Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
SKODA SUPERB S/D – RN. 330240
Nýskráður 10/2012, ekinn 95 þ.km., dísel, grár,
beinskiptur, hiti í sætum, nálægðarskynjarar,
hraðastillir, bluetooth, GPS, USB tengi.
Verð 1.790.000 kr.
TOYOTA RAV4 HYBRID VX – RN. 331302
Nýskráður 1/2020, ekinn 14 þ.km. bensín/rafmagn,
svartur, sjálfskipting, bakkmyndavél, blindsvæðis-
vörn, hiti í framrúðu, hiti í stýri, bluetooth, GPS.
Verð 7.490.000 kr.
VW GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331250. Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, hraðastillir,
360° nálgunarvarar, akreinavari, bluetooth, HDMI.
Verð 4.890.000 kr.
MERCEDES-BENZ C300 DE AMG PLUG IN HYBRID
RN. 153592. Nýskráður 11/2019, ekinn 27 þ.km.,
dísel/rafmagn, svartur, sjálfskipting, 9 gíra, GPS,
bluetooth, bakkmyndavél, litað gler, túrbína.
Verð 7.490.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!
Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Brýn þörf er á að bæta búnað
slökkviliða til að takast á við gróð-
urelda. Að sama skapi þyrfti að efla
fræðslu og endurmenntun slökkvi-
liðsmanna svo þeir séu sem best
undir það búnir að takast á við
stóra gróðurelda. Þetta er mat
Bjarna K. Þorsteinssonar, slökkvi-
liðsstjóra í Borgarbyggð, í kjölfar
mikils gróðurelds sem kom upp í
Heiðmörk á þriðjudag. Talið er að
eldurinn hafi farið yfir 56 hektara
svæði.
„Það hefur engin þróun orðið frá
árinu 2006 í kjölfar eldanna á Mýr-
um, hvorki í tækjabúnaði né í
fræðslu. Það hefur verið lítill áhugi
hjá hinu opinbera á að skoða þessi
mál,“ segir hann.
Greint var frá því í fréttum að við
slökkvistarf í Heiðmörk flaug þyrla
Landhelgisgæslunnar 17 ferðir og
sótti vatn úr nærliggjandi vötnum
til að dreifa yfir eldinn. Allt þar til
búnaður þyrlunnar bilaði. Er þar
um að ræða svokallaða slökkvifötu.
„Þessi búnaður er orðinn 15 ára
gamall og tímabært að endurnýja
hann. Þá þyrfti að skoða þessi mál í
aðeins víðara samhengi og eiga alla
vega tvær slökkvifötur ef önnur bil-
ar eins og þarna gerðist,“ segir
Bjarni.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna Árnessýslu, tekur und-
ir þetta og segir að slökkviliðs-
stjórar hafi lengi reynt að vekja at-
hygli á þessari stöðu mála. „Ef það
væru til fleiri fötur væri hægt að
kalla til fleiri aðila með þyrlur þeg-
ar mikið liggur við. Það vantar hins
vegar að einhver opinber aðili haldi
utan um búnað sem þarf til slíkra
starfa. Það er ekkert eitt sveitar-
félag sem getur átt nokkra svona
poka og haldið úti þyrlu.“
Róttækra aðgerða þörf
Þeir segja báðir að mikil hætta
sé á gróðureldum næstu daga enda
sjái ekki fyrir endann á miklum
þurrkum. Mikilvægt sé að fólk fari
varlega. „Annars er þetta orðið
þannig í dag, alla vega hér á Vest-
urlandi og reyndar víðar, að veður-
far hefur breyst og skepnubeit er
lítil. Fyrir vikið er meiri sina og þar
með meiri hætta á eldum. Ég tel að
tímabært sé að taka gróðurelda inn
í lög um almannavarnir,“ segir
Bjarni og vísar til hættu í þröngum
sumarhúsahverfum á borð við
Skorradal, Bláskógabyggð, Húsafell
og víðar. „Það verður að gera eitt-
hvað róttækt. Hið opinbera hvetur
til skógræktar en það þarf líka að
huga að umferðarleiðum fyrir
slökkvilið og leiðum fyrir fólk til að
komast í burtu ef eldur kemur upp,
auk vatnsöflunar.“
V
ífilsstaðahlíð
U
rriðavatnshraun
Selgjá Hjallar
Smyrlabúðarhraun
Búrfell
Búrfellsgjá
Kolhóll
Hnífhóll Lö
ng
ub
re
kk
ur
Heykriki
Tungur
Vatnsendaborg
Garðaflatir
REYKJAVÍK
KÓPAVOGUR
GARÐABÆR
HAFNARFJÖRÐUR
H E I Ð M Ö
R
K
STÆKKAÐ SVÆÐI
500 m
Áætlað umfang
brunasvæðisins
H
EIÐ
M
ER
K
U
R
V
EG
U
R
STR
ÍPSV
EGUR
Loftmynd: map.is
Engin þróun á fimmtán árum
- Slökkviliðsmenn þurfa betri búnað til að berjast við gróðurelda - Slökkvifata bilaði við slökkvistarf í
Heiðmörk - Slökkviliðsstjóri vill breyta lögum um almannavarnir og telur að róttækra aðgerða sé þörf
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gróðureldur Hér sést hversu umfangsmikil eyðing var af völdum gróðureldsins í Heiðmörk í fyrradag. Á grodureldar.is má finna ýmsan fróðleik.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Slökkvistarf Þyrla fyllir á slökkvi-
fötuna við slökkvistarf í Heiðmörk.