Fréttablaðið - 09.10.2021, Page 88
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Mér hefur tekist með Guðs hjálp
og góðra manna að halda mig frá
áfengi í samanlagt 26 ár. Drykkjan
varð snemma vandamál en mér
tókst lengi að halda henni leyndri
og réttlæta hana gagnvart umhverf
inu. Ég hafði alltaf einhverjar
skynsamlegar skýringar á reiðum
höndum. Þetta kallast afneitun á
máli hegðunarfræðinga, sem getur
verið margs konar. Margir benda á
einhvern annan sem sé verri. Aðrir
gera lítið úr vandamálinu og segja
að allt sé þetta á misskilningi byggt
Bæði einstaklingar og opinberir
aðilar beita grímulausri afneitun
þegar tilveru þeirra er ógnað. Sovét
ríkin gömlu afneituðu Tsjernóbyl
slysinu í nokkrar vikur þótt
heimurinn fylgdist óttasleginn með
vaxandi geislavirkni á svæðinu.
Á dögunum fann ég fyrir ýmsum
líkamlegum einkennum sem
hræddu mig. Ég greip þá til gamalla
varnarhátta og fór í afneitun. „Það
er ekkert að mér! Ég þarf engin lyf!“
Þetta dugði í einhvern tíma en að
lokum endaði ég inni á Landspítala.
Ég bjóst við því að leggjast inn
á yfirfulla deild þar sem læknar
og hjúkrunarfræðingar væru við
dauðans dyr vegna þreytu. Svo
reyndist ekki vera. Hressir og
úthvíldir læknar tóku á móti mér.
Starfsfólkið allt var yndislegt og
ég varð ekki var við hið meinta
neyðarástand. Eftir margvíslegar
rannsóknir og aðgerð var ég sendur
heim með lyf sem ég lofaði að taka
samviskusamlega.
Stundum er sagt að banamein
margra sjúklinga sé afneitun.
Ég taldi mig fantagóðan að greina
og sjá í gegnum afneitun sjúklinga
minna. Samt var ég sjálfur næstum
dauður úr sjálfsblekkingu. Enn og
aftur sannar sr. Hallgrímur gildi sitt:
„Þetta, sem helst nú varast vann,
varð þó að koma yfir hann.“ n
Afneitun
VEITINGASTAÐURINN
Á matseðli núna
Verslun opin 11-20 ̵ IKEA.is
IKEA Bakarí, Sænska matarhornið og IKEA Bistro opið 11-20
1.195,- 995,-
Lambaskanki
með kartöflumús,
grænum baunum
og rauðkáli
Ýsa í orly
með frönskum
og hrásalati
+
200kr.
af hverjum seldum
rúðuvökva rennur til
Bleiku slaufunnar
í október
borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000