Morgunblaðið - 20.02.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Hlaupum hraðar
- slítum fjötrana og sækjum tækifærin
Landsmönnum öllum er boðið á Iðnþing 2021 í beinni
útsendingu fimmtudaginn 4. mars kl. 13.00–14.30.
Það er mikilvægt að leggja línur og hvetja til þess að störfum verði fjölgað og verðmæti
aukin. Á Iðnþingi 2021 verður kastljósinu beint að þeim hindrunum sem ryðja þarf úr
vegi á næstu 12 mánuðum til að mögulegt verði að sækja þau tækifæri sem geta
skapað auknar gjaldeyristekjur og aukið nauðsynlega viðspyrnu í efnahagslífinu.
IÐNÞING 2021
Skráning á si.is
Yfirskattanefnd hefur snúið við
þeirri niðurstöðu ríkisskattstjóra að
kostnaður við grafínhúðun bifreiðar
félli ekki undir átakið Allir vinna og
eigandi bílsins ætti því ekki rétt á
endurgreiðslu virðisaukaskatts
vegna bílaviðgerða.
Eigandi bílsins kærði ákvörðun
skattsins til yfirskattanefndar sem
féllst á kröfu kæranda um að hann
ætti rétt á endurgreiðslu virðis-
aukaskatts vegna vinnu við grafín-
lakkvarnarmeðferð á fólksbifreið
hans. Þótti slík yfirborðsmeðferð
frekast verða lögð að jöfnu við al-
mennar lakkviðgerðir bifreiða sem
telja yrði að féllu undir lagaheimild
til endurgreiðslu virðisaukaskatts.
Féllst yfirskattanefnd ekki á sjón-
armið ríkisskattstjóra að um væri að
ræða lið í reglulegri umhirðu bílsins
eða minni háttar viðhald og skv.
reglugerð um endurgreiðslur virð-
isaukaskatts fáist virðisaukaskattur
ekki endugreiddur af slíkri vinnu.
Fram kemur í úrskurði yfir-
skattanefndar að eigandinn greiddi
170 þúsund kr. fyrir lakkvarnar-
meðferðina á bifreiðinni og kom
fram í kærunni að skv. lýsingu selj-
anda þjónustunnar feli meðferðin í
sér meiriháttar lagfæringu á lakk-
yfirborði bifreiða sem síðan sé varið
með ásetningu lakkvarnarhúðar.
Taki meðferðin tvo til þrjá daga. Þá
sagði hann að starfsmenn skattsins
hefðu fullyrt að vinna við lakkvörn
og lagfæringar á rispum félli undir
átakið „Allir vinna“ og það hefði haft
áhrif á þá ákvörðun hans að kaupa
þjónustuna.
Lögð að jöfnu við lakkviðgerð
Í niðurstöðu yfirskattanefndar
kemur fram ætla verði að ávinningur
af slíkri meðferð sé einkum aukið
slitþol lakkyfirborðs bifreiðar og
skv. upplýsingum á heimasíðu selj-
anda sé veitt fimm ára ábyrgð á með-
ferðinni. Telja verði að slík yfir-
borðsmeðferð verði frekast lögð að
jöfnu við almennar lakkviðgerðir bif-
reiða sem falli undir umrætt laga-
ákvæði um endurgreiðslu virðis-
aukaskattsins.
Ekki verði talið að um hafi verið að
ræða lið í reglulegri umhirðu bifreið-
ar eða minniháttar viðhaldi hennar.
Féllst nefndin því á að eigandinn
ætti rétt á endurgreiðslu virðisauka-
skatts að fjárhæð 32.903 krónur.
omfr@mbl.is
Meðferðin ekki talin vera viðhald
Yfirskattanefnd sneri við úrskurði skattsins og taldi bíleiganda eiga rétt á endurgreiðslu virðisauka-
skatts af lakkvarnarmeðferð á fólksbifreið Féll ekki undir reglulega umhirðu eða minni háttar viðhald
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílar Endurgreiðsluheimildin nær
til vinnu við viðgerðir bifreiða.
Ágreiningur um tollflokkun á inn-
fluttu lífrænt ræktuðu tei sem
blandað var hvítvíni var borinn
undir yfirskattanefnd með kæru á
síðasta ári. Kærandinn krafðist
þess að ákvörðun tollgæslustjóra
um að drykkurinn félli undir til-
tekið tollskrárnúmer yrði felld úr
gildi og yfirskattanefnd úrskurð-
aði vöruna í nýjan tollflokk sem
hæfði henni. Nefndin féllst ekki á
það.
Kærandinn í málinu óskaði í maí
sl. eftir bindandi áliti tollyfirvalda
á tollflokkun drykkjarins Copen-
hagen Sparkling Tea. Um væri að
ræða lífræna vöru án viðbætts
sykurs, en þrjár tegundir hennar
innihéldu 5% áfengi sem kæmi úr
hvítvíni. Tollgæslustjóri gaf bind-
andi álit um undir hvaða tollskrár-
númer varan félli „sem blanda
gerjaðrar drykkjarvöru og óáfengr-
ar drykkjarvöru“. Kærandinn taldi
þetta hins vegar ranga tollflokkun
og kærði hana til nefndarinnar.
Kærandi og tollgæslustjóri
færðu ítarleg rök fyrir afstöðu
sinni og komst yfirskattanefnd ný-
lega að þeirri niðurstöðu að teið
væri flokkað rétt með ákvörðun
tollgæslustjóra undir tollskrár-
númer yfir vörur með meira en
2,25% af hreinum vínanda að rúm-
máli. Var kröfum kærandans því
hafnað.
Deilt um flokkun á gerjuðu tei
YFIRSKATTANEFND HAFNAÐI KÆRU VEGNA ÁLITS TOLLSINS