Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
Gæði í
verði
& verki
Fáðu tilboð sérsniðið að þínum þörfum
Auðbrekka 8 s: 589 5000 hreint@hreint.is
Helga Vala Helgadóttir, þingmað-ur Samfylkingarinnar, gagn-
rýndi ríkisstjórnina á þingi í fyrradag
og sagði hana hafa „sofnað á verð-
inum þegar kemur að því að tryggja
öryggi borgaranna
og berjast gegn
skipulögðum glæp-
um“. Þetta er athygl-
isverð gagnrýni úr
þessari átt og verður
fróðlegt að sjá til
hvaða ráða hún vill
grípa og hvaða að-
gerðir hún mun
styðja til að bregðast
við vandanum.
- - -
Birgir Ármanns-son, þingflokks-
formaður Sjálfstæð-
isflokksins, svaraði
Helgu Völu, tók undir að vandinn sé
vaxandi og helsta ógnin sem við blas-
ir, en mótmælti því að ríkisstjórnin
hefði setið aðgerðalaus.
- - -
Birgir sagði að farið hefði verið í„sérstakt átak við að auka sam-
vinnu lögregluembætta og annarra
yfirvalda sem fást við rannsóknir á
þessum málum“ og auknu fjármagni
hefði verið varið í rannsóknir á þessu
sviði. Þá hefðu „verið gerðar ýmsar
breytingar á löggjöf, sérstaklega í því
skyni að auðvelda lögregluyfirvöldum
að sinna rannsóknum og eftirfylgni á
þessu sviði. Hér hafa verið lagabreyt-
ingar sem hafa falið í sér breytingar
sem varða peningaþvætti, vinnslu per-
sónuupplýsinga í löggæsluskyni,
framsal sakamanna. Við hér í þinginu
erum með breytingu á lögreglulögum
sem meðal annars á að svara þörf að
þessu leyti.“
- - -
Brýnt er að þingið taki á þessumvanda af festu og styðji lögregl-
una í baráttunni við skipulagða
glæpastarfsemi. Vonandi benda þessi
orðaskipti til þess að meiri breidd
verði en áður í stuðningi við nauðsyn-
legar aðgerðir.
Helga Vala
Helgadóttir
Verður samstaða
um aðgerðir?
STAKSTEINAR
Birgir
Ármannsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Umferðin á Hringveginum jókst mik-
ið í seinasta mánuði samanborið við
aprílmánuð í fyrra eða um rúm 37%.
Mest jókst umferðin um Norðurland
eða um 74,5% en minnst um höfuð-
borgarsvæðið eða um 26,1%. Þetta
kemur fram í umfjöllun á vef Vega-
gerðarinnar um umferðina í apríl. Þar
má sjá að aukning varð á öllum 16
talningarstöðum á Hringveginum í
seinasta mánuði en þó hvergi meira en
við Gljúfurá, sunnan Blönduóss, en
þar jókst umferðin um 100,4% miðað
við sama tíma á seinasta ári og minnst
jókst umferðin við Úlfarsfell eða um
22,0%.
Hefur umferðin aukist um 13,6%
frá áramótum en bent er á að þrátt
fyrir þessa miklu aukningu sé umferð-
in á Hringveginum tæplega 6% undir
því sem hún var árið 2019. Miðað við
fjóra fyrstu mánuði ársins er talið að
umferðin gæti aukist um 7% á Hring-
veginum yfir allt þetta ár. „Gangi sú
spá eftir og umferðin borin saman við
árið 2019 væri hún 7% minni. Svo enn
eru ekki teikn á lofti um að umferðin
nái fyrri ,,styrk“ nú í ár, sem aftur
leiðir hugann að tengslum hennar við
hagvöxtinn og þá má draga þá ályktun
að umsvif þjóðfélagsins muni ekki
aukast það mikið í ár að þau verði jafn-
mikil og þau voru árið 2019,“ segir þar
enn fremur.
Stóraukin umferð á Hringveginum
- Yfir 100% aukning sunnan Blönduóss
- 13,6% vöxtur umferðar frá áramótum
Morgunblaðið/RAX
Vetrarumferð Frá áramótum hefur
umferðin aukist um 13,6 prósent.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Norska fyrirtækið Orkla ASA, sem
er umsvifamikið á neytendavöru-
markaði á Norðurlöndum, Eystra-
saltsríkjunum og á völdum mörk-
uðum í Mið-Evrópu og á Indlandi,
hefur keypt allt hlutafé í Nóa-Síríusi.
Félagið hafði keypt sig inn í sælgæt-
isframleiðandann í árslok 2019 og
eignaðist þá 20% hlut í félaginu. Líkt
og Morgunblaðið greindi frá á sínum
tíma gerðu kaupin þá ráð fyrir þeim
möguleika að Nói-Síríus kæmist allur
í eigu Orkla árið 2021. Hefur það nú
gengið eftir.
Með kaupunum hverfur fjölskylda
Hallgríms Benediktssonar stórkaup-
manns frá félaginu en hún hefur átt
fyrirtækið frá árinu 1924 þegar fyrir-
tæki hans, H. Benediktsson hf.,
keypti það. Þá hafði það verið starf-
andi í fjögur ár.
Kaupin eru háð samþykki Sam-
keppniseftirlitsins en það var fyrir-
tækjaráðgjöf Deloitte sem sá um
ferlið fyrir hönd seljenda. Kaupverð
fyrirtækisins er ekki gefið upp. Hinn
1. ágúst næstkomandi mun Finnur
Geirsson, barnabarn Hallgríms, láta
af starfi forstjóra félagsins en hann
hefur gegnt því í 31 ár. Við af honum
mun taka Lasse Ruud-Hansen, en
hann hefur til þessa gegnt ábyrgð-
arstörfum á vettvangi Orkla.
Segir Finnur í tilkynningu frá fé-
laginu að hann sé stoltur af þeim
árangri sem náðst hafi í uppbyggingu
Nóa-Síríusar og að kaup Orkla séu
staðfesting á því. Hann segir fyrir-
tækið í góðum höndum nýs eiganda.
Hjá Nóa-Síríusi eru 120 starfs-
menn og var velta félagsins í fyrra
3,6 milljarðar króna. Hjá Orkla
starfa 21 þúsund manns og nam velta
ársins í fyrra jafnvirði 710 milljarða
króna.
97 ára fjölskyldu-
saga á enda runnin
- Orkla ASA hefur
keypt allt hlutafé
í Nóa-Síríusi hf.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sælgæti Finnur Geirsson hefur
stýrt Nóa-Síríusi í 31 ár.