Fréttablaðið - 12.06.2021, Side 16

Fréttablaðið - 12.06.2021, Side 16
FRAMTÍÐ LÍFEYRISKERFISINS Fulltrúaráðsfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 15. júní kl. 17:00 á Grand hóteli, Reykjavík. Við leyfum okkur að horfa 50 ár fram í tímann þar sem hugað er að: KYNNINGARFUNDUR Auk kjörinna fulltrúa eru allir sjóðfélagar velkomnir á fundinn á meðan að húsrúm leyfir. Á fundinum mun Benedikt Jóhannesson gera grein fyrir úttekt Talnakönnunar hf. á tryggingarvernd sjóðfélaga Birtu í víðu samhengi. Nægjanleika lífeyris Áhrifum séreignar á lífeyri og ráðstöfun hennar til húsnæðiskaupa Samspili við almannatryggingakerfið Breytingum á grunnforsendum lífeyris Fundinum verður streymt á vef Birtu, www.birta.is kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Íslenska kvennalands- liðið skoraði þrjú mörk snemma leiks í 3-2 sigri á Írlandi í æfinga- leik á Laugardalsvelli í gær. Íslenska liðið komst þremur mörkum yfir snemma leiks en Írum tókst að laga stöðuna í seinni hálfleik með tveimur mörkum. Þetta var fyrri æfingaleikur liðanna af tveimur, en þau mætast á ný á þriðjudaginn í síðasta æfingaleik kvennalandsliðsins fyrir undan- keppni HM sem hefst í haust. Ísland hefur nú leikið sex leiki gegn Írlandi, unnið þrjá þeirra og enn ekki tapað leik. Þetta var fyrsti heimaleikur kvennalandsliðsins í tæpa tíu mán- uði og um leið fyrsti leikur liðsins undir stjórn Þorsteins Halldórsson- ar. Þorsteinn tefldi fram sókn djörfu liði og lék liðið við hvurn sinn fingur í fyrri hálfleik. Agla María Alberts- dóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir sáu um að skora mörkin fyrir Ísland í fyrri hálfleik en mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri Spilamennskan náði ekki sama flugi í seinni hálfleik og tókst Írum tvisvar að hleypa spennu í leikinn á ný en gestunum gafst ekki tími til að jafna metin á lokamínútum leiksins. ■ Kaflaskipt í sigri stelpnanna okkar Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir leikur í dag til úrslita á einu virtasta áhugakylfingamóti heims. Það er til mikils að vinna eftir 36 holur dagsins. kristinnpall@frettabladid.is GOLF „Ég er ofboðslega stolt af þeirri staðreynd að vera fyrst Íslendinga að leika á þessu stigi mótsins. Ég hef fengið nóg af hamingjuskila- boðum að heiman frá fjölskyldu og vinum og vonandi verða margir að fylgjast með úrslitaeinvíginu,“ sagði Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir í samtali við Oliviu McMillan, fjölmiðlafull- trúa Opna breska áhugamótsins í golfi, í gær eftir að Jóhanna komst í úrslitin fyrst Íslendinga. Um er að ræða eitt elsta og virtasta áhuga- kylfingamót heims, sem fór fyrst fram árið 1893. Jóhanna Lea mætir hinni skosku Louise Duncan í 36 holu úrslita- leik í Skotlandi í dag. Keppt er í holukeppni og er því langur dagur fram undan fyrir Jóhönnu, en sigur tryggir henni þátttökurétt á þremur risamótum og Opna bandaríska áhugamótinu í golfi á Augusta-velli í Georgíu. Í undanúrslitunum í gær var Jóhanna þremur holum eftir á þegar fimm holur voru eftir, en hún gafst ekki upp og náði að kreista fram bráðabana þar sem hún hafði betur á fyrstu holu. „Það kom tímakafli þegar ég var þremur holum undir þar sem ég var orðin frekar pirruð á spilamennsk- unni, en þá vissi ég að ég gæti ekki breytt því sem búið væri. Ég reyndi bara að einbeita mér að mínum leik og tókst að snúa leiknum mér í hag. “ Síðustu dagar hafa verið langir en þrátt fyrir það er engan bilbug að finna á Jóhönnu. „Ég get ekki sagt að ég finni fyrir þreytu. Ég nýt góðs af því að hafa pabba með mér, sem sér til þess að ég borði á réttum tíma en ég á von á að reyna að safna orku í kvöld.