Fréttablaðið - 12.06.2021, Page 22
araskurð gerði mig að hamingju-
sömustu manneskju í heimi og nú
er þetta dásamlega barn komið í
heiminn,“ segir hún glöð.
Fékk hríðastoppandi sprautu
Settur dagur var 6. desember og því
var ákveðið að hún færi í valkeisara
þann fyrsta þess mánaðar. „Það
var svo 26. nóvember sem ég fór að
finna fyrir verkjum,“ rifjar Unnur
upp en margir höfðu spurt hana
hvað myndi gerast ef hún færi sjálf-
krafa af stað í fæðingu en hún alltaf
bægt þeim möguleika frá sér.
Hún segist hafa orðið hrædd og
haft samband við sjúkrahúsið á
Selfossi þar sem starfsmenn vissu
hvernig ætti að taka á hennar
málum. „Ég var sett í mónitor og þar
sem tíu mínútur voru á milli hríða
var tekin ákvörðun um að senda
mig í bæinn í keisara og mér gefnar
hríðastoppandi sprautur.“
Unnur segist þrátt fyrir allt hafa
haldið ró sinni enda sannfærð um
að hún yrði ekki látin fæða barnið
öðruvísi en með keisara. „Ég held
að hún sé svona róleg og góð því
allt var svo rólegt þegar hún kom í
heiminn,“ segir hún, sannfærð um
að það hafi áhrif. „Því finnst mér að
það ætti að gera allt til að láta konu
líða vel á meðgöngu og í fæðingu.“
Áráttur og þráhyggjur
Unnur var greind með áráttu-þrá-
hyggjuröskun, OCD, aðeins sex ára
gömul. „Þetta byrjaði sakleysislega,
eða með því að ég þurfti alltaf að
segja „stopp“ á eftir hverri setningu.
Ég sagði mömmu frá þessu og man
að hún sagði: „Æ, ert þú svona líka?“
enda sjálf með röskunina. „Ég fór
svo að fá hræðsluköst og eitt skiptið
upplifði ég svo mikla oföndun og
hröðun á hjartslætti að mamma fór
með mig á spítala. Ég lá inni í nokkra
daga og var send í hjartalínurit og
blóðprufur en endaði svo bara hjá
sálfræðingnum,“ segir Unnur, sem
var greind með ofsakvíðakast.
„Þar var nú ekki meira gert en
að benda mér á að ræða málið við
mömmu sem skildi mig. En þarna
hefði verið hægt að hjálpa mér,“
segir hún, sem hefur þurft að taka
á fjölmörgum þráhyggjum í fram-
haldi. Oftast snúast þær um að
afstýra heilsubresti eða hamförum.
„Ég fór eitt sinn til sálfræðings
sem sagði að fólk með þessa röskun
væri gott fólk því það væri alltaf að
reyna að bjarga heiminum,“ segir
hún brosandi. „Þetta er kvíði sem
lýsir sér þannig að maður býr til
hegðun til að koma í veg fyrir að
eitthvað hræðilegt gerist. Ég sann-
færi mig til dæmis um að ef ég
segi: „Heilbrigður, langlífur, frísk!“
þá verði allt í lagi með alla,“ segir
Unnur og þylur orðin endurtekið í
lágum hljóðum.
„Algengt er að fara með einhvers
konar möntrur og bænir og sjálf
þarf ég daglega að þylja upp nöfn
allra sem mér þykir vænt um – þar
með töldum kisanna og blessa alla.
Ég hef lesið Nýja testamentið frá því
ég var tíu ára og það er orðin þrá-
hyggja. Ég tel mér trú um að ef ég
les ekki í því daglega gerist eitthvað
hræðilegt.“
Þráhyggjurnar eru eins og fyrr
segir margvíslegar. „Ég hef átt erfitt
með að komast niður stiga. Ég er
kannski búin að labba niður nokkr-
ar tröppur þegar ég átta mig á að ég
hugsaði vitlausa hugsun og þarf
þá að snúa við, stundum margoft.
Allir vinir mínir vita að ef ég festist
svona, eins og í miðjum tröppunum,
þurfa þeir að hrópa: Frísk! Þeir eru
svo dásamlegir við mig en eru þó
auðvitað að taka þátt í þessu með
mér.“
Ein áráttan var að þurfa að signa
alla mánuði í dagatölum sem urðu
á vegi hennar. „Það eru því engin
dagatöl hér inni,“ segir hún. „Ein
snerist um að allur fatnaður sem
ég klæddist þurfti að strjúka höku
mína áður en ég klæddi mig í hann.
Þetta var ákveðið vandamál þegar
ég lék í leiksýningunni Spamalot í
Þjóðleikhúsinu þar sem mikið var
Unnur gæti ekki verið ánægðari með Náttsól VIktoríu, sex mánaða gamla dótturina sem hún ætlaði ekki að þora að eignast en fékk nafn sigurvegarans.
Konum ráðlagt að fæða um leggöng
Við ræddum við ljósmæðurnar
Emmu Marie Swift og Ingu Maríu
Hlíðar Thorsteinson um hugtakið
fæðingarótta. Þær segja mikil-
vægt að komast að því hvers eðlis
ótti barnshafandi konu er.
„Það er mjög eðlilegt að kona
sem verður barnshafandi í fyrsta
sinn finni fyrir einhverjum kvíða
eða ótta fyrir því sem fram undan
er. Í einstaka tilfellum er óttinn
þó þess eðlis að hann hefur mikil
áhrif á hvernig konunni líður,
jafnvel þannig að hún finni fyrir
miklum kvíða eða ótta fyrir fæð-
ingunni og þurfi meiri aðstoð til
að vinna með óttann. Við höfum
ekki tölur yfir þetta á Íslandi,
enda mælum við ekki sérstaklega
fæðingarótta á meðgöngu.
