Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Síða 7

Skessuhorn - 06.01.2021, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 2021 7 SK ES SU H O R N 2 02 0 Bæjarstjórnarfundur 1325. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn þriðjudaginn 12. janúar kl. 17:00. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundabúnað og því útvarpsútsending ekki fyrir hendi. Bæjarbúar eru hvattir til þess að fylgjast með beinni útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins haldinn á Zoom, • laugardaginn 9. janúar kl. 10:30. Bæjarmálafundur Framsókn og frjálsa og Samfylkingar • fellur niður þessa vikuna. SK ES SU H O R N 2 02 1 Jólatré sótt 7.-11. janúar Akraneskaupstaður mun sjá um hirðingu jólatrjáa dagana 7.-11. janúar og er það í boði fyrir alla bæjarbúa. Eina sem þarf að gera er að setja trén út við götu. Ath. eingöngu jólatré verða tekin, ekki annað sorp. Akraneskaupstaður hvetu bæjarbúa til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem fellur til eftir nýárs- og þrettándagleði. SK ES SU H O R N 2 02 1 Laust starf hjá Akraneskaupstað Eftirfarandi starf er laust til umsóknar: Velferðar- og mannréttindasvið 70% staða félagsráðgjafa í barnavernd, tímabundið út árið 2021. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á www.akranes.is/lausstorf Skipavík í Stykkishólmi nýtti blíð- una skömmu fyrir jól og steypti plötu undir þriggja íbúða raðhús við Hjallatanga í Stykkishólmi. Á plötunni verður reist timburein- ingahús, sem að sögn Sævars Harð- arsonar framkvæmdastjóra Skipa- víkur, verður væntanlega sett upp strax eftir áramót. „Húsið er kom- ið til landsins og bíður bara eftir að við skellum því upp,“ segir Sævar og bætir við að það muni taka um viku að reisa húsið og loka því fyrir veðri og vindum. arg Íbúar og sumarhúsaeigendur á Fellsströnd og Skarðsströnd í Dala- byggð hafa nú í þrjú ár búið við mjög óstöðugt eða jafnvel með öllu óvirkt net- og símasamband með tilheyrandi óþægindum og óöryggi. Hafa þeir ítrekað sent kvartanir til ýmissa aðila, en mætt fálæti. Svæð- ið er strjálbýlt og ljóst að fjarskipta- fyrirtækin telja ekki eftir miklu að slægjast í þjónustu við íbúa á svæð- inu. Í kvörtunum sem bæði íbúar og sumarhúsaeigendur hafa beint til fjarskiptafyrirtækjanna og Póst- og fjarskiptastofnunar segja þeir öryggi á svæðinu verulega ábóta- vant þar sem ekki náist símasam- band við nauðsynlega aðila, svo sem björgunarsveitir, lögreglu eða sjúkraflutningamenn ef eitthvað bjáti á. Segja þeir að símasamband hafi verið í góðu lagi á svæðinu allt þar til fyrir þremur árum. Ekki bæti ástandið að nú sé Símanum ekki lengur gert skylt að viðhalda fastl- ínutengingum. Stór hluti Fells- strandar og Skarðsstrandar er því „dautt svæði,“ eins og það er kall- að; ekkert síma- eða netsamband þar að finna. Allir firra sig ábyrgð Íbúar á Fellsströnd og Skarðs- strönd segja í samtali við Skessu- horn að þeir hafi ítrekað rætt við starfsmenn fjarskiptafyrirtækjanna, svo sem Símann og Vodafone, en einnig Mílu, en fái þau svör að fyr- irtækin treysti sér ekki til að leysa vandamál við símasamband á svæð- inu. Þá hafi Síminn auk þess hafn- að beiðni um endurtengingu fastl- ínusíma á bæjunum til að gæta megi lágmarks öryggis. Í skriflegu svari sem Sveinn Skúlason á Hnúki fékk frá Arnari Stefánssyni lögfræðingi Póst- og fjarskiptastofnunar 3. des- ember síðastliðinn kemur fram að PFS taki ekki erindi hans til með- ferðar þar sem það falli utan gildis- sviðs þeirra laga sem að stofnunin hafi umsjón með. Bendir hann íbú- um á að koma ábendingum á fram- færi við fjarskiptafyrirtækin og at- huga í samráði við þau hvort hægt sé að bæta sambandið á staðnum eða hvort að einhverjar tæknileg- ar lausnir geti leyst vandann. „Um- kvörtunarefnið þitt varðar í raun ekki lögtryggðan rétt neytenda samkvæmt fjarskiptalögum. Fjar- skiptafyrirtækin bera ekki kvöð um landfræðilega útbreiðslu farnets- þjónustu nema í tilteknum og sér- staklega afmörkuðum tilvikum. Póst- og fjarskiptastofnun hefur heldur ekki heimildir í fjarskipta- lögum né afleiddum reglum til að hlutust til um almenn gæði far- símaþjónustu nema að því er varðar 3G/4G þjónustu á gagnaflutningi samkvæmt tíðniheimildum,“ segir í skriflegu svari lögfræðings Póst- og fjarskiptastofnunar. mm Skipavík notaði góða veðrið uppúr miðjum desember til steypuvinnu. Ljósm. sá Blíðviðrið notað til steypuvinnu Stór hluti Fellsstrandar og Skarðs- strandar án síma- og netsambands Horft af Breiðafirði inn í Fagradal á Skarðsströnd. Ljósm. Jónas Þrastarson.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.