Fréttablaðið - 12.06.2021, Side 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
n Lífið í
vikunni
06.06.21
12.06.21
Fyrirkomulagið er
einfalt. Tveir kepp-
endur hverju sinni,
sem skiptast á að svara
spurningum og safna
stigum. Engar óþarfa
flækjur.
Gerir upp erfitt tímabil
Daníel Ómar Hauksson er nítján
ára tónlistarmaður sem gengur
undir listamannsnafninu Drómi.
Von er á plötu frá honum næsta
föstudag, en á henni gerir hann
upp erfitt tímabil í sínu lífi.
Hellisbúinn í Gamla bíói
Einleikurinn Hellisbúinn er nú
sýndur í Gamla bíói á ný. Verkið
á þrjátíu ára afmæli um þessar
mundir. Jóel Sæmundsson fer
með hlutverk hellisbúans í þetta
skiptið.
Ný plata frá Karítas
Útgáfutónleikar Karítasar fyrir
plötuna Eternity fóru fram á
fimmtudaginn á Kex hostel. Hún
er spennt að fá loks tækifæri til að
spila fyrir fólk eftir langan tíma.
Sturlaðar fyrirmyndir
Hulda Mýrdal rekur verslunina
Heimavöllurinn.is en þar er hægt
að kaupa treyjur merktar íslensk-
um fótboltakonum. Hún segir
tímabært að ungar stúlkur geti
speglað sig í sínum fótboltahetjum.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumar
útsalan
í fjórum verslunum
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
| HEILSUDÝNUR OG –RÚM
| MJÚK- OG DÚNVÖRUR
| SVEFNSÓFAR
| SMÁVÖRUR
| STÓLAR
| SÓFAR
| BORÐ
SMÁRATORGI
OPIN Á SUNNUD.
KL. 13–17
Sumarútsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Vera Illugadóttir stjórnar
útvarpsþættinum Gáfna-
ljósinu sem hefur göngu sína
á mánudaginn á Rás 1. Um er
að ræða hefðbundinn spurn-
ingaþátt og verður Gáfnaljós
Íslands svo krýnt 17. júní. Hátt
í tvö hundruð manns sóttust
eftir að taka þátt.
steingerdur@frettabladid.is
Á mánudaginn kemur hefur göngu
sína stuttserían Gáfnaljósið á Rás
1 en stjórnandi þáttarins er Vera
Illugadóttir, dagskrárgerðarkona
og rithöfundur. Hún heldur einnig
úti einu allra vinsælasta hlaðvarpi
landsins, Í ljósi sögunnar, þar sem
hún fjallar um merka atburði og
einstaklinga úr sögunni.
Vera lýsir þættinum sem frekar
hefðbundnum spurningaþætti.
„Fy r irkomulagið er einfalt .
Tveir keppendur hverju sinni, sem
skiptast á að svara spurningum og
safna stigum. Engar óþarfa flækjur,“
útskýrir hún.
Hverjum sem var gafst tækifæri
til að sækjast eftir þátttöku í Gáfna-
ljósinu. Sigurvegarinn verður svo
krýndur Gáfnaljós Íslands.
„Það verða nokkrar kunnar
spurningakempur í bland við aðrar,
sem kannski eru ekki eins þekktar,“
segir Vera.
Mikill áhugi á þátttöku
Hátt í tvö hundruð manns sóttust
eftir því að taka þátt.
„Undirtektirnar komu mér mikið
á óvart. Ótrúlega gaman að svo
mörg skyldu hafa áhuga og bendir
auðvitað til þess að það sé áhugi til
staðar fyrir svona þætti,“ segir hún.
Hvernig kom hugmyndin að þátt-
unum til þín?
„Okkur á Rás 1 hefur lengi langað
að búa til einhvers konar spurninga-
þátt. Og ég hef nokkra reynslu af
spurningagerð svo þetta varð lend-
ingin,“ segir hún.
Var þetta eitthvað sem þig hafði
lengi langað að gera?
„Mig hefur alltént lengi langað til
að það séu fleiri spurningaþættir í
útvarpinu,“ svarar Vera.
Fyrsti þátturinn fer í loftið, eins
og áður segir, á mánudaginn. Allt í
allt eru þetta átta þættir; tveimur er
útvarpað daglega fram að úrslita-
þættinum, sem er svo þann 17. júní,
sjálfan þjóðhátíðardaginn.
„Við vildum demba þáttunum út
sem fyrst svo þau sem verða mjög
spennt þurfi ekki að bíða eftir úrslit-
unum,“ segir hún.
Viðbrögðin komu á óvart
Nú hefur hlaðvarpsþáttur Veru, Í
ljósi sögunnar, verið í hléi á meðan
hún sinnir öðrum verkefnum. Þátt-
urinn á sér dygga aðdáendur sem
bíða eflaust ólmir eftir því að þeir
hefjist á ný.
„Fólk er mikið að hafa samband
og spyrja um þættina. Ég verð í
öðrum verkefnum í sumar og fer svo
auðvitað í sumarfrí, en þátturinn
verður án efa aftur á sínum stað í
haust,“ segir Vera.
Þegar þú byrjaðir að gera hlað-
varpsþættina, gerðir þú þér nokkuð
í hugarlund hve vinsælir þeir yrðu?
„Alls ekki. Ég byrjaði að vinna á
Rás 1 áður en „hlaðvarpsspreng-
ingin“ varð hér á landi almennilega
og átti alls ekki von á miklum vin-
sældum. Sá fyrir mér að mala í við-
tækið fyrir nokkrar hræður,“ segir
hún.
Er ekki ótrúlega mikil vinna sem
liggur að baki hverjum þætti?
„Það er mismikið, en yfirleitt
mikill lestur og mikið grúsk, og svo
er það auðvitað slatti bara að skrifa
hvern þátt – þetta eru allnokkrar
síður. En hugmyndavinnan tekur
líka lúmskt mikinn tíma.“
Það verður nóg að gera hjá Veru
næstu misserin.
„Næstu vikur vakna ég snemma
og leysi kollega mína af í Morgun-
vaktinni á Rás 1, annars bara það
venjulega.“
Fylgist með baráttunni um titil-
inn Gáfnaljós Íslands næstu daga,
tveimur þáttum er útvarpað í röð
hvern dag. Fyrsti þátturinn fer í loft-
ið klukkan 14.03, beint eftir fréttir.n
Krýna Gáfnaljós Íslands
Það verða nokkrar kunnar spurningakempur í bland við aðra sem taka þátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
48 Lífið 12. júní 2021 LAUGARDAGUR