Þegar kona finnur fyrir ótta er
mikilvægt að finna hvers eðlis
óttinn er og að hverju hann bein-
ist. Það er algengur misskilningur
að allar konur sem finna fyrir
fæðingarótta vilji fæða með keisaraskurði – þó svo að slíkt þekkist.
Ef kona hefur áhyggjur af sársauka í fæðingu er eðlilegt að mæla
með deyfingu snemma í ferlinu. Ef kona hefur helst áhyggjur af því
að hún þekki ekki það starfsfólk sem muni sinna henni, er eðlilegt
að ráðleggja henni að velja fæðingarstað þar sem boðið er upp á
samfellda þjónustu þar sem konan getur myndað gott og traust
samband við þá ljósmóður sem mun sinna henni í fæðingu. Ef kona
hefur áhyggjur af því að fæðing geti verið skaðleg fyrir barnið, er
eðlilegt að fá að ræða við fæðingarlækni eða barnalækni sem getur
gefið henni upplýsingar um að fæðing um leggöng er í langflestum
tilfellum mjög öruggur fæðingarmáti bæði fyrir konuna og barnið.
Geta konur sem greindar eru með fæðingarótta valið að fæða með
keisaraskurði?
Konum sem finna fyrir miklum ótta á meðgöngu er boðið að
ræða bæði við ljósmóður og lækni. Í samtalinu er unnið að því að
finna leiðir sem auka öryggi konunnar og finna bjargráð sem hún
getur nýtt sér í fæðingu. Upplýsingar sem konur hafa um fæðingar-
ferlið eru oft mjög bjagaðar.
Einnig er konum yfirleitt mjög mikilvægt að hafa stjórn á fæð-
ingarferlinu – og þótt sumum konum finnist þær hafa mesta stjórn
á ferlinu með því að fara í keisaraskurð, þá er það alls ekki algengt.
Þessi stjórn getur nefnilega komið með því að velja sér fæðingar-
stað þar sem konan þekkir þá ljósmóður sem mun sinna henni, eða
velja sér fæðingarstað sem konan getur heimsótt fyrir fæðingu
og fengið svör við öllum sínum spurningum. Stundum getur þessi
stjórn einnig falist í því að velja sér inngrip í fæðingunni, eins og til
dæmis mænurótardeyfingu snemma í ferlinu. Í einstaka tilfellum
vilja konur fæða barn sitt með keisaraskurði, en þetta er mjög
sjaldgæft enda er keisaraskurður stór aðgerð og mikið inngrip sem
hefur bæði þær afleiðingar að konan er lengur að jafna sig eftir
fæðingu en einnig afleiðingar fyrir næstu þungun og fæðingu.
Konum er því ráðlagt eindregið að fæða barn sitt um leggöng, þó
það þekkist að fæðing með keisaraskurði sé ákveðin sem besti
möguleiki í ákveðnum aðstæðum. ■
Þriggja manna fjölskyldan unir hag sínum vel í snotru einbýli í Hveragerði.
Það er ekki annað að sjá en að unga daman hafi erft tónlistarhæfileikana.
Inga María Hlíðar Thorsteinson
ljósmóðir. MYND/AÐSEND
Emma Marie Swift ljósmóðir.
MYND/AÐSEND
um hraðaskiptingar en mér tókst
alltaf að gera þetta við hverja flík,“
segir Unnur og getur varla annað en
hlegið. „Ég er með ælufóbíu og ef ég
geri þetta þá ælir enginn.“
Hræðslan við að valda skaða
Unnur segir alla slík hegðun þó
hafa minnkað eftir að dóttirin kom
í heiminn. „Ég vil ekki að hún fái
neitt svona og legg mig því fram við
að minnka þetta. Ég er að reyna að
segja mér að ef það verður slys þá er
það ekki af því ég fór í aðra skálmina
á ákveðinn hátt. Það sé ekki mér að
kenna. Þessi hræðsla við að valda
einhverju slæmu getur verið mjög
hamlandi því þó innst inni viti ég
að ég geri engan skaða með hegðun
minni tek ég ekki sénsinn.“
Unnur fékk að heyra að mögulega
gæti kvíðinn versnað með tilkomu
barns. „Ég svaf ekkert fyrstu fimm
sólarhringana og tek enn púlsinn á
henni þegar hún sefur. Þetta hefur
þó skánað og ég held að það hvernig
ég tæklaði meðgönguna og fæð-
inguna hafi styrkt mig. Hún heitir
Viktoría því mér finnst ég hafa
sigrað heiminn með því að komast
í gegnum þetta,“ segir Unnur sem
hefur mikið notað öndun og jóga
til að hjálpa sér. „Svo snýst þetta líka
um að treysta einhverju, hvort sem
það er guð eða eitthvað annað. Það
hefur hjálpað mér, að vita að það er
ekki ég sem ber ábyrgðina á öllu,“
segir Unnur Birna sem er augljós-
lega enn á bleiku skýi eftir tilkomu
dóttur sinnar.
„Mér finnst við allar sem höfum
gengið með börn og fætt börn vera
ofurhetjur. Karlar myndu aldrei
gera þetta,“ segir hún að lokum. ■
22 Helgin 12. júní 2021 LAUGARDAGUR