Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 13

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 13
V. flokkur I’róttar 1949. Aflari röð frá vinstri: Ómar Magnússon, Ólafur Brynjólfsson, Lárus Jörgcnsen, Róbert Hallclórsson, Kristinn Ingvar Jónsson, Guðmundur Guðmundsson, Víglundur Þorsteinsson. Fremri röð frá vinstri: Brynjólfur Ásgeir Guðbjörnsson, Kristján Ág. Ögmundsson, Friðrik Jónsson, Reinhardt Reinhardtsson, Haukur Hafsteinn Þorvaldsson. reynandi væri að fá eitthvert starfsmannafélag til keppni við okkur. Fiskhöllin kom til greina vegna þess að Halldór var þar starfsmaður. Sagðist Halldór skyldi færa þetta í tal við drengina sem þar ynnu. En ég að kanna, hvort um nokkurn áhuga væri að ræða hjá Holtverjum og Sker- firðingum. Hittumst við aftur kvöldið næsta á eftir og sagði Halldór mér, að Fiskhöllin væri fús til keppni. Mínir piltar voru einn- ig til reiðu og var ákveðið að leikurinn skyldi fram fara í næstu viku. Fengum við Há- skólavöllinn lánaðan. Bæði liðin tóku að æfa af kappi. — Fiskhallarmenn æfðu sig á Melunum fyrir norðan Vöku- braggann sem þar stóð, og héldu síðan lokaæfingu á 4. fl. vellinum á Grímsstaðaholti. En sunnanmenn æfðu sig ein- göngu á Grímsstaðaholtsvell- inum. Svo rann upp hinn mikli dagur, er liðin skyldu eigast við. Þriðjudagskvöldið 26. júlí. Dómara höfðum við fengið, og var hann Haukur Bjarnason úr Fram. Leikurinn hófst. Brátt kom í ljós, að drengirnir sunnan að voru Fiskhallarmönnunum yfirsterkari og lauk leiknum með algjörum sigri þeirra, 6 mörk gegn 0. Ekkert mark- vert gerðist í leiknum, nema ef vera skyldi það, að ég nef- brotnaði í byrjun leiks og ger- ir það leikinn mér ef til vill minnisstæðari! Sama kvöldið heimsótti ég Halldór. Vorum við mjög ánægðir yfir þeim áhuga sem drengirnir höfðu sýnt og vorum ákveðnir í að halda áfram æfingaleikjum við ýms starfsmannafélög í bænum, svo drengirnir sunn- an af Grímsstaðaholti og Skerjafirði gætu að nýju komið fram sem ein heild og eflzt vinátta og samheldni þeirra á milli. Og ekki stóð á því. Fisk- hallarmenn báðu um annan leik. Umsamið var, að breyta liðinu, svo leikurinn yrði sem jafnastur. Fór hann fram fimmtudagskvöldið 28. júlí og lauk með sigri Fiskhallarinn- ar, 2:1. Næsta lið sem við skoruðum á, var Hreyfill. Fengum við Háskólavöllinn lánaðan og átti leikurinn að fara fram fimmtudagskvöld- ið 4. ágúst. Við komum sam- an til æfinga á Grímsstaða- holtsvellinum áður en sá leik- ur færi fram. Eftir æfinguna ræddum við um nauðsyn þess að liðið kæmi fram í eins bún- ing og um tilboð Ólafs Þor- leifssonar í Haraldarbúð að útvega okkur búninga. Á- kváðu allir að kaupa af hon- um ljósbláar skyrtur og hvít- ar buxur, þar sem útlit væri fyrir áframhaldandi æfinga- leikjum. Yngri drengirnir fylgdust af sýnilegum áhuga með þeim eldri og báðu okkur Halldór að koma einnig á æfingaleikj- Afmælisblað ÞRÓTTAR 5

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.