Fréttablaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 64
Að meðal- tali drekk- ur nýfætt barn ellefu sinnum á sólarhring. Það er frá sex upp í 25 sinnum. Júlíanna Magnúsdóttir Rúmur fimmtungur barna sem fæðist á Íslandi er ein­ göngu á brjósti til sex mánaða aldurs. En það er ekki sjálf­ gefið að geta gefið brjóst og það er ekki sjálfgefið að það sé án vandræða. Brjóstagjafa­ ráðgafar kalla eftir skýrari stefnu og markmiðum. Þær Hu ld a Sig u rl í na Þórðardóttir, Júlíanna Magnúsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir og Hildur Ármannsdóttir eru allar brjóstagjafaráðgjafar og sitja í stjórn Félags brjóstagjafaráðgjafa. Þær segja að það sé ljóst að ef við­ halda eigi háu hlutfalli kvenna sem gefa brjóst, þurfi skýra stefnu og aukinn stuðning frá yfirvöldum. Nýverið var reglugerð breytt sem gerir konum kleift að fá aðstoð brjóstagjafaráðgjafa sér að kostn­ aðarlausu þar til barnið er sex mánaða. Áður voru það þrjár vikur og vitjanir aðeins tvær. „Við getum sett okkur mark­ mið um hlutfall kvenna sem eru eingöngu með börn á brjósti til sex mánaða og markmið um hlut­ fall kvenna sem eru með börnin á brjósti til eins árs aldurs. Það er mælt með tveimur árum og það væri frábært að stefna að því.“ Þær segja að það myndi hjálpa mikið ef það væri fjármagn eyrna­ merkt brjóstagjöf, brjóstagjafaráð­ gjöfum á heilsugæslum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Brjóstagjafaþekking í barnæsku Hulda Sigurlína bendir á að brjósta­ gjafaþekking sé í barnæsku. „Líffærafræðin var uppgötvuð 2007.“ „Þetta er ung fræðigrein. Fyrsta brjóstagjafaprófið á alheimsvísu var tekið árið 1985. Það hefur fjölgað í stéttinni, en ekkert mjög hratt,“ segir Ingibjörg og að það séu fleiri stéttir en ljósmæður sem hafa bætt þessari þekkingu við sig. Eins og læknar, talmeinafræðingar, hjúkrunarfræð­ ingar og næringarfræðingar. „Það er aðeins nýlega búið að greina hvernig tungan hreyfist þegar barnið er á brjósti. Þegar það er eðlilegt sog og hvernig hún hreyf­ ist öðruvísi á pela og hvernig hún hreyfist þegar það er tunguhaft til staðar eða einhvers konar sogvilla,“ segir Júlíanna. Þó að umræða hafi verið frekar takmörkuð í gegnum árin um brjóstagjöf og þau vandamál sem henni geta fylgt eru þær sammála um að það séu einhverjar breytingar í loftinu hvað það varðar. Ingibjörg er sú reynslumesta af þeim og hefur verið með brjósta­ gjafanámskeið f y rir verðandi mæður frá því árið 2014. „Þá voru stundum tvær konur á námskeiði, kannski fjórar. En núna mæta mjög margar. Það hefur orðið vitundarvakning hjá mæðrum. Ég held að ef að konur fara á námskeið, og vita nokkurn veginn við hverju þær eiga að búast, þá eru þær til­ búnar að takast á við það sem koma skal þegar þær eru komnar í aðstæð­ urnar, og að leysa ýmis grunn­ vandamál,“ segir Ingibjörg. „Já, þá eru þær líka duglegri að kalla eftir aðstoð. Það er algengur misskilningur að þetta eigi að vera sárt. En það er oft sagt við konur og þær samþykkja það því þær eru búnar að fara í gegnum svo mikinn sársauka. En það er ekkert eðlilegt við það,“ segir Hulda Sigurlína. Gleyma að hugsa um „Það er oft talað um að brjóstagjöf sé svo náttúruleg. En náttúrulegt er ekki endilega það sama og auð­ velt. Konur eru