Fréttablaðið - 09.10.2021, Page 6

Fréttablaðið - 09.10.2021, Page 6
Kópavogsbær og Akureyrar- bær eru meðal þeirra sveitar- félaga sem ekki hafa lokið jafnlaunavottun, sem átti að klára fyrir tveimur árum síðan. Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu segir að tími fresta sé liðinn. kristinnhaukur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Sextán sveitarfélög sem ekki hafa fengið jafnlauna- vottun eiga það á hættu að verða beitt dagsektum um áramót. Hafa þau trassað að klára ferlið sem þau áttu að ljúka fyrir tveimur árum síðan. Bæði Jafnréttisstofa og for- sætisráðuneytið hafa þrýst á Sam- band íslenskra sveitarfélaga að ljúka málinu. „Jafnréttisstofa hefur heimildir til þess að beita dagsektum og mun gera það ef þetta gengur ekki. Við erum hins vegar meðvituð um að við þurfum að gæta meðalhófs þegar kemur að íþyngjandi ákvörð- unum,“ segir Katrín Björg Ríkarðs- dóttir, framkvæmdastjóri Jafn- réttisstofu. „Um áramótin skoðum við alvarlega hver staðan er með til- liti til hvort dagsektarheimildinni verði beitt.“ Umrædd sveitarfélög eru af öllum stærðum og gerðum, víðs vegar á landinu. Þar á meðal tvö af þeim fjölmennari, Kópavogsbær og Akur- eyrarbær. En Jafnréttisstofa er ein- mitt staðsett á Akureyri. Einnig má nefna Stykkishólmsbæ, Snæfellsbæ, Rangárþing ytra og eystra, Blöndu- ósbæ og Bolungarvíkurkaupstað. „Sveitarfélögin eiga að ganga fram með góðu fordæmi,“ segir Katrín. Til að mynda vegna þeirra fyrirtækja sem starfa innan þeirra og þurfa að lúta löggjöfinni. 38 sveitarfélög hafa fengið jafnlauna- vottun. Jafnréttisstofa er ekki inni í ferl- inu hjá hverju og einu sveitarfélagi en fylgist með því hvort þau séu að vinna að því að fá vottun. Meðal annars hvort þau hafi gert samn- inga við vottunaraðila. Bæði Akureyrarbær og Kópavogs- bær hafa gert slíka samninga. Full- trúar Kópavogs segjast ætla að klára málið á haustdögum en Akureyrar fyrir áramót. „Vegna ófyrirsjáanlegra áhrifa faraldursins höfum við gefið tíma- frest. En nú er þessi tími liðinn sem ætla má að faraldurinn hafi haft truflandi áhrif á ferlið og við viljum að sveitarfélögin spýti í lófana,“ segir Katrín. „Í upphafi óttuðumst við að lítil sveitarfélög ættu erfiðara með þetta en það er ekki raunin.“ Hafa beri þó í huga að ekki öll sveitarfélög falli undir löggjöfina, aðeins þau sem hafi 25 starfs- menn eða f leiri. Eru því þau 18 fámennustu, eins og Árneshreppur á Ströndum og Tjörneshreppur í Þingeyjarsýslum, undanþegin. Katrín segir engin dæmi um að sveitarfélög einfaldlega neiti að framfylgja lögunum eða sinni því ekkert að útvega vottunina. Þau séu hins vegar mislangt komin í ferlinu og henni finnst ganga óþarf lega hægt hjá sumum þeirra. ■ Sextán sveitarfélög í hættu á að verða sektuð vegna jafnlaunavottunar Jafnlauna- vottun sveitar- félaganna átti að vera lokið árið 2019. Nú telur Jafnréttis- stofa að frestir sem veittir voru, meðal annars vegna faraldurs- ins, séu orðnir nógu langir. Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmda- stjóri Jafnréttis- stofu Sveitarfélög sem ekki hafa fengið jafnlaunavottun Akureyrarbær Blönduósbær Bolungarvíkurkaupstaður Grundarfjarðarbær Húnaþing vestra Kópavogsbær Langanesbyggð Rangárþing eystra Rangárþing ytra Reykhólahreppur Skaftárhreppur Snæfellsbær Strandabyggð Stykkishólmsbær Sveitarfélagið Skagaströnd Þingeyjarsveit Á námskeið Endurmenntunar eru allir velkomnir! Kynntu þér málið á endurmenntun.is Hvað langar þig að læra? Úrval stað- og fjarnámskeiða verða á dagskrá hjá ENDURMENNTUN í haust þar sem flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. bth@frettabladid.is LÍFEYRISMÁL „Þetta er eins og með gamla fólkið sem er svipt fjárræði og sjálfræði,“ segir Inga Sæland, oddviti Flokks fólksins, um mál Jóhannesar Sigurjónssonar blaða- manns. Jóhannes á að óbreyttu yfir höfði sér að missa ellilífeyri frá Trygg- ingastofnun, megintekjur sínar, þar sem hann hefur dvalið meira en 180 daga á spítala. Fréttablaðið fjallaði um mál hans í gær. Reglurnar um þetta eru óréttlátar að sögn Stefáns Ólafssonar, sérfræð- ings í lífeyrismálum. Ef Jóhannes væri efnameiri yrði hann ekki fyrir skerðingu ráðstöfunartekna, sem stangast á við sjúkratryggingarétt. Inga segir að það sé ekki eins og að fólk á spítala þurfi ekki að halda áfram að greiða sín gjöld þótt það liggi á spítala. Þarna virðist henni sem atlaga sé gerð að sjálfræði Jóhannesar. „Allt í einu á að taka af honum afkomuna af því að hann er veikur á sjúkrahúsi,“ segir Inga. Málið sé eitt dæmi af mörgum sem sanni að skera þurfi almanna- tryggingakerfið upp samanber fjölda frumvarpa sem hún hafi lagt fram, en aðeins brot gengið eftir. ■ Atlaga að fjárræði eldri borgara Inga Sæland fordæmir reglur sem svipta fólk afkomu á stofnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR gar@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA „Eftir að lokatölur eru tilkynntar að morgni 26. sept- ember hófst atburðarás sem á sér enga stoð í lögum,“ segir í kæru Karls Gauta Hjaltasonar til Alþingis vegna endurtalningar atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Karl Gauti segir í kæru sinni að formaður yfirkjörstjórnar í Norð- vesturkjördæmi hafi ákveðið „upp á eigin spýtur, án kröfu frá nokkr- um bærum aðila og án nokkurrar lagaheimildar“ að telja atkvæðin aftur. Hann gagnrýnir atburða- rásina harðlega. „Getur sú lögleysa sem staðfest er að átti sér stað ekki ákvarðað niðu rstöðu alþing iskosninga. Aðbúnaður kjörgagna var ekki í neinu samræmi við það sem lög bjóða,“ segir í kærunni. Lög hafi verið brotin í fjölmörgum mikil- vægum þáttum og útilokað að það sem fram hafi farið geti verið lagt Segir kjörstjórnarmann hafa verið einan með atkvæðaseðlum Karl Gauti Hjaltason var formaður yfir- kjörstjórnar á Suðurlandi í 20 ár. til grundvallar niðurstöðu í lýð- ræðislegum kosningum. „Geðþóttaákvarðanir við slíkar aðstæður eiga sér enga lagastoð,“ segir í kæru Karls sem krefst þess að Alþingi Íslendinga ákveði að loka- tölur eins og þær voru tilkynntar með formlegum hætti að morgni 26. september 2021 séu hinar einu réttu og marktæku. „Eftir að talningu lauk um morg- uninn og lokatölur voru lesnar upp var fundi yfirkjörstjórnar frestað til kl. 13.00. Samt sem áður er nú ljóst að formaður yfirkjörstjórnar mætti rúmum klukkutíma áður (klukkan 11.46) og var þá einn innan um óinnsigluð kjörgögnin í nánast hálfa klukkustund, sem er í beinni andstöðu við skýr ákvæði kosningalaga,“ segir meðal annars í kæru Karls Gauta þar sem ítarlega er farið yfir fjölmarga aðra agnúa sem þingmaðurinn fyrrverandi telur hafa verið á endurtalning- unni. ■ 6 Fréttir 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.