Fréttablaðið - 09.10.2021, Qupperneq 2
MINNINGARSTUND
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Nýtt innviðaráðuneyti
er líklega að verða að veruleika sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Hugmyndin hefur verið rædd frá í
sumar og hefur hún verið nokkuð
ítarlega rædd meðal formanna
stjórnarflokkanna.
Hið nýja ráðuneyti hefur, frá því
viðræður hófust, verið hugsað sem
sigurlaun Framsóknarf lokksins.
Mun formaður flokksins, Sigurður
Ingi Jóhannsson, að óbreyttu stýra
því. Hins vegar fara áhyggjur vax-
andi af því að hugmyndin sé að
vinda um of upp á sig og nýja ráðu-
neytið stefni í að verða fullstórt fyrir
smekk hinna stjórnarflokkanna.
Sem stendur er rætt um að auk
málefna sveitarfélaganna og sam-
göngumála fari öll húsnæðis-,
skipulags- og landnýtingarmál í
ráðuneytið auk veigamikilla mála-
flokka á sviði orkumála og iðnaðar.
Meðal ráðuneyta sem misst gætu
mál til ráðuneytis yrðu, auk sam-
gönguráðuneytisins, félagsmála-
ráðuneytið, umhverfisráðuneytið,
iðnaðarráðuneytið og forsætisráðu-
neytið. n
Ofurráðuneyti
veldur áhyggjum
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
formaður Fram-
sóknarflokksins
Ræktar októberstjörnur
Birgir Steinn Birgisson hjá Garðyrkjustöðinni Ficus í Hveragerði sinnir októberstjörnum sem hann ræktaði í tilefni af Bleikum október. Rennur hluti söluágóð-
ans til styrktar Bleiku slaufunni. Birgir segir mikla ásókn í blómin en hann ræktaði þau fyrst í fyrra og átti ekki von á svo góðum viðtökum og raun bar vitni.
Hann ræktar sjö liti af jólastjörnum og er uppskeran þetta árið tuttugu þúsund blóm. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Efling segir að ef Icelandair
verði dæmt brotlegt í Félags-
dómi muni stærri fjárfestar
þurfa að selja bréf sín vegna
samfélagsábyrgðar. Flug-
freyjur og flugmenn fordæma
uppsögn hlaðkonu og vilja að
hún verði afturkölluð.
bth@frettabladid.is
VINNURÉTTUR Viðar Þorsteinsson
hjá Eflingu – stéttarfélagi segir að
helstu hluthafar í Icelandair hljóti
að standa frammi fyrir áleitnum
spurningum vegna uppsagnar
trúnaðarmanns hlaðmanna á
Reykjavíkurflugvelli, Ólafar Helgu
Adolfsdóttur. Fjárfestar séu bundnir
af skuldbindingum um samfélags-
ábyrgð sem þeir hafi sjálfir gefið út.
„Við höfum lagst í skoðun á þessu
og það er ljóst að allir stærstu fjár-
festar Icelandair eru bundnir af við-
miðum um samfélagslega ábyrgar
fjárfestingar. Það á bæði við Bain
Capital, stærsta eigandann, sem og
lífeyrissjóðina og Arion banka sem
eiga stærstu hlutina í Icelandair hér
innanlands,“ segir Viðar.
Að sögn Viðars gæti brot af þeirri
alvarleikagráðu sem hann segir
verið að fremja á Ólöfu virkjað
ákvæði í reglum um ábyrgar fjár-
festingar.
„Það er í kortunum að þessir hlut-
hafar gætu þurft að selja hlut sinn
í Icelandair ef fyrirtækið verður
dæmt brotlegt í Félagsdómi, sem er
nánast öruggt,“ segir Viðar.
Sem dæmi segir í stefnu um
ábyrgar fjárfestingar hjá lífeyris-
sjóðnum Gildi að tengist fyrirtæki
skráð á innlendan markað broti á
sviði umhverfismála og félagslegra
málefna sé markmið sjóðsins að
beita sér sem eigandi fyrir því að
látið verði af því broti.
„Ef slíkar aðgerðir bera ekki full-
nægjandi árangur mun sjóðurinn
taka til skoðunar sölu viðkomandi
eignarhlutar í heild eða að hluta,“
segir hjá Gildi.
Viðar fullyrðir að ólögleg upp-
sögn trúnaðarmanns myndi aug-
ljóslega alltaf falla undir „brot á
sviði félagslegra málefna“ í skilningi
stefnu Gildis. Sams konar klausur
séu í stefnum annarra lífeyrissjóða
sem eiga hluti í Icelandair, til dæmis
Brúar lífeyrissjóðs og LSR.
Flugfreyjur í Flugfreyjufélagi
Íslands (FFÍ) og Félag íslenskra
atvinnuflugmanna (FÍA) bættust í
gær í hóp þeirra sem styðja Eflingu í
að uppsögn Ólafar verði afturkölluð.
Áður höfðu f lugvirkjar ályktað
um sama mál.
„Með þessari framgöngu telur FFÍ
að Icelandair sé að gera alvarlega
atlögu að uppsagnarvernd trúnað-
armanna á vinnustöðum,“ segir í
yfirlýsingu flugfreyja og flugmenn
eru ekki síður harðorðir og lýsa full-
um stuðningi við Eflingu í málinu.
„FÍA fordæmir því þessar aðgerðir
Icelandair, sem jafnframt eru studd-
ar af SA [Samtökum atvinnulífsins]
og skorar um leið á Icelandair að
draga uppsögnina til baka,“ segir í
yfirlýsingu flugmannanna.
Fréttablaðið sendi Boga Nils
Bogasyni, forstjóra Icelandair, fyrir-
spurn í þremur liðum en fékk ekki
svör.
Upplýsingafulltrúi Icelandair
segir í skriflegu svari að félagið hafi
engu að bæta við yfirlýsingu sem
send var Fréttablaðinu í vikunni.
Þar var harmað að málið hefði farið
í fjölmiðla og sagt að vafi léki á að
Ólöf hefði verið trúnaðarmaður er
henni var sagt upp. n
Uppsögn Ólafar geti breytt
hluthafahópi Icelandair
Viðar Þorsteins-
son hjá Eflingu
Uppsögn Ólafar Helgu Adolfsdóttur er sögð geta haft óvænt áhrif. MYND/AÐSEND
Endurnýjað landslið Íslands lék við Armena í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
hjorvaro@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ísak Bergmann Jóhann-
esson skoraði mark íslenska karla-
landsliðsins í fótbolta þegar Ísland
gerði 1-1 jafntef li við Armeníu í
undankeppni HM 2022 á Laugar-
dalsvellinum í gær.
Ísak, sem kom inn á sem vara-
maður í hálfleik, er yngsti marka-
skorari í sögu íslenska landsliðsins,
18 ára gamall.
Ísland mætir Liechtenstein í
næstu umferð undankeppninnar.
Þar leiða saman hesta sína tvö
neðstu lið riðilsins. n
Ísak Bergmann tryggði Íslandi stig
2 Fréttir 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