Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 21
Þróttur og K.R.R.
I tilefni af 5 ára afmæli
Þróttar var ég beðinn að
segja eitthvað frá störfum
fulltrúa félagsins hjá K.R.R.
Þar sem ég tók við störfum
fyrir félagið hjá K.R.R. eftir
aðalfund ráðsins í haust,
varð ég að fara í gegn um
fundarbækur ráðsins til að
sjá hvenær fulltrúar félags-
ins komu fyrst þar við sögu.
Frá 3. október 1950 sat
Bjarni Bjarnason sem á-
heyrnarfulltrúi í ráðinu, en
svo er það ekki fyrr en 8.
marz 1951 að Ari Jónsson
tekur sæti í ráðinu sem fyrsti
aðalfulltrúi Þróttar.
Barátta þessara manna inn-
an ráðsins hefur ekki haft svo
Iítið að segja fyrir tilveru
Það er því ástæða til að
óska Þrótti til hamingju með
þessi 5 ár. Það er óvenjuvel
af stað farið, og að hafa sigr-
azt svo á byrjunarerfiðleik-
unum sem raun ber vitni, er
afrek í sjálfu sér. Það er því
ósk mín og von að Þrótti megi
auðnast að varðveita hinn fé-
lagslega neista. Hann er f jör-
eggið gegnum alla erfiðleika
og velgengni og hann er líka
lykillinn að sigrunum á sjálf-
um leikvellinum.
Frímann Helgason.
Ari Jónsson, fyrsti fulltrúi Þróltar í
knattspyrnuráðinu.
okkar unga félags. Það tíma-
bil, sem Ari Jónsson situr sem
aðalfulltrúi Þróttar í ráðinu,
eru haldnir um 140 fundir, svo
að þar hafa komið fyrir ýms
mál, sem vert væri að drepa
á, en rúmsins vegna er það
ekki hægt.
Um starfsaðferðir K.R.R.
ætla ég ekki að ræða. Knatt-
spyrnuráðið á oft við ýmsa
örðugleika að etja og verður
að haga starfi sínu sam-
kvæmt því, en ég hygg að það
sé orðið að mörgu leyti auð-
veldara að eiga sæti í K.R.R.
nú heldur en áður var, þar
sem mönnum er nú loks far-
ið að skiljast, að þeir sitja í
ráðinu fyrir knattspyrnuna í
heild, en ekki einungis fyrir
sitt félag.
Eftir aðalfund K.R.R. á
síðastliðnu hausti tók ég sæti
sem aðalfulltrúi Þróttar í ráð-
inu. Síðan hafa tvö mál sem
varða Þrótt komið þar við
sögu. Annað er beiðni Þróttar
um leyfi til að halda innan-
liússmót í knattspyrnu, sem
var fúslega veitt, en hitt var
beiðni Þróttar um leyfi til aö
bjóða upp erlendu knatt-
spyrnuliði, sem lögð var inn
til ráðsins 22. okt. 1953
Það var ekki fyrr en í marz
1954 að ráðið samþykkti með-
mæli til K. S. í. um að Þrótt-
ur fengi að bjóða heim liði. Á-
stæðan fyrir því að það drógst
svo á langinn, að þessi með-
mæli fengjust var sú, að á döf-
inni var þá breyting á móta-
fyrirkomulagi í sumar, sem
þó þótti ekki unnt að fram-
kvæma, þegar til kastanna
kom. Þessi töf á afgreiðslu
beiðninnar kostaði það, að
Þróttur fékk ekki lið upp í
sumar og þar af leiðandi ekki
erlent lið næstu fjögur ár,
verði ströngustu reglum
fylgt, þar sem tíminn er var
til stefnu, reyndist of naum-
ur.
Þrátt fyrir það, að ekki
fengist lið í sumar, vonum við
að Þróttur verði ekki látinn
gjalda þess í 4 ár að ástand
það, er ríkti í október 1953 1
knattspyrnumálunum, var
orðið til trafala, að ráðið sjái
Afmœlisblað ÞRÓTTAR 13