Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 20

Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 20
Ég sá mann sem var ekki úr þessum heimi og eins og algengt er hjá fólki sem sér, þá var fyrsta tilfinn- ingin mín ónot. Anna Birta Lionaraki segir framliðið fólk hafa birst sér frá unglingsaldri en eiginleik- ann kallar hún hyperskynjun. Hún miðlar nú skynjun sinni til annarra og heldur opinn miðilsfund í Hannesarholti undir lok mánaðar. Ég er ein af mörgum með hyperskynjun, mín von er að með árunum verði f leiri rannsóknir á fólki með svona eiginleika hér á landi, því margir eru næmir á Íslandi og við erum öll svo tengd,“ segir Anna Birta. Hún vill meina að hyperskynjun sé í genunum og hljóti því að vera einhvers konar stökkbreyting. Anna Birta er fædd á Íslandi en alin upp að mestu í Grikklandi. Hún er skráð sem Tryggvadóttir en hefur valið sér að nota eftirnafn stjúpföður síns, hið gríska eftir- nafn Lionaraki. Tengsl Önnu Birtu við Grikkland eru sterk og í snotru húsi í Ölfusi þar sem hún býr ásamt átta ára dóttur sinni hljóma oftar en ekki grískar útvarpsrásir. „Blóðfaðir minn lést áður en ég fæddist. Mamma var í framhaldi kölluð á fund læknamiðils í sveit- inni vegna skyndilegs fráfallsins, Einars á Einarsstöðum, sem þá til- kynnti henni að hún væri barns- hafandi og hughreysti hana.“ Það reyndist rétt og Anna Birta kom inn í líf móður sinnar níu mánuð- um eftir andlát föður síns. „Þetta er sem sagt mín dramatíska innkoma í þetta líf,“ segir Anna Birta einlæg. Rætur í Grikklandi Þegar Anna Birta svo var komin í heiminn hélt móðir hennar í hótel- stjórnunarnám til Bretlands þar sem hún kynntist grískum manni, Antonis Lionaraki, sem gekk Önnu Birtu í föðurstað. „Þau gifta sig í Bretlandi og við flytjum í framhaldi til Grikklands þar sem ég er alin upp frá þriggja til átta ára aldurs. Í Grikklandi á ég stóra fjölskyldu og fer þangað oft á ári.“ Þegar móðir hennar og stjúpfaðir skildu fluttu mæðgurnar til Íslands og svo aftur til Bretlands þegar Anna Birta var 12 ára. Mennta- skólanum lauk hún svo á Ísafirði og þaðan lá leiðin svo aftur til Grikk- lands. Ofurnæmni í menntaskóla Það var á menntaskólaárunum sem ofurnæmni, eða hyperskynjun eins og hún kallar það, Önnu Birtu fór að láta á sér kræla. „Ég trúi því svo inni- lega að þetta tengist hormónum að einhverju leyti, það er eitthvað sem mig langar að finna út úr áður en ég dey. Ég held að ég hafi alltaf haft þessa eiginleika en þetta verður fyrir ferðarmikið á unglingsár- unum,“ segir hún. „Ég sá mann sem var ekki úr þess- um heimi og eins og algengt er hjá fólki sem sér, þá var fyrsta tilfinn- ingin mín ónot.“ Anna Birta bendir á að enginn sjái eins. „Mín skynjun er eins konar þrívídd, vinstra megin á hlið, þar kemur einhvers konar opnun þar sem ég sé fólk eða heyri en helsta upplifun mín er að sjá í munninum myndbönd og skynja eins og ég sjái í gegnum lykt. Þarna í þessu tilviki var hann pínu hálfgegnsær og mér fannst þetta mjög óspennandi á allan hátt og hafði engan húmor fyrir þessu,“ segir hún í léttum tón. Aðspurð hvort hún hafi verið hrædd svarar Anna Birta játandi og bætir við: „Svo var ég bara unglingur og að spá í allt öðrum hlutum.“ Maðurinn birtist Önnu aðallega í einu rými á heimili hennar og síðar kom í ljós að einmitt í þessu rými hafði maður svipt sig lífi. „Ef hjúpurinn okkar er ekki tilbúinn eða stilltur á þann hátt að geta niðurhalað þessum upplýsingum þá náttúrlega verður maður bara skelfingu lostinn.“ Eftir menntaskóla fór Anna Birta Allt í lagi ef fólk skilur þetta ekki Það tók Önnu Birtu tíma að taka skyggni- gáfu sína í sátt en það tókst henni með hjálp annars miðils, Bíbíar Ólafs- dóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI til Grikklands, nánar tiltekið til Aþenu, að læra leiklist. „Ég var lán- söm að fá aðalhlutverk í leikhúsi ári fyrir útskrift. Svo ég upplifði drauminn minn um að verða leik- kona,“ segir hún. Lokaðist fyrir skynjunina Þegar Anna Birta verður ófrísk að dóttur sinni lokast skyndilega fyrir hyperskynjunina. „Það stórkostlega gerist þá að það er eins og skrúfað sé fyrir alla skynjun,“ segir hún og kannast við svipaðar sögur frá öðrum konum, að skynjunin hafi eflst eða minnkað, jafnvel horfið á meðgöngu. „Ég var ofboðslega sæl með þetta og fæddi árið 2013 inn í þennan heim mína dásamlegu dóttur, sem er mér allt. Tíu dögum eftir fæðinguna heyri ég hljóð eins og í hurð skella en fann að það var ekki úr þessum heimi og þá vissi ég að þetta væri komið aftur,“ lýsir Anna Birta og segist hafa fundið ískulda hríslast um sig. „Í framhaldi kom skynjunin margföld til baka. Þess vegna hef ég oft velt því fyrir mér hvort þetta sé ekki að einhverju leyti hormónatengt.“ Anna Birta segist hafa orðið fyrir upplifun f ljótlega eftir barnsburð sem ergði hana. „Ég leitaði þá til Bíbíar Ólafsdóttur miðils í von um að hún gæti lokað fyrir þetta. Hún sagði bara: Ég skil þig – en það er ekki hægt. Svo bætti hún við: Enda ertu arftakinn minn,“ segir Anna Birta. „Hún sagðist þó geta kennt mér betur að stilla þetta af.“ Anna Birta sótti svo fundi hjá Bíbí og f leirum í Sálarrannsóknafélaginu um tíma. Óhefðbundnar upplýsingar „Þegar leið á veturinn sá ég betur að hlutirnir sem mér voru sýndir gerð- Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is ust. Í kjölfar leiðbeininga Bíbíar fór ég að æfa þennan vöðva og byrjaði að taka þetta í sátt.“ Í kjölfar þess fóru Önnu Birtu að berast fyrirspurnir um lestur. „Ég ákvað því að gera minn fyrsta lestur og hef nú starfað við þetta í átta ár.“ Aðspurð segist Anna Birta kalla sig miðil enda sé það hreint orð og nái ágætlega utan um starf hennar. „Maður fær einfaldlega óhefðbundnar upplýsingar á óhefð- bundinn máta, sem maður reynir að miðla til fólks þegar það kemur til manns.“ Anna Birta segist vera ein af mörgum með hyperskynjun en hennar von sé að með árunum verði gerðar fleiri rannsóknir á fólki með þennan eiginleika. „Ef hægt væri að kortleggja á líkamlegan máta hvað veldur þessu næmi, þá hver veit, yrði þetta kannski viðurkennt? Heil- 20 Helgin 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.