Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 32

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Blaðsíða 32
I. flokkur Þróttar 1952. Liðið keppti einnig á haustraóti meistaraflokks raeð góðum árangri. Efri riið frá vinstri: Sigurgeir Bjarnason, Halldór Backmann, fyrirliði, William Shirreffs, Tómas Sturlaugsson, Gísli Benjamínsson, Ólafur Ólafsson, Haraldur Eyjólfsson, Gunnar l’étursson. Neðri röð frá vinstri: Þor- valdur I. Helgason, Kristján Þórisson, Gunnar Aðalsteinsson. hann aðeins með 1:0. Þriðja leik- inn vann K.R. 1:0. Það eru mikil viðbrigði að fara úr I. fl. upp í meistaraflokk Tæknin og hraðinn er meiri auk þess sem leikirnir standa há’f- tíma lengur. Þróttardrengirnir hafa ekki farið varhluta af því, en þeir hafa öðlazt dýrmæta reynslu, og eru nú búnir að fá meira keppnisöryggi og vanmeta ekki um of sjálfa sig, enda fer árangurinn eftir því. Meistara- flokkur Þróttar hefur þegar sýnt að hann er vaxandi flokkur. Hafa margir meistaraflokksmenn Þróttar getið sér góðan orðstír. Og ekki get ég lokið svo grein- inni, að ég minnist ekki á tvo þeirra: Jón Asgeirsson, hinn ungi og bráðefnilegi markmaður Þróttar hefur leikið með öllum flokkum félagsins frá byrjun. Hann er álitinn að dómi blað- anna efnilegasta markmannsefni íslendinga. William Shirrcffs hefur leikið með I. fl. og síðar með meistaraflokki frá byrjun. Hann er bezti knattspyrnumaður Þróttar. Hann er einnig fyrsti þjálfari I og II. fl,, auk hans var þýzki þjálfarinn Fritz Buchlo um tíma hjá okkur tvisvar í viku 1950. Shirreffs fékk .Tohn Finch til þess að leiðbeina I. fl. um tíma 1951 og gerði hann það kauplaust. í fyrra var Óli B. Jónsson, þjálfari Þróttar og núv-erandi þjálfari er Guðbjörn Jónsson bróðir Óla. B Ég vil í nafni fé- lagsins þakka þessum mönnum fyrir mikið og gott starf. Að lokum vil ég minnast þeirra, sem standa bak við knattspyrnu- mennina og styrkja þá í barátt- unni. Haraldur Snorrason sér að öllu leyti um búningana og knett- ina. Það gera sér ef til vill ekki allir ljóst, hve mikil vinna það er, og allt er þetta gert í sjálfboða- vinnu. Halldór Sigurðsson hefur lagt mikið af mörkum fyrir vel- ferð yngri flokkanna. Magnús Pétursson sefur einnig starfað vel fyrir fiokkanna, auk margra ann- ara dugmikilla drengja Það eru þessir menn fyrst og fremst engu síður en kappliðin, sem eru mestu fjársjóðir hvers félags. Mennirnir sem fúsir eru til starfa fyrir fé- lag sitt. Að endingu óska ég Þrótti gæfu og gengis á komandi árum. Grétar Norðf jörð. Félagsmerki Þróttar Félagsmerkin hafa orðið tvö. Strax eftir stofnun félagsins kom Richard Felixsson með hug- myndina af fyrsta merkinu, með knattspyrnumanninum, og var það gildandi merki félagsins þar til í fyrra að ákveðið var að breyta um og fá merkið einfald- ara. Var þá knattspyrnumaðurinn tekinn úr því og ytra forminu breytt. Þá hugmynd átti Gunnar Aðalsteinsson, og er það núgild- andi merki Þróttar. 24 Afmœlisblað ÞRÓTTAR

x

Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1572

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.