Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Side 16
Ni'iverandi stjórn Þróttar. Frá vinstri Bjarni Bjarnason meðstjórn..ndi, Har-
aldnr Snorrason gjaldkeri, Eyjólfur Jónsson meðstjórnandi, Arnór Oskars-
son ritari, Einar Jónsson formaður, Halldór Sigurðsson varaforinaður, Krist-
vin Kristinsson féhirðir, Ögmundur H. Stephensen meðstjórnandi.
inn rétt á sér sem aðrir flokk-
ar félagsins.
Gunnar Eyland vann um
þetta leyti í Trípolibíó. Gekk
hann í Þrótt og átti hann eft-
ir að verða einn af okkar dug-
legustu félagsmönnum. Varð
hann fyrsti þjálfari IV. flokks
og hefur síðan þjálfað IV. fl.
meira og minna, þar til að
William Shireff tók við. —
Gunnar hafði að jafnaði þrjár
vikulegar kvikmyndasýning-
ar fyrir börn vetrarmánuðina
í skála Ungmennafélagsins og
einnig sýningar fyrir eldri fé-
laga. Hann annaðist lika
kvöldvökur fyrir 3. flokk og
var alltaf reiðubúinn til hjálp-
ar hvenær sem var, hefur t.
d. iðulega sýnt kvikmyndir á
dansleikjum félagsins. Einn-
ig er hann góður knattspyrnu
8 Afmcelisblað ÞRÓTTAR
maður. Gunnar á sinn stærsta
þátt í góðri kynningu félags-
manna.
Við tókum á leigu U.M.F.G.
skálann. Eins og að framan
greinir, hafði Gunnar Eyland
þar vikulega þrjár kvikmynda
sýningar fyrir yngri og eldri
félaga. Frímann Helgason,
hinn ágæti íþróttaleiðtogi,
kom stundum á barnasýning-
arnar og talaði hvatningar-
orð til barnanna sem þar voru
stödd, venjulega um 160 að
tölu. Gat hann þess, að það
félag, sem hefði á að skipa
jafn fjölmennum hóp æsku-
fólks sem Þróttur, þyrfti
ekki að kvíða framtíðinni.
Einnig voru taflæfingar fyrir
eldri félaga og annað slagið
dansleikir. Þennan vetur
höfðum við einn handknatt-
leikstíma í viku og borguðu
þátttakendur sjálfir tímann.
Stjórnin ætlaði einnig um
haustið að stofna kvennadeild
innan félagsins, en hætti við
það, þar sem Ungmennafélag-
ið byrjaði að þjálfa stúlkna-
flokk í handknattleik. Sá
flokkur var lagður niður um
sumarið. Var þá stofnuð
kvennadeild innan Þróttar og
hefur hún verið sigurstrang-
legasta deild félagsins til
þessa.
Félagsgrundvöllurinn var
orðinn nokkuð traustur, og
menn farnir að líta á Þrótt
sem fimmta knattspyrnufé-
lagið í bænum. Drengirnir litu
á sig sem Þróttara og vildu
keppa fyrir Þrótt á mótum
innan I.S.I. En það var ekki
hægt, við höfðum ekki rétt-
indi til þess. Enn vorum við
ekki nema áhugamannafélag
Gunnar Eyland itieð kvikmyndavélina