Fréttablaðið - 12.06.2021, Page 88
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Margrétar
Kristmannsdóttur
n Bakþankar
Lífið er stöðug þróun og það sem
þykir sjálfsagt í dag þykir oft úrelt á
morgun. Mín kynslóð miðlaði verð-
mætum með ávísunum og víxlum
sem unga kynslóðin hristir höfuðið
yfir, enda rafrænar lausnir þeirra
heimur.
Í dag eru um 10% af útgjöldum
heimila greidd með reiðufé og ljóst
að reiðufé verður áfram notað –
enda finnst mörgum gott að eiga
nokkra seðla í veskinu til að afgreiða
smáinnkaup. Það er hins vegar löngu
tímabært að settar verði ríkar höml-
ur á notkun reiðufjár til að sporna
við svartri atvinnustarfsemi – enda
fráleitt að verslun sem atvinnugrein
sé notuð sem þvottastöð fyrir svarta
hagkerfið. Það getur enginn talið
eðlilega viðskiptahætti að koma í
verslanir með úttroðin seðlaveski og
versla fyrir milljónir, enda frábiður
verslunin sér að aðstoða þá sem vilja
komast hjá skattheimtu við að koma
svörtum peningum í umferð. Við
þurfum aðstoð löggjafans til að setja
þak á greiðslur með reiðufé þannig
að allar greiðslur yfir til dæmis
100.000 kr. fari fram með rafrænum
hætti eða millifærslu.
Fyrir skömmu eignaðist verslunin
bandamann í þessu máli þegar lög-
reglan kallaði eftir því hvort að taka
ætti seðla úr umferð hér á landi til að
sporna gegn skipulagðri glæpastarf-
semi. Fyrsta skrefið mætti vera að
taka stóru seðlana úr umferð, því
það er auðvelt að kaupa vörur fyrir
milljón og greiða með 10.000 króna
seðlum, en það myndi enginn heil-
vita maður gera ef þá upphæð þyrfti
að reiða fram með 1.000 króna
seðlum.
Þrengjum að svarta hagkerfinu!
Hættum meðvirkni með skatt-
svikum og gerum háar greiðslur
með reiðufé tortryggilegar – enda
yfirgnæfandi líkur á að rík inni-
stæða sé fyrir þeirri tortryggni!n
Meðvirkni með
skattsvikum
VEITINGASTAÐURINN
Á matseðli í júní
Verslun opin 11-20 – IKEA.is – Veitingasvið opið 10:30-20
Jarðarberjaplanta 995,-
Blómapottur er seldur sér
SUMARFRÍ
26 kr.
4 VIKUR
AFSLÁTTUR
Skráðu þig á orkan.is
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI EF ÞÚ SÆKIR