Fréttablaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 60
Albert Eiríksson, matreiðslu- maður og sælkeri, er þekktur fyrir ástríðu sína fyrir mat og veislum. Nú þegar aftur er að verða veislufært eru Albert og eiginmaður hans, Bergþór Pálsson, farnir að hlakka til að geta tekið á móti gestum heim og haldið skemmtilegar veislur með öllu tilheyrandi. sjofn@frettabladid.is Á sumrin finnst Alberti Eiríks- syni, matreiðslumanni og sæl- kera, gaman að bjóða upp á létta og sumarlega smárétti í stað þess að vera með þungan mat. Albert heldur úti matarbloggsíðunni Albert eldar og er iðinn við að setja þar inn uppskriftir fyrir öll tilefni sem henta fyrir allar árs- tíðir. „Matarhefðir og venjur okkar Bergþórs eru frekar í léttari kantinum á sumrin. Við borðum mikið grænmeti og ávexti og höfum í raun tekið meðvitaða ákvörðun um það. Við erum engir sérstakir grillkarlar, við erum mun meira fyrir hægeldaðan mat,“ segir Albert. En þeir eiga það til að skella einhverju góðgæti, til dæmis lambakjöti, í ofninn og baka á vægum hita meðan þeir bregða sér í nokkurra klukkutíma göngu. „Síðan er hækkað í hitanum þegar heim kemur til að taka lokahnykk- inn á steikingunni og góðgætið tilbúið eftir stutta stund, eftir full- komna eldun eftir okkar smekk.“ Eins og Albert nefnir kallar hungrið oft eftir öfluga hreyfingu og þá er gott að koma heim og finna matarilminn. „Eftir góða hreyfingu er ekkert betra en að fá góða máltíð og þá er tekið hraustlega til matarins.“ Vita fátt skemmtilegra en að halda veislur Veislur eiga líka hug og hjörtu þeirra Alberts og Bergþórs og þeir vita fátt skemmtilegra en að halda veislu og bjóða hópum heim. „Fyrir mörgum árum hafði samband við okkur kona og spurði hvort hún mætti ekki koma með vinnu- hópinn sinn til okkar í veislu og við tókum okkur smá umhugsunar- tíma en létum svo slag standa. Það má í raun segja að svona hafi þetta byrjað, við hreinlega bara lentum í þessu, að halda veislur fyrir hópa,“ segir Albert og bætir því jafnframt við að þetta sé ávallt jafn gaman og gefandi. „Þessi veisluhöld spurðust út á sínum tíma og síðan hefur þetta undið upp á sig í áranna rás.“ Albert segir að um sé að ræða alls konar veislur. „Það er mikið um gæsaveislur, steggjaveislur, afmæli, þemaveislur og alls konar „surprise“-veislur fyrir þá sem vilja koma og gera sér glaðan dag, svo dæmi séu tekin.“ Í veislunum er boðið upp á ýmiss konar veitingar eftir hvaða tilefni eru og oft er farið í samkvæmisleiki sem ávallt vekja mikla lukku. Íslenska matarhefðir fyrir ferðamenn Einnig hafa Albert og Bergþór tekið á móti erlendum ferðamönn- um heim og boðið til veislu. „Þá erum við að taka fyrir íslenskar matarhefðir og siði, sýna þeim og bjóða upp á séríslenskan mat eins sykurbrúnaðar kartöflur, síld, heimalagað rabarbarapæ og sultur úr uppskeru sumarsins svo dæmi séu tekin. Það er ávallt vinsælt hjá ferðamanninum að kynnast íslenskum matarhefðum.“ Tími smáréttanna á sumrin Albert hefur sérstaklega gaman af því að dunda sér í eldhúsinu og búa til ýmiss konar smárétti sem tilvalið er að bjóða upp á úti á pallinum eða í garðveislunni yfir sumartímann. Hann velur stundum ákveðið þema og að þessu sinni ákvað Albert að bjóða upp á smárétti með laxaþema. „Lax er svo góður og hægt er að leika sér mikið með hann í matar- gerðinni. Hann er líka einstak- lega góður í kalda rétti í ýmsum formum og hefur skírskotun í íslenskt sumar.“ Það getur verið kostur ef tíminn er takmarkaður að velja veitingar sem hægt er að undirbúa með góðum fyrirvara að mati Alberts. „Rúllur með reyktum eða gröfnum laxi og rjómaostafyllingu eru dæmi um þetta. Laxarúllurnar er gott að Sælkera-laxasmáréttir að hætti Alberts Eiríks Albert Eiríksson hefur einstaklega gaman af því að koma gestum á óvart með góðri veislu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Lax er svo góður og hægt er að leika sér mikið með hann í matargerðinni. Hann er líka einstaklega góður í kalda rétti. FRÉTTALBAÐIÐ/ANTON BRINK Laxasmáréttir geta verið margvís- legir og mjög fallegir. Laxarúlla á hveitikímköku. Laxarúlla á gúrkusneið. útbúa daginn áður og frysta. Best er að skera þær niður hálffrosnar með heitum hníf, látið heitt vatn renna á hann milli skurða. Rúllur með gröfnum laxi eru ekki síðri en þær með reykta laxinum.“ Laxarúlla á gúrkusneið Leggið filmu á borð. Skerið laxinn í sneiðar, ekki of þunnar. Smyrjið með mjúkum rjómaosti, rúllið upp og frystið. Lefsusamlokur Smyrjið lefsur með majónesi eða sýrðum rjóma, raðið laxasneiðum á og leggið aðra lefsu yfir. Skerið niður. Laxarúlla á hveitikímköku 1 bolli vatn 1 bolli hveitikím ¼ tsk. salt 1 tsk. rúgmjöl Mótið litlar kökur og bakið við 175 °C í um 30 mín. Látið kólna. Leggið filmu á borð. Skerið reyktan eða grafinn lax í sneiðar (ekki of þunnar). Smyrjið með mjúkum rjómaosti, rúllið upp og frystið. Gráðaostalaxasalat á gúrkusneið 100 g reyktur lax ½ box rjómaostur 2 msk. gráðaostur að eigin vali Setjið reyktan lax og rjómaost í matvinnsluvél. Myljið gráðaost saman við, blandið með sleif. Mótið kúlur og setjið ofan á gúrku- sneið. n KVENRÉTTINDADAGURINN Laugardaginn 19. júní gefur Fréttablaðið út sérblað tileinkað kvenréttindadeginum. Fyrir 6 árum héldum við Íslendingar upp á 100 ára afmæli þess að konur fengu hér kosningarétt. En sökum þess að Kvenréttindadagurinn 2021 kemur upp á afar áhugaverðum tímum í kjölfar Covid19, þá viljum við fjalla um frábærar íslenskar konur, hvað þær eru að gera í sínum störfum og í sínu lífi á þessum dæmalausu tímum. Einnig viljum við heyra í fyrirtækjum sem eru með konur í framvarðarsveit sinni. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við: Jóhann Waage, Markaðsfulltrúi Fréttablaðsins johannwaage@frettabladid.is eða 550-5656 FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um ald r og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 kynningarblað A L LT 12. júní 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.