Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Page 26

Skessuhorn - 06.01.2021, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202126 Þórhalla Hulda Baldursdóttir, Kári Viðarsson, Lydía Rafnsdóttir og Sigurður Valdimar Sigurðsson fyr- ir hönd Menningarsjóðsins Feg- urri byggðir afhentu Sjóminjasafn- inu í Sjómannagarðinum á Hellis- sandi veglega gjöf á Þorláksmessu. En stjórn Menningarsjóðsins Feg- urri byggðir ákvað á síðasta ári að allar eignir sjóðsins rynnu óskipt- ar til Sjóminjasafnsins í Sjómanna- garðinum á Hellissandi. Í Sjóminjasafninu eru margvís- legar minjar sem tengjast útgerð áraskipa á liðnum öldum auk gripa og mynda, bátavéla og aflrauna- steina. Þar er einnig endurbyggð þurrabúðin Þorvaldsbúð sem er sú þurrabúð er síðast var búið í á Hellissandi. Vitnar safnið um fjöl- breytt mannlíf og harða lífsbaráttu á Snæfellsnesi í gegnum aldirnar. Sjóminjasafnið hefur verið byggt upp af mikilli elju, þekkingu og metnaði og er uppbyggingin for- svarsmönnum safnsins og byggð- arlaginu öllu til mikils sóma. Menningarsjóðurinn Fegurri byggðir á rætur sínar að rekja til samnings sem gerður var við sam- runa Landsbanka Íslands og Spari- sjóðs Hellissands árið 1975. Til- gangur sjóðsins var að styðja og styrkja menningarmál og fegrun umhverfisins í hinum gamla Nes- hreppi utan Ennis. Sjóðurinn stóð meðal annars fyrir kaupum á úti- listaverkinu Skipið sem reist var á Hellissandi árið 1986 en und- anfarin ár hefur sjóðurinn fyrst og fremst veitt viðurkenningar til fólks sem hefur skarað fram úr á sviði menningar, lista og fegr- unar umhverfisins. Í skipulags- skrá sjóðsins er heimild til að ráð- stafa öllum eignum sjóðsins til að- ila sem vinnur að verkefnum sem falla að markmiðum hans. Það var mat stjórnar að fjármunum sjóðs- ins, 2.760.901 króna, yrði best var- ið með því láta allar eignir sjóðs- ins renna til Sjóminja safnsins og verður sjóðurinn í kjölfarið lagður niður. Til að prýða byggðir Eins og áður segir á Menning- arsjóðurinn Fegurri byggðir sér langa sögu en þann 12. desemb- er árið 1975 var gerður samn- ingur á milli Landsbanka Íslands og Sparisjóðs Hellissands um að bankinn tæki yfir rekstur, eignir og skuldir sparisjóðsins. Í samn- ingnum var ákvæði um að stofnað- ur skyldi menningarsjóður af vara- sjóði sparisjóðsins sem varðveittur yrði á reikningi hjá Landsbankan- um á Hellissandi. Samin var skipu- lagsskrá sem var þó ekki staðfest og var sjóðurinn því ekki formlega stofnaður. Tilgangur menningar- sjóðsins var að veita styrki til fram- fara- og menningarmála í Nes- hreppi utan Ennis. Höfuðmark- mið skyldi vera að prýða og fegra byggðina. Í skipulagsskrá sjóðs- ins kom fram að í stjórn sjóðsins skyldu sitja yfirmaður Landsbank- ans á Hellissandi, oddviti, hrepps- stjóri, sýslunefndarmaður og skólastjóri grunnskóla Neshrepps. Árlega mátti úthluta allt að 80% af árlegum tekjum sjóðsins. Aðr- ar tekjur skyldu leggjast við höf- uðstólinn sem mátti aldrei skerða. Þar sem skipulagsskráin var ekki staðfest voru fjármunirnir áfram geymdir í varasjóði sparisjóðsins. Fyrsti fundur í stjórn varasjóðs- ins var haldinn á Gufuskálum í júlí 1982. Markmið fyrstu stjórnar var að setja upp listaverk á Hellissandi. Eftir að hafa skoðað ýmsa mögu- leika fól sjóðurinn listamanninum Jóni Gunnari Árnasyni það verk- efni að koma með hugmynd og til- lögu að staðsetningu listaverks. úr varð verkið Skipið sem sett var upp árið 1986 og stendur gegnt ráðhúsi Snæfellsbæjar á Hellissandi. Skip- ið er níu metra hátt og um eitt tonn að þyngd og er unnið úr ryð- fríu