Skessuhorn - 06.01.2021, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202126
Þórhalla Hulda Baldursdóttir, Kári
Viðarsson, Lydía Rafnsdóttir og
Sigurður Valdimar Sigurðsson fyr-
ir hönd Menningarsjóðsins Feg-
urri byggðir afhentu Sjóminjasafn-
inu í Sjómannagarðinum á Hellis-
sandi veglega gjöf á Þorláksmessu.
En stjórn Menningarsjóðsins Feg-
urri byggðir ákvað á síðasta ári að
allar eignir sjóðsins rynnu óskipt-
ar til Sjóminjasafnsins í Sjómanna-
garðinum á Hellissandi.
Í Sjóminjasafninu eru margvís-
legar minjar sem tengjast útgerð
áraskipa á liðnum öldum auk gripa
og mynda, bátavéla og aflrauna-
steina. Þar er einnig endurbyggð
þurrabúðin Þorvaldsbúð sem er
sú þurrabúð er síðast var búið í á
Hellissandi. Vitnar safnið um fjöl-
breytt mannlíf og harða lífsbaráttu
á Snæfellsnesi í gegnum aldirnar.
Sjóminjasafnið hefur verið byggt
upp af mikilli elju, þekkingu og
metnaði og er uppbyggingin for-
svarsmönnum safnsins og byggð-
arlaginu öllu til mikils sóma.
Menningarsjóðurinn Fegurri
byggðir á rætur sínar að rekja til
samnings sem gerður var við sam-
runa Landsbanka Íslands og Spari-
sjóðs Hellissands árið 1975. Til-
gangur sjóðsins var að styðja og
styrkja menningarmál og fegrun
umhverfisins í hinum gamla Nes-
hreppi utan Ennis. Sjóðurinn stóð
meðal annars fyrir kaupum á úti-
listaverkinu Skipið sem reist var
á Hellissandi árið 1986 en und-
anfarin ár hefur sjóðurinn fyrst
og fremst veitt viðurkenningar
til fólks sem hefur skarað fram úr
á sviði menningar, lista og fegr-
unar umhverfisins. Í skipulags-
skrá sjóðsins er heimild til að ráð-
stafa öllum eignum sjóðsins til að-
ila sem vinnur að verkefnum sem
falla að markmiðum hans. Það var
mat stjórnar að fjármunum sjóðs-
ins, 2.760.901 króna, yrði best var-
ið með því láta allar eignir sjóðs-
ins renna til Sjóminja safnsins og
verður sjóðurinn í kjölfarið lagður
niður.
Til að prýða byggðir
Eins og áður segir á Menning-
arsjóðurinn Fegurri byggðir sér
langa sögu en þann 12. desemb-
er árið 1975 var gerður samn-
ingur á milli Landsbanka Íslands
og Sparisjóðs Hellissands um að
bankinn tæki yfir rekstur, eignir
og skuldir sparisjóðsins. Í samn-
ingnum var ákvæði um að stofnað-
ur skyldi menningarsjóður af vara-
sjóði sparisjóðsins sem varðveittur
yrði á reikningi hjá Landsbankan-
um á Hellissandi. Samin var skipu-
lagsskrá sem var þó ekki staðfest
og var sjóðurinn því ekki formlega
stofnaður. Tilgangur menningar-
sjóðsins var að veita styrki til fram-
fara- og menningarmála í Nes-
hreppi utan Ennis. Höfuðmark-
mið skyldi vera að prýða og fegra
byggðina. Í skipulagsskrá sjóðs-
ins kom fram að í stjórn sjóðsins
skyldu sitja yfirmaður Landsbank-
ans á Hellissandi, oddviti, hrepps-
stjóri, sýslunefndarmaður og
skólastjóri grunnskóla Neshrepps.
Árlega mátti úthluta allt að 80%
af árlegum tekjum sjóðsins. Aðr-
ar tekjur skyldu leggjast við höf-
uðstólinn sem mátti aldrei skerða.
Þar sem skipulagsskráin var ekki
staðfest voru fjármunirnir áfram
geymdir í varasjóði sparisjóðsins.
Fyrsti fundur í stjórn varasjóðs-
ins var haldinn á Gufuskálum í júlí
1982. Markmið fyrstu stjórnar var
að setja upp listaverk á Hellissandi.
