Fréttablaðið - 12.06.2021, Side 41

Fréttablaðið - 12.06.2021, Side 41
Viltu hafa áhrif á nýsköpun og vistvæna mannvirkjagerð í okkar samfélagi? Sérfræðingar óskast hms.isBorgartúni 21, 105 Rvk - Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki SÉRFRÆÐINGUR Í VISTVÆNNI MANNVIRKJAGERÐ Hæfnikröfur • Háskólapróf í verkfræði, tæknifræði, skipulagsfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi. • Haldbær reynsla af lykilþáttum vistvænnar mannvirkjagerðar, meðal annars í tengslum við lífsferilsgreiningar, umhverfisvottanir og umhverfisstaðla. • Reynsla í verkefnastjórnun. • Brennandi áhugi á umhverfismálum. • Mjög gott vald á ensku, gott vald á norðurlandamáli er kostur. • Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð. • Samskiptahæfileikar og geta til að vinna í teymi og leiða samstarfshópa. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Reynsla í norrænu samstarfi er kostur. Starfs- og ábyrgðarsvið • Umsjón með framkvæmd einstakra aðgerða í verkefninu Byggjum grænni framtíð, aðgerðaáætlun um vistvæna mannvirkjagerð 2030. • Þróun samstarfs við hagaðila byggingariðnaðarins til að tryggja árangursríka innleiðingu aðgerða í samstarfsverkefninu Byggjum grænni framtíð. • Fræðslu- og kynningarverkefni tengd vistvænni mannvirkjagerð og umhverfismálum. • Norrænt samstarf og samskipti á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar. NÁNARI UPPLÝSINGAR Um framtíðarstarf er að ræða og fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu berast í gegnum Starfatorg. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur alla hæfa einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2021. Nánari upplýsingar veitir Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, sérfræðingur á nýsköpunarsviði Skrifstofu forstjóra thora.thorgeirsdottir@hms.is S: 440 6400 VERKEFNASTJÓRI STAFRÆNNA LAUSNA / HUGBÚNAÐARLAUSNA Hæfnikröfur • Háskólanám sem nýtist í starfi s.s. á sviði verkfræði, tölvunarfræði eða viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna • Þekking og/eða reynsla af vinnu með hugbúnað við gerð stafrænna ferla • Færni í greiningu flókinna verkefna með notendur og aðra hagsmunaaðila í forgrunni • Umbótahugsun, reynsla af greiningu ferla og bætingu þeirra • Færni til að tjá sig, í ræðu og riti, á íslensku og ensku • Samskiptafærni og hæfni til að leiða teymi í átt að markmiðum verkefna Helstu verkefni • Ferlagreiningar, greiningar á umbótatækifærum, greiningar á hagsmunaaðilum • Áætlana- og kostnaðargreining verkefna • Verkefnastjórnun stafrænna verkefna • Leiða saman hagaðila við úrlausn verkefna NÁNARI UPPLÝSINGAR Um framtíðarstarf er að ræða og fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu senda inn í gegnum Starfatorg. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur alla hæfa einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2021. Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Arnalds thorsteinn.arnalds@hms.is S. 440 6400

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.