Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Síða 14
2. stjórn Þróttar 1950—’51. Fremri röð frá vinstri: Jón Guðmundsson ritari,
I iallö-'r Sigurðsson formaður, Ari Jónsson gjaldkeri. Efri röð frá vinstri:
Haraldur Snorrason meðstjórnandi, Bjarni Bjarnason meðstjórnandi, Kyjói...i'
Jónsson féhirðir, Ernil Emils meðstjórnandi, Þorvaldur í. Helgason varaform.
um fyrir þá við knattspyrnu-
félögin í bænum eða við aðra
bæjarhluta. Við sáum strax
að því aðeins væri hægt að
halda þeim vakandi við knatt-
spyrnuna að keppni væri aht-
af annað slagið framundan.
Já, því ekki að stofna félag,
áhugamannafélag fyrir pláss-
in, þar sem stjórn, kosin af
drengjunum ár hvert, sæi um
að koma á æfingaleikjum ?
Þróttur yrði það að heita, ein-
ingartákninu gamla, annað
kom ekki til mála. Við Hall-
dór voru svo hrifnir af þess-
ari hugmynd, að við fórum
strax til Ögmundar H. Step-
hensen, þáverandi formanns
Ungmennafélagsins og feng-
um hjá honum lánaðan skál-
ann.
Daginn eftir gaf að líta
6 Afmœlisblað ÞRÓTTAR
svohljóðandi auglýsingu í
K.R.O.N., Skerjafirði, Ragn-
arsbúð Fálkagötu 2 og Pönt-
unarfélaginu:
„fbúar á Grímsstaðaholti
og Skerjafirði athugið: Á-
kveðið er að stofna íþróttafé-
lag fyrir þessa staði. Stofn-
fundur verður haldinn í U. M.
F. G.-skálanum föstudaginn
5. ágúst og hefst kl. 8,30. Þeir
sem mæta á fundinum teljast
stofnendur félagsins“.
Mikla hrifningu vakti þessi
ákvörðun og beztu undirtekt-
ir. Við höfðum nóg að gera
að semja lög fyrir fé-
lagið og undirbúa dagskrá
fundarins að öðru leyti.
Kjartan Bergmann, þáver-
andi ritari Í.S.I., lánaði okkur
góðfúslega lög til hliðsjónar.
Leikurinn við Hreyfil hófst á
sínum umsamda tíma og sigr-
uðum við með 3 mörkum
gegn 0.
Og svo rann upp föstudag-
urinn 5. ágúst. Kl. 8.30 um
kvöldið var mættur í skála
U.M.F.G. álitlegur hópur úr
öllum aldursflokkum, sem
kominn var til þess að taka á-
kvörðun um stofnun félags-
ins. Halldór var kosinn fund-
arstjóri og ég ritari. Allir
voru samþykkir því að kalla
félagið ,,Þrótt“. En þar sem
ákveðið var að hafa á stefnu-
skránni allar þær íþróttir, sem
félagsmenn vildu æfa, voru
sumir því fylgjandi að kaila
það „fþróttafélagið Þrótt“.
En meirihlutinn vildi halda
sig að knattspyrnuheitinu þar
sem hún væri aðalíþrótta-
greinin. Var því 1. gr. laganna
samþykkt svohljóðandi: Fé-
lagið heitir Knattspyrnufé-
lagið Þróttur.
Þar sem ætlunin var að
gera handknattleik að ann-
arri höfuðíþróttagrein félags-
ins, hljóðaði 2. gr. þannig:
Markmið félagsins er að efla
og iðka knattspyrnu, hand-
knattleik og aðrar íþróttir
meðal félagsmanna.
í 3. gr. var gert ráð fyrir
þriggja manna stjórn. 8. gr.
gaf þó stjórninni heimild til
þess að fá félagsmenn sér til
aðstoðar við stjórnarstörf ef
með þyrfti. Kom það sér vel
síðar viðvíkjandi ákvörðun-
inni um inngöngu í Í.S.Í. Lög-