Morgunblaðið - 06.05.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.05.2021, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 LANDSBANKINN. IS Komum hlutunum á hreyfingu Við bjóðum hagstæðar leiðir til að fjármagna ný og notuð atvinnutæki og bíla sem henta rekstrinum þínum. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á rlegri fjáröflun mennt- unarsjóðs Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur var hleypt af stokkunum í gær við athöfn á Bessastöðum. Eliza Reid forsetafrú, sem er vel- unnari sjóðsins, tók þá við Mæðra- blóminu. Líkt og undanfarin ár er blómið góða í formi leyniskilaboða- kertis. Tryggja öruggari framtíð Allur ágóði af sölu rennur óskertur til menntunarsjóðsins sem styrkir tekjulágar konur til náms í því augnamiði að auka möguleika þeirra á að finna störf sem geta tryggt þeim og fjöl- skyldum þeirra öruggari framtíð. Á síðasta ári veitti sjóðurinn 73 konum styrk til náms en frá upp- hafi stofnunar hans árið 2012 hefur sjóðurinn veitt rúmlega 300 styrki. Þær Eliza Reid og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hafa verið sérstakir vel- unnarar sjóðsins undanfarin ár. Þær hafa tekið dyggan þátt í að vekja athygli á sjóðnum og hlut- verki hans. Líkt og áður bætist nýr velunnari í hópinn í ár, en það er að þessu sinni Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heims- meistari í crossfit. Lýsir upp daginn Velunnarar sjóðsins velja hver sín skilaboð í kertin tileinkuð kon- um og mæðrum og hefur Katrín Tanja valið: Þú ert ljós í mínu lífi, þú lýsir upp daginn. Uppspretta textans er ljóð sem amma Katrínar Tönju samdi og gaf henni rétt fyr- ir andlát sitt 2016. Ljóðið segir Katrín Tanja að hafi verið sér leið- arljós og áminning um þann ein- staka eiginleika ömmu sinnar að lýsa upp tilveruna og að „… geta látið öllum líða eins og þeir séu mikilvægir“, segir Katrín Tanja. Sjálf kveðst hún vera heppin hve margar konur hafi verið sér ljós í gegnum lífið. Kertin eru í postulínsskálum og þegar kveikt er á þeim og vaxið bráðnar koma smátt og smátt í ljós skilaboð á botni skálarinnar. Þórunn Árnadóttir er hönnuður kertisins og gefur hún vinnu sína nú fjórða árið í röð. Alls geta kaupendur valið um fimm mismun- andi texta. Kertin eru kjörin tæki- færisgjöf, sérstaklega á mæðra- daginn, og bjóða upp á óvenjulega og skemmtilega upplifun. „Mæðrablómið er magnað. Salan hefur jafnan verið góð og ágóðinn hjálpar okkur að koma góðu til leiðar,“ segir Guðríður Sigurðardóttir, sem verið hefur formaður menntunarsjóðs Mæðra- styrksnefndar frá 2013. Á þeim tíma nutu 13 konur stuðnings sjóðsins til menntunar, en nú í vet- ur voru þær 73 talsins. Gangurinn er þá sá að fyrir konur sem eru undir settum tekjuviðmiðum eru greidd námsgjöld, upp að 100 þús- und krónum, auk aðstoðar við kaup á námsgögnum. Menntun er besta leiðin til valdeflingar „Menntun skapar fólki tæki- færi til framtíðar og er besta leiðin til valdeflingar. Þessi stuðningur sem við bjóðum hefur oft leitt af sér kraftaverk. Eitt er fjárhags- legur stuðningur, en svo er þetta líka mikil hvatning svo fólk fer að trúa á eigin getu og hæfileika,“ segir Guðríður. Einnig stendur konunum til boða aðstoð við gerð ferilskrár og leiðsögn út á vinnu- markaðinn. Slíkt hefur gefið góða raun og greitt leiðina. Kertin verða til sölu í versl- unum Pennans Eymundssonar á höfuðborgarsvæðinu og á Akur- eyri, í Epal í Skeifunni og Kringl- unni, Snúrunni, Ís-blómi, Netto.is og hjá Heimkaup.is, í tvær vikur, frá 1. til 15. maí næstkomandi. Hægt er að styrkja sjóðinn með frjálsum framlögum í banka: 515- 14-407333, kennitala: 660612-1140. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Mæðrastyrksnefndar, www.maedur.is, eða á facebook- síðu menntunarsjóðsins. Mæðrablómið kemur góðu til leiðar Stuðningur! Mæðra- blómið er leyniskilaboða- kerti. Ungar konur studd- ar til mennta og mögu- leika. Hvatning og hæfi- leikar. Sala er hafin. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mennt Frá afhendingu fyrsta Mæðrablómsins á Bessastöðum í gærmorgun. Frá vinstri: Eliza Reid forsetafrú, Oddfríður Steinunn Helgadóttir og Hannah Lára Davíðsdóttir, móðir og systir Katrínar Tönju crossfitkonu, og lengst til hægri er Guðrún Inga Ingólfsdóttir hagfræðingur, sem situr í stjórn menntunarsjóðsins. Mæðrablómið Falleg skilaboð og gott málefni sem margir styrkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.