Skessuhorn - 06.01.2021, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202122
Akranes verður í sviðsljósinu þegar
Agnes Joy mun keppa um Óskars-
verðlaunin fyrir Íslands hönd sem
besta erlenda kvikmyndin á Ósk-
arsverðlaunahátiðinni sem fram á
að fara í apríl. Kvikmyndin, sem var
að mestu tekin upp á Akranesi, var
sýnd í kvikmyndahúsum um land
allt frá miðjum október 2019 og
síðan í Ríkissjónvarpinu á Jóladag.
Myndin sló rækilega í gegn og sóp-
aði til sín verðlaunum á Eddu verð-
launahátíðinni í fyrra, þar sem hún
var kjörin besta kvikmynd ársins. Í
viðtali í þættinum Menning á RúV
um það leyti sem kvikmyndin var
frumsýnd sagði Silja Hauksdótt-
ir leikstjóri að Akranes væri kjörið
til kvikmyndatöku. Hún sagði það
hafa verið yndislegt að vera á Akra-
nesi þann tíma sem tökurnar fóru
fram, svæðið fallegt og fólkið al-
úðlegt og gott. Þá sagði hún kvik-
myndagerðarfólkið hafa haft tíma
til að einbeita sér að því sem þyrfti
að gera, vera inni í þessum húsum
og skottast um göturnar við tökur
og að segja þessa sögu.
Voru að vappa í leit
að tökustað
Hjónin Bjarni Einar Gunnarsson
og Olga Lárusdóttir, eigendur húss-
ins á Vesturgötu á Akranesi þar sem
stór hluti af innitökunum á kvik-
myndinni fóru fram, lánuðu húsið
til verkefnisins. „Það var þannig að
þau sem stóðu að kvikmyndinni voru
búin að skoða staði á Akranesi sem
gætu hentað við tökur. Voru með-
al annars búin að vappa í kring hjá
okkur áður en þau höfðu samband,“
segir Olga í samtali við Skessuhorn.
„Þau sögðu að staðsetningin hent-
aði mjög vel, væri við sjóinn og hús-
in sem voru eitt aðalsögusvið kvik-
myndarinnar voru þarna hlið við
hlið. Þetta hentaði okkur mjög vel
því á sama tíma vorum við á förum
til Afríku, í nóvember 2018, þegar
tökurnar áttu að fara fram. Bjarni
var þá að ganga á Kilimanjaro eld-
fjallið í Tanzaníu, sem er hæsti tind-
ur Afríku. Dóttir okkar hafði eftirlit
með húsinu á meðan tökurnar fóru
fram, en allt stóðst hjá aðstandend-
um kvikmyndarinnar og húsinu var
skilað til okkar eins og þeir tóku við
því,“ segir Olga.
Ætluðu alltaf að taka
upp á Akranesi
„Það var alltaf ætlun okkar að taka
kvikmyndina upp á Akranesi,“ seg-
ir Birgitta Björnsdóttir í samtali
við Skessuhorn, en hún er annar
framleiðandi myndarinnar, ásamt
Göggu Jónsdóttur. „Það var mik-
ilvægt að það sæist til Reykjavíkur,
eins og fram kom á ákveðnum stað
í myndinni. Við reyndum að taka
sem flest atriðin upp á Akranesi en
nokkur voru þó tekin utan Akra-
ness, þar sem það hentaði betur. Var
það sem dæmi atriðið í sjoppunni,
við skoðuðum sjoppurnar á Akra-
nesi en þurftum meira rými og end-
aði atriðið í Þorlákshöfn. Eins var
með húsið sem amma Agnesar bjó í
en þær tökur voru á Seltjarnarnesi,“
segir Birgitta. „Við skoðuðum fleiri
staði sem komu til greina fyrir upp-
tökurnar, meðal annars á Suður-
nesjum, Selfossi og Hveragerði.
En Akranes var alltaf efst á blaði og
vorum við afskaplega ánægð með þá
niðurstöðu,“ segir hún.
Lengi unnið
við framleiðslu
„Ég hef starfað síðastliðin tólf ár
sem framleiðandi og framleiðslu-
stjóri á kvikmyndum, meðal ann-
ars fyrir framleiðslu og útgáfufyr-
irtækið Vintage Pictures sem fram-
leiddi kvikmyndina Svaninn. Þá
hef ég einnig komið að kvikmynd-
um á borð við Ég man þig og nú
síðast Svar við bréfi Helgu, sem
er væntanleg til sýningar á þessu
ári,“ segir Birgitta. Hún var síðan
framleiðslustjóri á sjónvarpsþátta-
röðinni Systraböndum, sem tek-
in var upp í Ólafsvík og er vænt-
anleg í sýningu í sjónvarpi Símans
á þessu ári.
se/ Ljósm. aðsendar.
Það var líf og fjör í flugeldasölu
Björgunarfélags Akraness við Kal-
mansvelli 2 daginn fyrir gamlárs-
dag þegar blaðamaður Skessuhorns
var þar á ferðinni. Fjölskyldur voru
að kaupa flugelda, stjórnuljós og
rótarskot og ljóst að spennu og eft-
irvæntingar gætti í röðum yngri
kynslóðarinnar - og einstaka pabba
einnig. Að sögn björgunarsveitar-
fólks gekk salan vel. Á meðfylgj-
andi mynd er Ásmundur Jónsson
félagi í BA við hinn nýstandsetta
Ford 350 bíl sveitarinnar. Bíllinn er
með þeim öflugri hér á landi, m.a.
á 54 tommu dekkjum, búinn 6,7L
V8 diesel powerstroke mótor og 6
gíra sjálfskiptingu. Hann er nú til
taks til útkalla sveitarinnar við erf-
iðustu aðstæður. Bíllinn var keypt-
ur til landsins fyrir tveimur árum
en nýverið var lokið við breytingar
á honum. Sveitin hefur ekki stofn-
að til skulda vegna kaupa eða breyt-
inga á bílnum og er það ekki síst
að þakka velvilja heimafólks í garð
björgunarfélagsins, eins og sannað-
ist á sölu flugelda og rótarskota fyr-
ir áramótin.
mm
Menningarnefnd Snæfellsbæjar til-
kynnti skömmu fyrir jól hvaða hús
væri Jólahús Snæfellsbæjar. Að
þessu sinni varð Túnberg á Hellis-
sandi fyrir valinu en þar búa hjón-
in Davíð Óli Axelsson og Guðrún
Halla Elíasdóttir. Menningarnefnd
valdi einnig jólaglugga Snæfells-
bæjar, hann var á Laufási á Hell-
issandi. Loks var jólagarðurinn
á Arnarstapa. Piparkökuhúsið að
þessu sinni áttu þær Aníta Ólafs-
dóttir og Arna Eir Örvarsdóttir.
þa
Flugeldasala björgunarsveit-
anna gekk vel
Piparköku-
húsið
gerðu þær
Aníta og
Arna Eir.
Jólahúsið er
á Hellissandi
Jólahúsið Túnberg
á Hellissandi.
Agnes Joy verður framlag Íslands
á Óskarsverðlaunahátíðinni
Framleiðendur voru mjög ánægðir með Akranes sem tökustað.
Skjáskot úr myndinni Agnes Joy, hér sést Agnes með Akrafjallið í baksýn. Stærsti hluti myndarinnar var tekinn upp á Akranesi.