Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 45

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 45
Elzti startandi félagi Próttar er 77 ára gamatl í sambandi við „bridginn“, sem hefur verið snar þáttur í félagslífinu, fór ég til Jóns Guðnasonar, en hann mun vera elzti starfandi félags- maður hjá Þrótti og þótt víða væri leitað. Jón er góður bridgespilari og var meðal annars einn þeirra úr sveit Fiskhallarinn- ar, sem sigraði í sveitakeppni Þróttar í hitt eð fyrra. Jón var hressilegur að venju er ég hitti hann að máli. „Svo þú vilt fá viðtal við mig í af mælisblaðið ?“ spurði hann. „Já, mér finnst það vel við eigandi, enda fá- títt af svo gömlum manni að starfa að félagsmálum“, svar- aði ég. „Getur þú ekki frætt okkur eitthvað um þína hagi. Hve- nær ertu fæddur?“ „Eg er fæddur 27. maí 1877 að Laugardælum í Árnes- sýslu, ég er því 77 ára. Varð það í maí. Eg ólst upp í Fló- anum til 24 ára aldurs. En fluttist þá til Reykjavíkur. Eg stundaði sjóinn áður en ég geijðist fisksali, en það varð ég 23. október 1919, svo ég er búinn að vera fisksali rétt 35 ár í haust“. Jón Guðnason var einn fyrsti hvatamaður að stofn- un Sjómannafélags Reykja- víkur og er þar nr. 1 og heið- ursfélagi. Jón er einnig stofn- andi stúkunnar Víkings nr. 104. Hún var stofnuð 1. des. 1904 og er Jón sennilega sá eini sem verið hefur alla tíð í félaginu síðan. „I sambandi við Þrótt er rétt að geta þess“, sagði Jón, „að í vetur gengu 30 félagar úr Þrótti, bæði piltar og stúlk- ur, í stúkuna Víking og ég vænti þess fyrir stúkunnar hönd, að þar geti orðið sam- vinna, því að bindindi og í- þróttir eiga samleið en ekki óregla og vitleysa". „Af hverju gekkst þú í Þrótt?“ „Eg gerðist styrktarfélagi hjá þessu unga félagi til þess að stuðla að því að knatt- spyrnan í höfuðstaðnum yrði fjölbreyttari, einu félaginu fleira að glíma við. Og í sam- bandi við það, finnst mér að íþróttafélög eigi að byrja á byrjuninni, sem sagt á grunn- inum en ekki skorsteininum. Og ég álít, að Þróttur hafi byrjað rétt, þegar hann hóf þátttöku sína með yngri flokk unum“. „IJvernig hefur þér líkað Jón Guðnason það fyrirkomulag hjá Þrótti, að gera styrktarfélaga sína virka með bridginum og tafl- inu?“ „Mér hefur líkað það vel, það gerir fjölbreyttara fé- lagslíf. Og ég vona að félagið geti tekið þátt í bridge-keppn- um við sambærileg félög í haust. Ekki skal standa á mér að mæta þar fyrir Þrótt, ef svo ber undir, þó ég sé bráð- um áttræður“. Um það leyti sem blaðið kemur út, mun Jón verða ný- kominn úr þriggja vikna ferðalagi um Norðurlönd á- samt konu sinni, Höllu Otta- dóttur, en þau eru 150 ára til samans. Um leið og ég þakka hinar ágætu móttökur á heimili hjónanna, óskaði ég þeim faiv- arheilla í nafni allra Þróttara. E. J. Afmœlisblað ÞRÓTTAR 37

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.