“ Jóhanna Lea er í 944. sæti á heims- lista áhugakylfinga þessa dagana, en von er á stóru stökki á næstunni með frammistöðunni í Skotlandi. „Þetta er alveg stórkostlegt og afrek í sögu golfíþróttarinnar á Íslandi. Hún er búin að keppa á móti þremur af bestu áhugakylfingum heims og sló út sigurvegara mótsins frá árinu 2019. Það sem vekur líka athygli er að þetta eru allt jafnir leikir, þar sem hún nær að snúa leiknum sér í hag á lokaholunum. Hún hefur náð að sýna ótrúlegan andlegan styrk þegar leikirnir eru undir,“ segir Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, aðspurður út í afrek Jóhönnu. „Fyrir hönd golfhreyfingarinnar erum við ofboðslega stolt og hlökk- um til að fylgjast með henni á loka- hringnum.“ Ólafur tók undir að með því að vinna slíkt mót gætu opnast ýmsir gluggar á risamótunum. „Algjörlega. Sviðið gerist ekki stærra en þetta í áhugamannagolfi, þetta er stærsta mót heimsins í þeim f lokki. Verðlaunin fyrir að vinna mótið sýna hvað þetta er stórt mót á heimsvísu. Fyrir vikið erum við gríðarlega stolt af henni og öllum þremur keppendum okkar á þessu móti. Ragnhildur Kristinsdóttir vinnur höggleikinn og Hulda Clara Gestsdóttir kemst líka áfram í holu- keppnina.“ Ólafur hrósaði Jóhönnu fyrir þrautseigjuna en hún mun leika sama völlinn í tvígang þriðja dag- inn í röð á morgun og áttunda og níunda skiptið á sex dögum. „Þetta eru orðnar ansi margar holur og undir gríðarlegu andlegu álagi. Kannski er það ekki enn búið að síast inn hvað þetta er stórt tækifæri. Hún er með hausinn vel stilltan,“ segir Ólafur, um álagið og leikfyrirkomulagið á mótinu. „Þetta er aðeins öðruvísi fyrir- komulag en um leið mjög skemmti- legt. Það verður rosalega mikið undir á morgun í sama fyrirkomu- lagi en með fleiri holur.“ ■ Hefur sýnt ótrúlegan andlegan styrk Jóhanna Lea náði að snúa leiknum sér í hag á lokaholunum og koma leiknum í bráðabana. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Fyrir hönd golfhreyf- ingarinnar erum við ofboðslega stolt og hlökkum til að fylgjast með henni á loka- hringnum. Ólafur Björn Loftsson kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn Sadio Mane, sem leikur með lands- liði Senegal og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, fundaði í vikunni með forseta Senegal til að kynna hugmyndir sínar um spítala sem hann vill reisa í heimabæ sínum. Um leið ræddu Mane og Macky Sall, forseti Senegal, undankeppni HM 2022 og áform Senegal í næstu Afríkukeppni. Mane skoraði í báðum leikjum senegalska landsliðsins en að leikjunum loknum fór hann til fundar með Sall. Þar kynnti hann hugmyndir sínar um spítalabygg- ingu í Bambali, þorpinu sem Mane ólst upp í. Það var enginn spítali á svæðinu þegar Mane ólst upp og hefur Mane minnst á að það hefði verið hægt að bjarga lífi hans með spítala. ■ Mane fundaði með forsetanum Senegalinn Mane er í guðatölu í heimalandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Mane er næstmarka- hæsti leikmaður Sene- gal frá upphafi með 23 mörk í 75 leikjum. Stelpurnar okkar fagna einu af mörkum fyrri hálfleiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÍÞRÓTTIR 12. júní 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.