Eftir að hafa skoðað ýmsa mögu-
leika fól sjóðurinn listamanninum
Jóni Gunnari Árnasyni það verk-
efni að koma með hugmynd og til-
lögu að staðsetningu listaverks. úr
varð verkið Skipið sem sett var upp
árið 1986 og stendur gegnt ráðhúsi
Snæfellsbæjar á Hellissandi. Skip-
ið er níu metra hátt og um eitt
tonn að þyngd og er unnið úr ryð-
fríu stáli. Í grein í Dagblaðinu Vísi
þann 3. desember 1986 segir Jón
Gunnar um vinnu sína við verkið:
„Það hefur verið ánægjulegt fyr-
ir margra hluta sakir að vinna að
skipinu ekki bara vegna þess að
viðfangsefnið er heillandi heldur
einnig vegna þess að það er svo
gaman að vinna fyrir þetta fólk
þarna fyrir vestan. Að finna þenn-
an lifandi áhuga í 600 manna sjáv-
arplássi gefur manni orku og mað-
ur verður glaður og fer að trúa á
fólkið og framtíðina. Hellissandur
er einstakt menningarpláss og mér
er sannur heiður að því að vinna
fyrir þetta ágæta fólk og eignast
listaverk í plássinu.“
Sjóðurinn lagður niður
Stjórn Menningarsjóðsins Fegurri
byggða kom fyrst saman 12. maí
2011 eftir að Landsbankinn hf.
hafði ráðstafað varasjóðunum til
sjóðsins. Sýslumaðurinn á Sauðar-
króki staðfesti skipulagsskrá fyrir
sjóðinn sem byggði að miklu leyti
á skipulagsskrá varasjóðs Spari-
sjóðs Hellissands. Eignir sjóðs-
ins voru litlar og ekki svigrúm til
styrkveitinga, enda mátti ekki út-
hluta nema hluta af tekjum sjóðs-
ins í styrki. Því var farin sú leið að
veita viðurkenningar til fólks sem
þótti til fyrirmyndar á sviði menn-
ingar, lista og fegrunar umhverfis-
ins. Undanfarin ár hefur starfsemi
sjóðsins dregist saman. Ljóst var
að ef sjóðurinn ætti að hafa getu
til að veita styrki þyrfti að auka
höfuðstól hans verulega, svo sem
með fjáröflun sem stjórn sjóðsins
var afhuga, enda gæti hún bitn-
að á tekjum annarra félaga á Snæ-
fellsnesi. Stjórn sjóðsins taldi því
að ekki væru fjárhagslegar for-
sendur fyrir áframhaldandi starf-
semi og tók því ákvörðun á fundi
19. júní 2020, í samræmi við 10.
grein skipulagsskrár, að ráðstafa
eignum hans til aðila sem vinnur
að verkefnum sem falla að mark-
miðum hans. Ákveðið var að eign-
ir sjóðsins rynnu óskiptar til Sjóm-
injasafnsins í Sjómannagarðinum á
Hellissandi.
Viðurkenningar
og styrkir
2011 Smári J. Lúðvíksson fyr-
ir skráningu sögulegra minja fyrri
hluta 20. aldar með teikningum af
byggðinni á Hellissandi og nágrenni
á þeim tíma.
2011 Erla Laxdal Gísladóttir og Ár-
sæll Ársælsson fyrir jólaskreytingu
við Laufás á Hellissandi það ár og
árin á undan.
2012 Pálmi B. Almarsson fyrir útgáfu
á hljómdisknum Drimbur og áhuga
og tryggð við heimabyggðina.
2013 Key Wiggs fyrir áratugastarf
við tónlistarkennslu og kórstjórn
og Ómari Lúðvíkssyni fyrir stuðn-
ing við þá starfsemi.
2013 Reynir Ingibjartsson fyrir
gerð og útgáfu landa- og göngu-
korta af Snæfellsnesi.
2014 Kári Viðarsson fyrir áhuga
og dugnað við að koma á fót leik-
húsi, semja leikverk og standa fyr-
ir sýningum og tónleikum í Frysti-
klefanum á Rifi.
2014 Þór Magnússon fyrir þátt-
töku við uppbyggingu og leiðsögn
að Vatnshellinum sunnan Purk-
hóla undir jökli.
2015 Alda Dís Arnardóttir fyrir
góðan árangur á tónlistarsviðinu.
2017 Sjómannasafnið í Sjómanna-
garðinum á Hellissandi. Styrkur að
fjárhæð 200.000 krónur.
2020 Sjóminjasafnið í Sjómanna-
garðinum á Hellissandi. Öllum
eignum sjóðsins, 2.760.901 krónu,
ráðstafað til safnsins og Menning-
arsjóðurinn Fegurri byggðir lagð-
ur niður.
Stjórn
Menningarsjóðsins
skipa:
Þórhalla Hulda Baldursdóttir, for-
maður stjórnar
Kári Viðarsson, stjórnarmaður
Guðríður Sirrý Gunnarsdóttir,
stjórnarmaður
Varamenn:
Lydía Rafnsdóttir
Sigurður Valdimar Sigurðsson.
Þórhalla Hulda Baldursdóttir
tók saman.
Svipmynd frá síðustu úthlutun sjóðsins sem nú hefur verið lagður niður. Ljósm. þa
Menningarsjóðurinn Fegurri byggðir
styrkir Sjóminjasafnið
Síðasta úthlutun sjóðsins og hann lagður niður í kjölfarið