Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þetta hljómar 110
prósent eins og eitt-
hvert svindl sem
enginn gengur heill frá.
Þetta er
auðvitað
algjört
klúður en
ekki eru öll
kurl komin
til grafar.
svavamarin@frettabladid.is
Fjölmiðla- og baráttukonan Ingileif
Friðriksdóttir nefnir jákvæð tíðindi
frá Arion banka sem eina af fréttum
vikunnar, en bankinn ætlar að jafna
hlut kynjanna með því að tryggja
starfsfólki sínu 80 prósent af laun-
um í fæðingarorlofi í sex mánuði og
greiða starfsfólki í fæðingarorlofi
sérstakan viðbótarstyrk þegar við á.
„Það hefur einnig verið mjög áhuga-
vert að fylgjast með framvindu taln-
ingarmála í Norðvesturkjördæmi.
Þetta er auðvitað algjört klúður en
ekki eru öll kurl komin til grafar og
verður forvitnilegt að sjá hvert þetta
mun fara.
Síðan er aurskriðan fyrir norðan
hið rosalegasta mál. „Ég átti að vera
á leið á Seyðisfjörð síðastliðinn
sunnudag rétt áður en fréttirnar um
viðvaranir bárust en komst svo ekki
og verð að viðurkenna að ég er frek-
ar fegin. Mér verður mikið hugsað
til fólksins á þessum svæðum,“ segir
hún í ljósi viðvarana sem bárust að
austan á sama tíma.
„Mér finnst smá skrýtið ef fólk
trúir ekki á hlýnun jarðar með þetta
ágætis dæmi fyrir framan okkur
um að það sé loftslagsvandi í gangi.
Síðasta vetur rigndi óvenju mikið og
hitastigið er mun hærra en við erum
vön.“ n
Hlýnun jarðar og viðbótargreiðslur
n Frétt vikunnar
Ingileif Friðriksdóttir
Ingileif Friðriksdóttir baráttukona. MYND/AÐSEND
Óskar Árnason, einn helsti
borðspilasérfræðingur lands-
ins, hefur hafnað hundrað
þúsund króna kauptilboði í
Facebook-hópinn Borð spila-
spjallið en hefur heyrt að
sami aðili ásælist aðra stærri
Facebook-hópa.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég veit ekki hver stendur á bak við
tilboðið, sem kom frá nafnlausum
Facebook-aðgangi, en ég held að ég
hafi sirkabát sigtað út hver þetta
er. Þetta er einhver sem stjórnar
nokkrum hópum sem hafa f lestir
sama meðstjórnandann,“ útskýrir
Óskar.
Er þetta einhver vafasamur aðili?
„Nei, nei, þetta virðist bara vera
einhver strákur í Háskólanum í
Reykjavík, viðskiptafræðingur eða
eitthvað. Svo spjallaði ég við strák
sem stjórnar öðrum stórum hóp,
Borðspil til Sölu/skiptis og hann
hafði fengið svipað tilboð,“ segir
hann.
Óskar segist ekki hafa hugmynd
um hver tilgangurinn gæti verið en
mögulega sjái viðkomandi gróða-
tækifæri í Facebook-hópunum.
„Ég talaði aðeins meira við hann
í gær og á endanum neitaði ég að
nefna upphæð en hann bauð þá
hundrað þúsund.“
Hann segir að í risahópum séu
stundum seldar auglýsingar og
önnur skilti. „En annars get ég ekki
ímyndað mér að það sé eitthvert
virði í þessu.“
Tilfinningar í spilunum
Aðspurður hvort hann hyggist
selja spilahópinn segir Óskar: „Ef
það væri einhver eðlileg leið til að
gera þetta þá kannski, en ég held
að maður hlæi bara að þessu. Þetta
hljómar 110 prósent eins og eitt-
hvert svindl sem enginn gengur
heill frá.“
Óskar skýtur því að að hann hafi
fyrir tilviljun orðið stjórnandi í
öðrum Facebook-hópi, hópnum
„Menningarátökin“. „Ég var svona
að gæla við að bjóða honum hann
bara í staðinn,“ segir Óskar léttur í
bragði.
Hann viðurkennir að tilfinn-
ingar séu í spilinu, enda stofnaði
Óskar borðspilahópinn sjálfur. „Ég
á svona megnið af póstunum þarna
inni og ef ég hætti að sjá um hópinn
og halda uppi spjallinu þá er ekk-
ert brjáluð virkni þarna inni svona
án mín, það er að segja reglulegir
póstar og kynningar, sem ég sé um.“
Spilaframtíðin björt
Óskar vinnur í Nexus aðra hverja
viku og segir alltaf jafn mikið að
gera þar sem vitaskuld má finna
ágætt úrval borðspila. „Það hefur
verið svolítil breyting núna. Þessi
hobbíspil, þar sem 3-5 voru að hitt-
ast og spila eitthvað alvarlegt í heilt
kvöld, það hefur svolítið pólarí s-
erast, en fjölskylduspil og partíspil
hafa rokið upp úr öllu valdi.“
Óskar segir litlu spilin rjúka út.
„Fólk er að kaupa þessi spil eins og
Secret Hitler, Resistance og Cards
Against Humanity og svo kemur
fólk aftur að leita að einhverju öðru.
Það eru fjölskyldur sem eru að spila
meira við börnin sín og pör sem eru
að spila meira saman.“ n
Hafnaði hundrað þúsunda
kauptilboði í Facebook-hóp
Óskar Árnason lét ekki glepjast af dullarfullu kauptilboði í Facebook-hóp hans fyrir borðspilara. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Tilboðin gilda til 31. október 2021 eða á meðan birgðir endast.
www.DORMA.is
Aðeins 154.430 kr.
Aðeins 149.925 kr.
BOGGIE
3ja sæta sófi. Fáanlegur í 3 litum í Fiesta áklæði; bláum, brúnum og
gráum. Stærð: 186 x 77 x 85 cm.
Fullt verð: 119.900 kr.
140x200 eða 180x200 cm. Dýna með
nýju Wave pokagormakerfi sem er
byggt á 20 cm háum pokagormum sem
aðlagast líkama þínum betur. Dýnan
er með Cashmere áklæði og ullarlagi
sem hleypir náttúrulegri öndun gegnum
dýnuna og stýrir hitamyndun.
Fullt verð 180x200 cm: 204.900 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
RIGA
hægindastóll
með skemli
Svart leður og krómfótur.
Stillanlegur. B82 x H106 cm
Fullt verð: 199.900 kr.
Aðeins 95.920 kr.
Við eigum afmæli
og nú er veisla
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
20%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
25%
30%
AFSLÁTTUR
af dýnu og 10%
af botni.
AFMÆLIS
Nature´s CASHMERE
heilsurúm með Classic botni
48 Lífið 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