Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 74
Nýi bíllinn verður
smíðaður í verksmiðju
Toyota í Kolin í Tékk-
landi sem hingað til
hefur smíðað Aygo,
Peug eot 108 og
Citroen C1.
Nýr Toyota Aygo X verður
kynntur í nóvember og mun
taka við af Aygo-smábílnum.
Bíllinn stækkar og fær meiri
tæknibúnað þegar hann
kemur á markað á næsta ári.
njall@frettabladid.is
Aygo verður næsti bíll til að fá jepp-
lingsnafnbótina hjá Toyota, en
Toyota tilkynnti í vikunni að hann
fengi nafnið Aygo X. X-ið er tilvitnun
í Cross-nafnið hjá stóra bróður hans
Yaris Cross. Ætlunin er að þessi nýi
bíll leysi Aygo af hólmi og verði
ódýrasti bíll merkisins, en Toyota
áætlar að kynna bílinn strax í næsta
mánuði.
Óhætt er að segja að þetta sé
djarft framtak hjá Toyota því að
fáir framleiðendur hafa komið
fram með jepplingsútgáfur í f lokki
minnstu smábílanna. Það er helst
litlum framleiðendum eins og Dai-
hatsu og Suzuki sem gengið hefur
vel með hinn fjórhjóladrifna Ignis.
Aygo X verður byggður á sama
GA-B undirvagni og Yaris Cross og
fær því líklega þriggja strokka vél.
Líklega verður hann ekki búinn
tvinnbúnaði til að halda verði niðri
en hugsanlega verða dýrari gerðir
hans þannig búnar. Aygo X er örlítið
stærri en núverandi Aygo, eða 3.700
mm að lengd og 1.500 mm á hæð.
Hjólhaf eykst líka um 90 mm til að
búa til meira rými aftur í bílnum.
Þar sem bíllinn fær nýjan undir-
vagn mun tæknibúnaður hans
breytast mikið frá Aygo-smábíln-
um. Hann getur jafnvel fengið sama
9 tommu snertiskjá og í nýjum Yaris
Cross. Nýi bíllinn verður smíðaður
í verksmiðju Toyota í Kolin í Tékk-
landi sem hingað til hefur smíðað
Aygo ásamt systurbílum hans
Peug eot 108 og Citroen C1. Þeir
verða þó ekki með lengur þar sem
Toyota hefur tekið verksmiðjuna í
sínar hendur. Búast má við bílnum
á markað næsta vor í fyrsta lagi. ■
Enn einn
jepplingur
frá Toyota
Aygo X prologue
er tilraunaút
gáfa frá Toyota
sem kynnt var
nýlega og gefur
innsýn í hvernig
hinn nýi bíll gæti
litið út.
Stórar hjólskálar
og 19 tommu
felgur munu
líklega minnka
nokkuð með
framleiðslu
útgáfunni.
Solihull nálgunin byggir á heildrænni aðferðarfræði fyrir foreldra og fagaðila þar sem markmiðið er að auka skilning
á tilfinningalegri og andlegri heilsu barna. Námskeiðin nýtast öllum þeim sem koma að uppeldi og umönnun barna.
SOLIHULL NÁMSKEIÐ Í BOÐI
GEÐVERNDARFÉLAG
ÍSLANDS
TVEGGJA DAGA GRUNNNÁMSKEIÐ,
VAL UM TVÆR DAGSETNINGAR:
a) 12. okt. og 2. nóv., kl. 9-16
b) 16. og 30. nóv., kl. 9-16
Hámark 12 þátttakendur í hvort skipti.
Leiðbeinendur:
Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldu
fræðingur og Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi
AÐ SKILJA ÁFÖLL
1. nóvember, kl. 9-16
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
HEILAÞROSKI
29. nóvember, kl. 9-13
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
TENGSLAMYNDUN
15. nóvember, kl. 9-16
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
Námskeiðsgjald
Tveggja daga grunnnámskeið: 59.000 kr.
Önnur námskeið: 29.000 kr.
Tryggðu þér sæti í tíma!
Skráning á www.gedvernd.is
eða með netpósti á gedvernd@gedvernd.is
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 9. október 2021 LAUGARDAGUR