Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 05.08.1954, Síða 17
V. flokkur Þróttar 1954. Iifri röð frá vinstri: Friðrik Jónsson, I’áll Einarsson, Kristján Þór Jónsson, Ólafur Óskar
Einarsson, Reynir Olsen, Jón Friðrik Gunnarsson, Kristján Sigvaldason, Torfi Agnars Jónsson, Þórir Indriðason,
Ólafur Rúnar Jónsson, Arsæll Björgvinsson, Þórhallur Sigurðsson, Helgi Þorvaldsson, Einar Bolli Einarsson,
Jóhann Reynisson, Svavar Óskarsson, Ómar H. Magnússon. Fremri röð frá vinstri: Kristján Kjartansson, Ingvar
Óskarsson, Bragi Halldór Guðmundsson, Aðalsteinn Hallgríntsson. Gústaf ykdolf Guðmundsson, Lúðvík Baldur
Ögmundsson, Magnús Magnússon. Kristinn Guðmundsson, Eyjólfur Magnússon, ÞórðUr Jónsson. Ingi Olsen, Óli
Gíslason, Einar Hjaltason, Stefán Jónsson. Tómas Sveinn Oddgeirsson.
utan við íþróttabandalagið,
réttindalausir.
Og stjórnin tók ákvörðun.
Eftirfarandi miða var dreift
til allra félagsmanna:
„Knattspyrnufélagið Þróttur.
Góði félagi! Fundur verður
haldinn í húsi Ungmennafé-
lagsins á Grímsstaðaholti,
sunnudaginn 20. nóvember kl.
3 e. h. Ákvörðun tekin á fund-
inum um upptöku í l.S.l.“
Þetta var einn merkasti
fundur félagsins. Samþykkt
var að biðja um inngöngu í
l.S.Í. Einnig var samþykkt að
leita samþykkis I.S.l. á bún-
ingi félagsins, sem Haraldur
Eyjólfsson og Einar Ásgeirs-
son teiknuðu. Hvítar og rauð-
ar langröndóttar peysur með
rauðum kraga og rauðum
uppslögum á ermum og hvít-
um buxum, og einnig félags-
merkinu með knattspyrnu-
manninum, sem Richard Fel-
ixson hafði gert.
Samþykkt var að skipa
varastjórn og voru þessir
kosnir: Ari Jónsson, Jón Guð-
mundsson og Haukur Tómas-
son. Þeir urðu strax virkir í
stjórninni. Ari hefur verið
gjaldkeri síðan, þar til Har-
aldur Snorrason tók við,
einnig var hann lengi fulltrúi
Þróttar í Knattspyrnuráðinu,
þar til Kristvin tók við. Jón
Guðmundsson var lengi ritari
félagsins. Hefur hann starfað
mikið í handknattleiksdeild-
inni og er þar nú formaður.
Samþykkt var að félagið
skyldi ekki vera bundið neinu
sérstöku félagssvæði, var það
vel ráðið. Félagið, sem aðili
innan l.S.I,. getur því aðeins
orðið sterkt, að það sé ekki
bundið vissum bæjarhlutum
fremur en önnur íþróttafélög
bæjarins. Reynslan hefur þeg-
ar sannað það.
Margir kunningjar okkar úr
starfsmannahópum þeim, sem
við kepptum við, hafa gengið
í Þrótt og orðið góðir félags-
menn auk margra annarra
dugmikilla drengja í bænum.
Ég nefni til dæmis Harald
Snorrason, sem aldrei hefur
brugðizt, alltaf reynzt jafn
traustur og ábyggilegur.
Hann hefur átt sæti í stjórn
Þróttar frá 1950, verið gjald-
keri félagsins frá 1952, verið
í skemmtinefnd frá 1950.
Húsvörður U. M. F. G.-
skálans og var það með mikl-
um ágætum, þegar bridge-
keppnir voru í skálanum gátu
menn alltaf fengið heitt kaffi
Afmœlisblað ÞRÓTTAR 9