oft svo fókuseraðar á meðgönguna og fæðinguna að það gleymist oft að tala um það hvað gerist á eftir,“ segir Júlíanna. Það á ekki að vera vont að gefa brjóst Það geta ýmis vandamál komið upp við brjóstagjöf sem er yfirleitt hægt að leysa með aðstoð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Júlíanna segir að konur eigi að hugsa um sitt barn og sín brjóst. Ingibjörg hefur verið með brjósta- gjafarnámskeið fyrir verðandi mæður frá því árið 2014. „Það er vinna að koma barni á brjóst og koma brjóstagjöfinni í gang,“ segir Hildur. Hulda Sigurlína segir að brjósta- gjafafræði sé í raun í barnæsku, það sé svo ung fræðigrein. „Það kemst lítið annað að. En svo er barnið fætt og þá kemur svo oft skellurinn og þær vita ekkert hvern­ ig neitt á að vera,“ segir Hildur. Konurnar eru eins ólíkar og þær eru margar. Þær eru allar hjúkr­ unarfræðingar og allar nema Júlí­ anna ljósmæður. Þær hafa sinnt fjölbreyttri þjónustu á vettvangi spítalans, heilsugæslunnar og sjálf­ stætt starfandi. Þær segja allar að þær hafi ákveðið að verða brjósta­ gjafaráðgjafar því að þær fundu það í starfi að þær vantaði einhverja þekkingu til að raunverulega geta hjálpað mæðrum með brjósta­ gjöfina. Þær fagna nýlegri breytingu varð­ andi vitjanir og segja að aukin og bætt þjónusta geti breytt miklu fyrir konur og áframhaldandi brjóstagjöf þeirra. Til að fá aðstoð brjóstagjafa­ ráðgjafa þarf tilvísun heilbrigðis­ starfsmanns. „Við vitum alveg að vandamálin geta byrjað fyrstu tvær vikurnar, en fólk er í hálfgerðri móðu og hefur kannski ekki rænu á því að kvarta eða leita sér aðstoðar,“ segir Júlí­ anna og Hildur bætir við: „Eða eru búin að uppgötva á þeim tíma að það sé vandamál.“ Lítið vitað um þjónustuþörf Spurðar hversu hátt hlutfall kvenna sem fæðir á Íslandi leiti til þeirra segja þær að fjöldinn sé á reiki. Fjöldinn sem nýti þjónustuna innan þessara tveggja vikna sem var skilgreindur í rammasamningi sé skráður, en að þær konur sem nýti þjónustuna eftir það séu ekki skráðar neins staðar, auk þess sem það sé hátt hlutfall sem hafi leitað sér aðstoðar en ekki fengið hana. Þær segja að öfugt við mörg lönd, eins og Bretland og Bandaríkin, þurfi ekki að selja konum á Íslandi hugmyndina um brjóstagjöf. „Þess vegna getur þetta komið svo aftan að fólki, ef það er eitthvert vandamál. En við þurfum betur að styðja við konur,“ segir Hulda Sigur­ lína. „Það er vinna að koma barni á brjóst og koma brjóstagjöfinni í gang. Það geta verið alls konar hindranir og áskoranir á leiðinni, sem er langoftast auðvelt að leysa,“ segir Hildur. Allir með skoðun Þær segja margar ástæður fyrir því að brjóstagjöf þyki sjálfsögð á Íslandi en það tengist að miklu leyti menningu hér sem þekkir og samþykkir hana. En þrátt fyrir víðtækt samþykki hafa margir skoðanir á brjóstagjöf og hvernig henni er háttað. „Ég hef talað við konur, mjólkandi mæður, sem sögðust verða fyrir aðkasti ef þær eru ekki með barnið eingöngu á brjósti til sex mánaða aldurs en líka ef þær eru með það á brjósti eftir sex mánuði. Samfélagið er alltaf með skoðun á þessu,“ segir Hulda Sigurlína. „Alþjóðaheilbrigðismálastofn­ unin mælir með þessu til tveggja ára aldurs, en það er samt einhver skömm sem fylgir því að gera það,“ segir Júlíanna. „Já, en