Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 28
fí R t'. T A R NORÐFJÖRS:
Knattspyrnuferill Þróttar
Árið 1950 byrjar saga Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar sem við-
urkennds íþróttafélags innan
I.S.I., en þá um sumarið varð það
löglegur aðili sambandsins, en þó
svo seint að það missti af vormot-
unum, nema í 4. flokki Var Þrótt-
ur skráður til keppni 1 öllum
knattspyrnuleikjum seinni hluta
sumarsins. Síðan hefur félagið
verið þátttakandi í flestöllum
knatttspyrnumótum, nema í
meistaraflokki, en þar er það til
þess að gera nýlega byrjað þátt-
töku. Hefur Þróttur alls leikið um
170 leiki við 8 félög á mótum
innan Í.S.Í., auk fjölda æfinga-
og gestaleikja.
Ekki höfum við unnið marga
glæsilega sigra, en Þróttur hefur
hlotið það í vöggugjöf sem er
hverju félagi nauðsynlegt, öflugt
félagslíf og samheldni félaganna.
Hér fer á eftir yfirlit allra ald-
ursflokka félagsins í knattspyrnu.
IV. flokkur
Þróttur byrjaði knattspyrnu-
feril sinn innan Í.S.Í. með þátt-
töku í vormóti IV. flokks 1950.
Öllum að óvörum sýndu dreng-
irnir mikla snerpu og sigurvilja,
enda höfnuðu þeir í 2. sæti. Á
haustmótinu urðu þeir einnig nr.
2. 30. ágúst sama ár buðum við
heim Haukum í Hafnarfirði og
Grétar Norðfjörð
unnu Haukar 2—0. Eftir leikinn
bauð Þróttur báðum liðunum til
kaffidrykkju að Hótel Garði Hélt
Halldór Sigurðsson þáverandi
formaður ræðu og þakkaði Hafn-
firðingum komuna. Um haustið
bauð Þróttur IV. fl. í kaffi-
drykkju að Hótel Garði. Halldór
Sigurðsson hélt þar einnig ræðu
og gat þess að nýtt mundi það í
sögu knattspyrnuíþróttarinnar í
höfuðstaðnum, að svona mikið
væri haft við IV. fl. En Þróttur
vildi sýna það í verki, að hann
kynni að meta dugnað og áhuga
drengjanna sinna, enda væri
framtíð félagsins byggð á yngri
flokkunum.
Sumarið 1951 byrjaði einnig
vel. Þróttur varð nr. 3 í A-móti
um vorið. K.R.R hafði komið á
B-móti til þess að auka þátttök-
una og varð Þróttur nr. 3 á mót-
inu.
Á haustmótinu sigraði Þróttur
eftir skemmtilegan úrslitaleik við
Val, sem lauk með sigri Þróttar
3:1. Þetta var fyrsti mótssigur
Þróttar. Eftir leikinn bauð Þrótt-
ur báðum liðunum til kaffi-
drykkju að Hótel Garði og voru
þar fluttar margar ræður af báð-
um aðilum.
Þetta sumar var mikil sam-
vinna á milli Þróttar og Vals og
var það að þakka Frímanni
Helgasyni og þáverandi þjálfara
Vals, Englendingnum John Finch
og Halldóri, Eyjólfi og William
Shirreffs. Voru fastir leikir einu
sinni í viku allt sumarið milli
Þróttar og Vals og fengu allir sem
æfðu tækifæri til þess að keppa
fyrir félag sitt.
Sumarið 1952 stóðu drengirnir
sig vel, þótt ekki tækist þeim að
sigra neitt mót. Þá um sumarið
fór IV. flokkur í keppnisför til
Akraness Lagt var af stað í blíð-
skaparveðri með Faxaborginni.
Þegar til Akraness kom, voru
þeir Axel Andrésson, sendikenn-
ari Í.S.Í., og hinn landsþekkti
knattspyrnusnillingur Guðjón
20 Afmœlisblað ÞRÓTTAR