssetningu þarf hins vegar að koma frá stjórnvöldum og setja þarf skýra framtíðarsýn fyrir Akureyrarflugvöll. Með vilja og fjármagn að vopni er hægt að ná góðum árangri við að fjölga aðilum sem setja upp beint flug norður og þannig gjörbreyta landslagi ferðaþjónustunnar á Íslandi. /MÞÞ Endurreisum ferðaþjónustuna með nýjum áherslum

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.