það er líka þannig að ef það gengur ekki, þá myndu konur aldr­ ei segja heldur frá því,“ segir Hulda Sigurlína. „En ég segi við konurnar sem ég hitti að þótt þær fari á kaffihús og sjái konu sem skelli barninu á brjóstið, og það gangi vel, þá hafi þær ekki hugmynd um hvað gekk á á undan til að komast á þennan stað. Það er alltaf talað um hvað brjóstagjöf er æðisleg en ef konur þurfa að hætta, þá hjálpum við líka við það,“ segir Júlíanna og segir því líka fylgja mikla skömm. Spurðar hver helstu vandamálin eru, segja þær þau geta verið margs konar. Það getur verið of lítil mjólk, of mikil mjólk, stálmi eða eitthvað líkamlegt, sársauki í geirvörtum eða brjóstum eða það getur verið um að ræða brjóstabólgur sem mikilvægt er að meðhöndla af fagaðilum og sem fyrst. „En hjá meirihlutanum, sem þarf aðstoð, þá er vandamálið ekki hjá þeim. Þá er eitthvað að hjá barninu. Það tekur brjóstið of grunnt, er með sogvandamál eða getur ekki hallað höfðinu aftur. Tunguhaftið getur valdið vandamálum eða varahaft. Svo getur fæðingin haft áhrif. Ef hún er erfið og hröð, þá er það þekkt að börnin eru stíf,“ segir Júlíanna. „En það má koma fram að það á ekki að vera vont að gefa brjóst. Það er stundum sagt við konur, en það er ekki rétt,“ segir Hulda Sigurlína. Þín brjóst og þitt barn Oft er sagt við konur að börn eigi að drekka á þriggja klukkustunda fresti, sérstaklega strax eftir fæð­ ingu. Þær segja það ekki endilega það mikilvægasta, heldur þurfi að þekkja barnið og hvernig það hegðar sér. „Að meðaltali drekkur nýfætt barn ellefu sinnum á sólarhring. Það er frá sex upp í 25 sinnum. Mið­ gildið er ellefu þannig að það er hægt að vera alls staðar í kringum það og það er allt eðlileg brjósta­ gjöf,“ segir Júlíanna. „Konur geta þannig upplifað að það gangi illa því barnið fer fimm­ tán sinnum á brjóst, en það getur verið eðlilegt fyrir barnið þeirra,“ segir Hildur. „Því segi ég við konur að það sé mikilvægast að þekkja sín brjóst og sitt barn. Ekki miða við vinkonu sína sem er með allt önnur brjóst og allt annað barn. Hún gæti verið að gefa átta sinnum en bilið er miklu breiðara en bara það,“ segir Júlí­ anna. Því svo veit maður ekki hversu mikil mjólk er að koma í hverri gjöf. „Mörgum konum finnst það mjög erfitt. Og það er kannski gallinn við þennan heim, hann er svo excel­ drifinn,“ segir Hulda Sigurlína og hlær. Þær taka undir það og segja að þeirra vinna sé oft að kenna fólki að þekkja barnið sitt og fylgjast með því. Að láta frá sér vigtina, öppin og klukkuna. „Þetta getur hjálpað og verið frá­ bært upp að einhverju marki, en þetta getur líka verið streituvald­ andi. Það er best að miða við þitt barn og þín brjóst,“ segir Júlíanna. Þær segja að á döfinni hjá þeim núna sé að vinna að því, í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld vonandi, að það verði sett skýr og markviss stefna um brjóstagjöf. Að mark­ miðin séu skýr og sýnileg. „Brjóstagjöf er undirstaða góðrar heilsu allra landsmanna. Ekki bara lítilla barna. Því þar er grunnurinn lagður að heilsu barnanna og til framtíðar, alla ævi,“ segir Ingibjörg að lokum. ■ Nánar á frettabladid.is Lovísa Arnardóttir lovisaa @frettabladid.is 28 Helgin 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.