Skessuhorn - 20.01.2021, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 2021 29
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Ert þú ekki
örugglega
áskrifandi?
Nýfæddir Vestlendingar
AtvinnA
Á döfinni
8. janúar. Drengur. Þyngd: 3.408
gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Beata
Maria Szymichowska og Michal
Roman Szymicowski, Stykkis-
hólmi. Ljósmóðir: Unnur Berglind
Friðriksdóttir.
Smáauglýsingar
Nú þegar Bankasýslan, nefnd hvers
forysta er nátengd Sjálfstæðis-
flokknum, hefur ákveðið að selja
Íslandsbanka, þá væri gott fyrir al-
menning að tækifærið væri notað til
að skifta bönkunum upp. Aðskilja
fjárfestingarbanka starfsemina frá
viðskiptabankastarfseminni, áður
en sala fer fram. Þannig myndu
hluthafar einir bera ábyrgð á fjár-
festingarþættinum og taka skellinn
þegar illa gengur.
Hrunið sýndi okkur að það var
fjárfestingarstarfsemin sem setti
bankana og reyndar líka sparisjóð-
ina á hausinn.
Nú þegar sjá má að braskið er far-
ið að endurtaka sig. Íslandsbanki og
Arion banki styðja nú skuldsetta yf-
irtöku á Skeljungi en aðalgerendur
í brallinu eru gamlir kunningjar úr
hruninu. Aðferðin er gamalkunn,
kaupa félagið á verði langt undir
verðmati, taka lán hjá Arion og Ís-
landsbanka, selja hluta starfsemin-
ar og greiða lánið, kanski bara að
hluta. Og þegar þetta tókst ekki í
fyrstu atrennu þá kom Stefnir sjóðs-
félag Arionbanka til hjálpar og seldi
sína hluti í Skeljungi til yfirtöku-
félagsins á verði sem líklega er vel
undir raunvirði hlutabréfanna.
Það er mikil óvissa um verðmæti
hluta í Íslandsbanka því verðmæti
útlána á tímum Covid er óvissu háð.
Því er líklega slæmt að selja nú um
stundir, en hag-
stætt að kaupa, því
óvissa lækkar verðið. Allavega ætti
að tappa af eigin fé bankans fyrir
sölu til þess að takmarka tjón nú-
verandi eigenda.
Það er líklegt að áhugi forystu
Sjálfstæðisflokksins á að selja sé sú
að tímasetningin henti kaupendum
vel, hægt verði að fá Íslandsbanka á
hagstæðu verði.
En líklega munu ráðherrar og
þingmenn VG og Framsóknar meta
ráðherrastólana í nokkra mánuði
til viðbótar meira en hagsmuni al-
mennings í landinu.
Borgarnesi, 11. janúar 2021
Guðsteinn Einarsson.
Fjárfestingarbankar -
viðskiptabankar?
13. janúar. Drengur. Þyngd: 3.924
gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Díana
Brá Bragadóttir og Arnar Gylfi Jó-
hannesson, Borgarnes. Ljósmóð-
ir: Elísabet Harles / Ilmur Björg
Einarsdóttir
18. desember. Stúlka. Þyngd:
4.272 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar:
Sigurbjörg Halldórsdóttir og Birk-
ir Örn Arnarson, Mosfellsbæ. Ljós-
móðir: G. Erna Valentínusdóttir.
Óska eftir vinnu í Hvalfjarðarsveit-
inni, á Akranesi eða Borgarnesi.
Hlutastarf eða fullt starf. Dagvinna
eða vaktavinna. Tímabúndið eða
til langtíma. Er til í flest allt. Frekari
upplýsingar um mig fæst í gegn-
um tölvupósti. 67dagny@gmail.
com
Til leigu
Til leigu snyrtileg íbúð að Suður-
götu 46, Akranesi. Íbúðin er u.þ.b.
100 m2, 4ra herb. (3 svefnher-
bergi). Uppl. í s. 864-3000 og í net-
fangi gghus@gghus.is.
LEiGUMARKAÐUR
Snemma í desember var auglýst
eftir umsóknum úr Lista- og menn-
ingarsjóði Stykkishólms en um-
sóknarfrestur rann út 4. janúar síð-
astliðinn. Alls bárust 14 umsókn-
ir sem stjórn Lista- og menningar-
sjóðs fór yfir á fundi 6. janúar og
ákváðu úthlutun úr sjóðnum. Eftir-
farandi fá styrk:
Hjördís Pálsdóttir – Heima-
tónleikar í Stykkishólmi 150.000
kr fyrir þrenna tónleika, Norska
húsið – Menningarviðburðir –
100.000 kr, Norska húsið – Skott-
húfan – 100.000 kr, Skógræktar-
félag Stykkishólms – Skoðaðu
skóginn – 200.000 kr, Anna Mel-
steð – Saga og menning Stykkis-
hólms – 200.000 kr, Anna Melsteð
– Tilraunastofa Árna Thorlacius –
100.000 kr, Hollvinasamtök Dval-
arheimilisins í Stykkishólmi – Fyrir
þorrablót og/eða annan sambæri-
legan viðburð – 100.000 kr, Kirkju-
kórinn – Tónleikahald – 150.000
kr og Heimir Laxdal – 200.000 kr.
Sjóðurinn ákvað að styrkja tónleika-
hald um kr. 50.000 sem skipist á
tvenna brúsapallstónleika. Þá verða
tónleikar á Sjómannadag styrkt-
ir um kr. 75.000, Blúshátíðin fær
75.000 kr, FAS – Félag atvinnulífs
í Stykkishólmi – Ýmsir viðburðir –
300.000 kr, Skeljahátíð fær 300.000
kr og útivistarhelgar og jólaþorpið
100.000 krónur fyrir hvora hátíð.
Loks fær júlíana – Hátíð sögu og
bóka – 200.000 kr. arg
Pennagrein
Úthlutun úr Lista-
og menningarsjóði
Stykkishólms
Frá Skottuhúfunni síðasta sumar. Ljósm. úr safni
Akranes –
Laugardagur 23. janúar
Þorrablót Skagamanna í streymi.
Sjá nánar auglýsingu hér í blaðinu.
Stykkishólmur –
laugardagur 23. janúar
Kvennalið Snæfells í körfu tekur
á móti Breiðabliki í íþróttahúsinu
í Stykkishólmi. Leikurinn hefst kl.
16:00.
Borgarnes –
laugardagur 23. janúar.
Skallagrímskonur fá Fjölni í heim-
sókn í Borgarnes. Leikurinn hefst
kl. 16:30.
Borgarnes –
mánudagur 25. janúar.
Skallagrímur fær Selfyssinga í heim-
sókn í Borgarnes. Leikurinn hefst kl.
19:15.
Stykkishólmur –
miðvikudagur 27. janúar.
Snæfellskonur fá Fjölniskonur í
heimsókn. Leikurinn hefst kl. 18:15.
Borgarnes –
miðvikudagur 27. janúar.
Skallagrímskonur fá Hauka í heim-
sókn í Borgarnes. Leikurinn hefst kl.
19:15.