stáli. Í grein í Dagblaðinu Vísi þann 3. desember 1986 segir Jón Gunnar um vinnu sína við verkið: „Það hefur verið ánægjulegt fyr- ir margra hluta sakir að vinna að skipinu ekki bara vegna þess að viðfangsefnið er heillandi heldur einnig vegna þess að það er svo gaman að vinna fyrir þetta fólk þarna fyrir vestan. Að finna þenn- an lifandi áhuga í 600 manna sjáv- arplássi gefur manni orku og mað- ur verður glaður og fer að trúa á fólkið og framtíðina. Hellissandur er einstakt menningarpláss og mér er sannur heiður að því að vinna fyrir þetta ágæta fólk og eignast listaverk í plássinu.“ Sjóðurinn lagður niður Stjórn Menningarsjóðsins Fegurri byggða kom fyrst saman 12. maí 2011 eftir að Landsbankinn hf. hafði ráðstafað varasjóðunum til sjóðsins. Sýslumaðurinn á Sauðar- króki staðfesti skipulagsskrá fyrir sjóðinn sem byggði að miklu leyti á skipulagsskrá varasjóðs Spari- sjóðs Hellissands. Eignir sjóðs- ins voru litlar og ekki svigrúm til styrkveitinga, enda mátti ekki út- hluta nema hluta af tekjum sjóðs- ins í styrki. Því var farin sú leið að veita viðurkenningar til fólks sem þótti til fyrirmyndar á sviði menn- ingar, lista og fegrunar umhverfis- ins. Undanfarin ár hefur starfsemi sjóðsins dregist saman. Ljóst var að ef sjóðurinn ætti að hafa getu til að veita styrki þyrfti að auka höfuðstól hans verulega, svo sem með fjáröflun sem stjórn sjóðsins var afhuga, enda gæti hún bitn- að á tekjum annarra félaga á Snæ- fellsnesi. Stjórn sjóðsins taldi því að ekki væru fjárhagslegar for- sendur fyrir áframhaldandi starf- semi og tók því ákvörðun á fundi 19. júní 2020, í samræmi við 10. grein skipulagsskrár, að ráðstafa eignum hans til aðila sem vinnur að verkefnum sem falla að mark- miðum hans. Ákveðið var að eign- ir sjóðsins rynnu óskiptar til Sjóm- injasafnsins í Sjómannagarðinum á Hellissandi. Viðurkenningar og styrkir 2011 Smári J. Lúðvíksson fyr- ir skráningu sögulegra minja fyrri hluta 20. aldar með teikningum af byggðinni á Hellissandi og nágrenni á þeim tíma. 2011 Erla Laxdal Gísladóttir og Ár- sæll Ársælsson fyrir jólaskreytingu við Laufás á Hellissandi það ár og árin á undan. 2012 Pálmi B. Almarsson fyrir útgáfu á hljómdisknum Drimbur og áhuga og tryggð við heimabyggðina. 2013 Key Wiggs fyrir áratugastarf við tónlistarkennslu og kórstjórn og Ómari Lúðvíkssyni fyrir stuðn- ing við þá starfsemi. 2013 Reynir Ingibjartsson fyrir gerð og útgáfu landa- og göngu- korta af Snæfellsnesi. 2014 Kári Viðarsson fyrir áhuga og dugnað við að koma á fót leik- húsi, semja leikverk og standa fyr- ir sýningum og tónleikum í Frysti- klefanum á Rifi. 2014 Þór Magnússon fyrir þátt- töku við uppbyggingu og leiðsögn að Vatnshellinum sunnan Purk- hóla undir jökli. 2015 Alda Dís Arnardóttir fyrir góðan árangur á tónlistarsviðinu. 2017 Sjómannasafnið í Sjómanna- garðinum á Hellissandi. Styrkur að fjárhæð 200.000 krónur. 2020 Sjóminjasafnið í Sjómanna- garðinum á Hellissandi. Öllum eignum sjóðsins, 2.760.901 krónu, ráðstafað til safnsins og Menning- arsjóðurinn Fegurri byggðir lagð- ur niður. Stjórn Menningarsjóðsins skipa: Þórhalla Hulda Baldursdóttir, for- maður stjórnar Kári Viðarsson, stjórnarmaður Guðríður Sirrý Gunnarsdóttir, stjórnarmaður Varamenn: Lydía Rafnsdóttir Sigurður Valdimar Sigurðsson. Þórhalla Hulda Baldursdóttir tók saman. Svipmynd frá síðustu úthlutun sjóðsins sem nú hefur verið lagður niður. Ljósm. þa Menningarsjóðurinn Fegurri byggðir styrkir Sjóminjasafnið Síðasta úthlutun sjóðsins og hann lagður niður í kjölfarið

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.