Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 24

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 24
Viðtal við Guðbjörn Jónsson Styrkur Þróttar er ógcett félagslíf — Er Þróttur fyrsta fé- lagið sem þú þjálfar? — Nei, ég hef kennt í Keflavík, á Akureyri, í Hafn- arfirði og lítilsháttar hjá mínu góða og gamla félagi, K. R. — Hvernig líkar þér þjálf- arastaðan ? — Mér fellur hún prýði- lega. I vetur þjálfaði ég alla flokka Þróttar, en nú eftir að við byrjuðum að að æfa úti, hef ég meistaraflokk, fyrsta flokk og annan flokk. Mér þótti verst að þurfa að sleppa hendinni af 3. og 4. flokki, þai' eru margir dugmiklir og efni- legir drengir, en þar sem ég leik með K. R., þarf ég ein- hvern tíma til að æfa mig. Gunnar Pétursson hefur tek- ið að sér að æfa 4. flokk og Sigurgeir Bjarnason 3. flokk. Þar álít ég að Þróttur hafi unnarar Knattspyrnufélags- ins Þróttar! Ég veit, að ykkur er það eins vel ljóst og okkur, sem nú sitjum í stjórn félags- ins, hvað hér er í húfi, að vel takist. — Hér liggur við framtíð og gengi félagsins. Þess vegna heiti ég á ykkur öll að styðja að framgangi þessa nauðsynjamáls. For- eldrar og allur almenningur i 16 Ajmœlisblað ÞRÓTTAR Guðbjörn Jónsson núverandi þjálfari Þróttar. tekið rétta stefnu í þjálfunar- málunum, því engum er bet- ur treystandi en Þrótturum sjálfum til að ala upp sína menn. Vona ég að fleiri knatt- spyrnumenn í Þrótti fari að dæmi Sigurgeirs og Gunnars Skerjafirði, Grímsstaðaholt- inu og Skjólunum, hjálpið til að búa æskunni á þessum svæðum veglegan samastað til hollra tómstundaiðkana. Fram til sigurs fyrir tak- markinu, sem er: Fullkomið íþróttasvæði og félagsheimili fyrir Knattspyrnufélagið Þrótt. Einar Jónsson. og hjálpi félagi sínu til að ala upp góða knattspyrnumenn. Þá líða ekki mörg ár þangað til Þróttur verður orðinn jafnoki hinna Reykjavíkurfé- laganna. — Hvernig hefur þér líkað við Þróttara sem nemendur? — Undantekningarlaust vel. Þeir eru fullir af áhuga og hafa yfirleitt mætt vel á æf- ingum. Það er gott að stjórna þeim, því þeir eru vel sam- vinnuþýðir. Þessir kostir Þróttara hafa stuðlað að því að gera mér þjálfarastarfið skemmtilegt og létt. — Hvað heldur þú um þetta ár? — Eg á ekki von á neinum meiri háttar sigrum. Þróttur er nýtt félag og á þar að auki við gömul og reynd félög að etja. Þó álít ég að breiddin verði meiri hjá félaginu á þessu ári en nokkru sinni fyrr og það er raunar ekki svo lít- ill sigur. En ég hef ekki verið þjálfari félagsins nema nokkra mánuði og fer bezt á því að ég sé ekki að spá miklu um framtíðina, tíminn verður að skera úr því, hvern árang- ur starf mitt kann að bera fyrir félagið. — Hvaða ráð vildir þú gefa ungum drengjum til að ná því

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.