Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 15

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 15
in voru alls 12 greinar og voru þau öll samþykkt. Síðan fór fram stjórnar- kosning. Halldór Sigurðsson var einróma kosinn formaður. Emil Emilsson ritari og und- irritaður gjaldkeri. Einnig var samþykkt að umráða- svæði félagsins skyldi vera Grímsstaðaholt, Skerjafjörð- ur og Ægissíðan að Hofsvalla- götu. Margir tóku til máls á fund- inum og litu menn björtum augum á framtíðina. Fundi var slitið kl. 10.30 en fundar- menn voru mættir 37 og telj- ast þeir stofnendur félagsins. Fyrsta verkefni stjórnar- innar var að skora á ýms starfsmannafélög. Vorum við jafnan sigursælir, eins og þessi tafla gefur til kynna: 11/8 Þróttur—Strætó 3:0 17/8 Þróttur—Litla Bílastöðin 4:1 18/8 Þróttur—Pósturinn 5:1 29/8 Þróttur—Hitav. 4:0 18/9 Þróttur—Tollurinn 3:0 I liði Þróttar léku stundum Hermann Guðmundsson og Haukur Bjarnason, báðir úr meistaraflokki Fram. Það varð til þess að sú saga komst á kreik að allur meistara- flokkur Fram væri genginn 1 Þrótt! Á þetta er minnzt í Tímanum 25/8 1949: „Þróttur sigrar. Hið ný- stofnaða knattspyrnufélag, Þróttur, hér í Reykjavík, háði nýlega tvo knattspyrnuleiki — annan við bílstjóra á Litlu bílastöðinni en hinn við póst- menn. Þróttur vann bílstjóra með 4:1 en póstmenn með 5:1. í liði Þróttar leika nokkrir af meistaraflokksmönnum Fram“. Félagsmönnum f jölgaði ört og áttu kappleikirnir sinn þátt í því. Þannig minnist ég þess, er við kepptum við Strætisvagna, að maður kom til mín og spurði hverskonar félag Þróttur væri. „Félags- skapur unga f ólksins í Skerja- firði og Grímsstaðaholti, sem hefur íþróttir á stefnuskrá sinni“, svaraði ég. „Ja, ég á þar nú heima, og mér finnst skylda mín að styðja ykkur, þó ekki væri nema sem styrkt- arfélagi", svaraði maðurinn. Þetta var Bjarni Bjarnason, sem síðar átti eftir að starfa mikið fyrir félagið. Komið var á föstum æfingum fyrir III. og IV. flokk. Tókum við eftir því, að því virtist engin tak- mörk sett, hversu smávaxnir drengir vildu mæta á æfing- um, nógur var áhuginn. En það sjá allir, að ekki er hægt t. d. að láta fjögra ára snáða keppa á móti 12 ára dreng í IV. flokki. Var þá stofnaður V. flokkur, sem var miðaður við hina yngstu og var há- marksaldurinn þar 6—7 ára, eftir því hversu stórir þeir voru! Reyndist þetta vel, varð mjög vinsælt af foreldrum barnanna, þar sem litlu snáð- arnir fengu einnig að vera með í leikjum. Þetta fyrir- komulag hélzt óbreytt, þar til í fyrra, að það féll niður. En slíkt má ekki henda félagið aftur. V. flokkur á jafn mik- III. fl. Þróttar 1954. Efri röð frá vinstri: Sigurgeir Bjarnason þjálfari, Jón Pétursson, Haraklur Baldvinsson fyrirliði, Birgir Björgvinsson, Markús Einarsson, Sigþór Sigurðsson, Guðmnndur Þórarinsson. Fremri röð frá vinstri: Þórarinn Lárusson, Jens Karlsson, Ómar Jónsson, Guðjón Oddsson, l’áll Pétursson, Leifur Guðbjörnsson. Afmœlisblað ÞRÓTTAR 7

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.