Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 29

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 29
IV. flokkur Þróttar 1949. Frerasta röð frá vinstri: Halldór Halklórsson, Ró- bert Halldórsson, Ómar Magnússon, Gunnar Guðjónsson, Jón Magnússon, Ómar Jónsson, Björn Pétursson, Víglundur Þorsteinsson, Kristján Kjartans- son. Miðröð frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson, Óskar Jónsson, Þórarinn Lárusson, Eyjólfur Halldórsson, Birgir Björgvinsson, Guðbjörn Ingvarsson, Þórir Ásgeirsson, Kristján Guðmundsson, Rafn Thorarensen, Eðvard Geirsson. Sólvin Kristjánsson. Efsta röð frá vinstri: Haukur Lórans, Ægir Benedikts- son, Svavar Magnússon, Kristján Reinhardtsson, Eðvard Hjaltason, Jónas Björgvinsson, Ólafur Erlendsson, Kristinn Gústafsson, Einar Ingvarsson, Jón Ásgeirsson, Birgir Berndsen. Finnbogason staddur á bryggj- unni til þess að taka á móti hópn- um. Þróttur bauð flokknum upp á hádegisverð á Hótelinu. Kl. 2 hófst leikurinn og sigruðu Skagamenn. 1:0, eftir tvísýnan leik. Eftir leikinn sátu drengirn- ir kaffiboð er Í.B.A. bauð til. Ilalldór Sigurðsson þakkaði Ak- urnesingum fyrir hinar glæsilegu móttökur og Axel Andrésson þakkaði Þrótti komuna. Eftir kaffidrykkjuna var hópnum sýndur bærinn. Um kvöldið var lagt af stað heimleiðis með Faxa- borg, eftir ógleymanlega för til knattspyrnubæjarins góða. í för- inni voru 26 manns, þar af 18 dregnir. Fararstjórar voru William Shirreffs og Eyjólfur Jónsson. Sumarið 1953 er lélegasta ár í sögu IV. fl. Drengirnir sem tóku við af hinum eldri voru of ungir, og máttu sín ekki gegn eldri drengjum. í ár stóðu þeir sig vel og ef þeir æfa vel mega hin fé- lögin passa sig á þeim næsta ár. Þjálfun IV. fl. hafa margir á- hugasamir félagar annazt frá byrjun. Fyrstur þeirra var Gunn- ar Eyland, síðan William Shirr- effs, Agnar Jörgensen og núver- andi þjálfarar eru bræðurnir Gunnar og Magnús Péturssynir. Einnig hafa þeir Halldór Sigurðs- son og Eyjólfur Jónsson unnið ómetanlegt starf í þágu flokksins. III. flokkur Þriðji flokkur fór tvær keppn- isferðir til Keflavíkur, sumurin 1950 og 1951 og tapaði í bæði skiptin. Þróttur hefur oft átt marga ágæta drengi í þessum aldursflokki. En erfitt hefur reynzt að halda flokknum jafn- sterkum, þar eð margir af efni- legustu drengjunum hafa hætt. Sjórinn hefur heillað þá flesta og margir af hinum góðu IV. fl. drengjum hafa einnig hætt, er upp í III. fl. kom af sömu ástæð- um. Þetta er mikið tjón fyrir ungt félag, sem hefur fullan hug á því að vinna sig upp. Þó hefur Þróttur komið oft á óvörum með sterkt lið og unnið marga leiki. Saga III. fl. hefur ekki verið sigrum stráð, og hún hefur oft valdið velunnurum og forustu- mönnum félagsins vonbrigðum, vegna hinna tíðu skarða í liðinu. í vetur sem leið var tekin upp sú nýbreytni að hafa innanhúsæf- ingar fyrir III. fl. Var það mjög örvandi, eins og sést bezt á því, að drengirnir hafa reynzt hinum Reykjavíkurfélögunum mjög' hættulegir og er mér óhætt að fullyrða, að þetta lið sé sterkasta III. fl. lið sem Þróttur hefur átt, og ég vona að félagið megi njóta hæfileika piltanna í framtíðinni, því við höfum ekki efni á að missa svona góða drengi. Unnið er nú að því að III. fl. Þróttar geti farið til Noregs næsta sum- ar, því við viljum gera eitthvað fyrir drengina. Hefur þegar verið skipuð nefnd, til þess að athuga Afmœlisblað ÞRÓTTAR 21

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.