Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 25
marki að verða góðir knatt-
spyrnumenn ?
— Því er fljótsvarað.
Leyndardómurinn felst allur í
einu orði: Æfa, æfa, æfa.
— I hverju finnst þér
styrkur Þróttar einkum fólg-
inn?
-— Hann er fyrst og fremst
fólginn í ágætu félagslífi, sem
gæti verið öðrum félögum til
fyrirmyndar.
— Hvernig semur þér við
félagsstjórnina?
— Prýðilega, ekki get ég
annað sagt. Stjórnarmennirn-
ir eru fullir af áhuga. Þeirra
markmið er að gera Þrótt að
sterku félagi. Ég veit að ég
móðga engan í stjórninni, þó
að ég segi að mér finnst mest
til um dugnaðinn í Haraldi
Snorrasyni. Hann er með lífi
og sál í félagsstarfinu, mér
liggur við, sem K.R.-ingur, að
nefna hann Erlend Ö. Péturs-
son Þróttar.
— Heldurðu að Þróttur eigi
framtíð fyrir sér sem knatt-
spyrnufélag?
— Því svara ég hiklaust
játandi. Á fimm árum hefur
Þróttur lyft Grettistaki í
knattspyrnumálum með því
að koma sér upp keppnisliði í
öllum flokkum. Sá árangur
sýnir að forystumenn félags-
ins hafa ekki setið auðum
höndum þessi fyrstu fimm ár
í sögu þess. Ég vil að lokum
færa félaginu mínar beztu
óskir í tilefni af afmælinu.
E. J.
ÞORSTEINN
HALLDÓRSSON:
KNATTSPYRNU-
VISUR
til Þróttarfélaga
(Lag: ,Fanna skautar faldi háumu)
Þróttar-sveinar, sitjið heilir!
Sjáið, bráðum vora fer.
Þá skal búast brátt til leikja,
boðið ei til setu er.
Út á völlinn allir saman,
æfingarnar byrja senn.
Vetrar stírur strjúki’ úr augum
stoltir, hraustir Þróttar-menn.
Þá skal láta gamminn geisa,
greiða spörkin mörg og stór.
Fram til sóknar einn og allir
eins og forðum gamli Þór.
Þótt þið fallið, fáið skeinur,
fárast skal ei yfir því, —
brött og grýtt er braut til frægðar, —
bara standa upp á ný!
Oft má verða unninn sigur
eftir mikið strit og hark.
Því er bezt að þjálfa af kappi,
þreyta hlaup og spyrna á mark.
Og ef viljann vantar eigi
veitist margur sigur enn. —
Svo skal hefja sumarstarfið,
sóknardjarfir Þróttar-menn!
Afmcelisblað ÞRÓTTAR 17