Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 44
Aðalsteinn Guðmundsson
Guðmundsson. Hann gaf fé-
laginu 32 fallega og vandaða
bridgebakka og tilheyrandi
og gerði okkur þar með kleift
að fjölmenna til keppni.
Fyrsta mót sem haldið var
fór fram 12. nóv. 1951. Þátt-
takendur voru 28 alls. Sigur-
vegarar urðu bræðurnir
Gunnar og Ólafur Skafcasyn-
ir. Síðan hafa farið fram tvær
tvenndarkeppnir. Sigurveg-
arar ’52 urðu Kristján Jóns-
son og Þorbjörn Þórðarson.
1953 sigruðu Ingólfur Ólafs-
son og Klemens Björnsson.
Úrslitin í einmenningskeppn-
inni hafa orðið þessi: í 1.
keppninni ’52 sigraði Krist-
ján Jónsson, ’53 sigraði Gísli
Guðmundsson, ’54 Ingólfur
Ólafsson núverandi meistari.
Sveitarkeppni hefur farið
alls 4 sinnum. Fyrsta keppn-
in fór fram ’51. Sigraði þá
sveit Aðalsteins Guðmunds-
sonar. 1952 sigraði sveit
Gunnlaugs Þorsteinssonar
með 12 stigum. Sveit Aðal-
steins varð með sama stiga-
fjölda, en við stigaútreikn-
inga varð sveit Gunnlaugs
hlutskarpari. Sveit Guðmund-
ar H. Guðmundssonar sigr-
aði árið 1953. Hlutskörpuöt
’54 varð sveit Einars Jónsson-
ar núverandi formanns fé-
lagsins.
Þátttaka í þessum bridge-
keppnum hefur verið mjög
góð og farið stöðugt vaxandi,
hefur mest orðið yfir 60
manns. Mjög mikið var um
þátttakendur úr öðrum félög-
um og fór vel á með þeim og
Þróttverjum.
Fyrstu stjórn deildarinnar
1950 skipuðu Aðalsteinn Guð-
mundsson formaður, Eyjólfur
Jónsson og Jens Tómasson.
Formenn hafa síðan verið
Aðalsteinn Guðmundsson
aftur 1951, Magnús V. Pét-
ursson ’52 og 53. Núverandi
stjórn skipa Arnór Óskars-
son formaður, Aðalsteinn
Guðmundsson og Ólafur
Skaftason meðstjórnendur.
Fyrstu árin fóru þessar
keppnir fram 1 U.M.F.G-skál-
anum. Aðstæður voru ekki
beint góðar en samt tókst
þetta allt vel, og er það fyrst
og fremst Haraldi Snorra-
syni að þakka. Velgengni
félagssamtaka byggist fyrst
og fremst á slíkum mönnum.
Þróttur hefur átt því láni að
fagna að eiga nokkra slíka
menn og því getum við sagt
með sanni að í félagsstarf-
seminni erum við sigurveg-
arar, þó sigrarnir á leikvelli
séu enn ekki miklir, og getum
við því horft bjartsýnir til
framtíðarinnar.
3S Afmœlisblað ÞRÓTTAR