Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 18
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ríflega 500 fleiri íslenskir ríkis-
borgarar fluttu til landsins í fyrra en
fluttu þá frá landinu. Það er mesti
fjöldi aðfluttra íslenskra ríkisborgara
umfram brottflutta á þessari öld.
Sama þróun var á fyrsta fjórðungi í
ár en þá fluttu 180 fleiri íslenskir
ríkisborgarar til landsins en frá því.
Kórónuveirufaraldurinn einkennir
þetta tímabil en tölurnar benda til að
margir íslenskir ríkisborgarar hafi
ákveðið að flytja heim. Hvort sú bú-
seta verði varanleg á svo eftir að
koma í ljós þegar faraldrinum lýkur
og flugsamgöngur og búferlaflutn-
ingar komast sem víðast í fyrra horf.
Hvað snertir erlenda ríkisborgara
fluttu ríflega 1.700 fleiri þeirra til
landsins í fyrra en frá því. Hefur sú
tala ekki verið svo lág síðan 2013 en
ætla verður að miklar hömlur á flugi
og frost í ferðaþjónustu, sem hefur
reitt sig mikið á erlent vinnuafl, hafi
haft mikið um þetta að segja.
Ekki margir flutt frá landinu
Á hinn bóginn virðist faraldurinn
ekki hafa leitt til mikils brottflutnings
erlendra ríkisborgara, líkt og raunin
varð með efnahagshruninu haustið
2008. Árin 2009-2011 fluttu fleiri er-
lendir ríkisborgarar frá landinu en til
þess. Var það mikill viðsnúningur frá
þensluárunum fyrir hrunið þegar er-
lent vinnuafl streymdi til landsins,
ekki síst til starfa í byggingariðnaði.
Vegna þessara strauma í búferla-
flutningum heldur samsetning þjóð-
arinnar áfram að breytast.
Frá aldamótum hafa rúmlega 51
þúsund fleiri erlendir ríkisborgarar
flutt til landsins en frá því og þar af
tæplega 33 þúsund frá 2012.
Með sama áframhaldi mun hlutfall
fólks af erlendum uppruna því aukast
ár frá ári. Hversu hratt gæti meðal
annars ráðist af mannaflsþörf í ís-
lenskri ferðaþjónustu næstu ár.
Í fyrsta sinn á öldinni
Annað sem athygli vekur er að það
hefur nú gerst í fyrsta sinn á öldinni
að fleiri íslenskir ríkisborgarar eru að
flytja til landsins en frá því tvö ár í
röð. Þ.e.a.s. frá ársbyrjun 2020 og til
loka fyrsta fjórðungs í ár.
Með þeirri þróun hefur flutnings-
jöfnuðurinn á öldinni lítillega breyst
og hafa nú ríflega 11.100 fleiri íslensk-
ir ríkisborgarar flutt frá landinu en til
þess frá ársbyrjun 2000.
Sú tala var öllu hærri í ársbyrjun
2020 en hefur síðan lækkað með
auknum aðflutningi íslenskra
ríkisborgara til landsins.
Búferlaflutningar á öldinni hafa ýtt
undir hraða íbúafjölgun á tímabili
mikilla sviptinga í efnahagsmálum.
Netbólan sprakk 2001, þá bankabólan
2008 og svo hófst samdráttur í ferða-
þjónustu árið 2018 með því að WOW
air fór að lækka flugið. Síðan lamaði
faraldurinn flugsamgöngur um heim
allan.
Reynslan á öldinni bendir til að góð
staða efnahagsmála leiði til aukins að-
flutnings erlendra ríkisborgara en að
kreppur hafi minni áhrif í hina áttina.
Árið 2000 bjuggu ríflega 279 þús-
und manns á landinu og í ársbyrjun
2008 ríflega 315 þúsund en eins og
grafið hér fyrir ofan sýnir jókst svo
aðflutningur til landsins.
Í ársbyrjun 2015 bjuggu hér ríflega
329 þúsund manns en ríflega 364 þús-
und manns í byrjun árs 2020 og fjölg-
aði íbúum þá um 35 þúsund.
Íbúafjölgunin hélt áfram í fyrra og
í byrjun þessa árs bjuggu um 369
þúsund manns á landinu, eða 90 þús-
und fleiri en árið 2000.
Íslenskir ríkisborgarar flytja heim
- Margir fluttu heim í faraldrinum
- Aðflutningur leiðir til íbúafjölgunar
Búferlaflutningarmilli landa eftir ríkisfangi 2000-2021*
Aðfluttir umfram brottflutta
Íslenskir Erlendir
2000 62 1.652
2001 -472 1.440
2002 -1.020 745
2003 -613 480
2004 -438 968
2005 118 3.742
2006 -280 5.535
2007 -167 5.299
2008 -477 1.621
2009 -2.466 -2.369
2010 -1.703 -431
2011 -1.311 -93
2012 -936 617
2013 -36 1.634
2014 -760 1.873
2015 -1.265 2.716
2016 -146 4.215
2017 352 7.888
2018 -65 6.621
2019 -175 5.136
2020 506 1.734
2021* 180 350
+7
+6
+5
+4
+3
+2
+1
0
-1
-2
-3
-4
Þúsundir
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21
Samtals Íslenskir Erlendir
2000-2021 -11.112 51.373
2005-2008 -806 16.197
2009-2011 -5.480 -2.893
2012-2021 -2.345 32.784
2015-2021 -613 28.660
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
*Til og með 31.mars 2021 (fyrstu þrjá mánuði ársins)
Fyrstu 3 mán.
ársins 2021
Heimild: Hagstofa Íslands
Morgunblaðið/Eggert
Í Leifsstöð Skilyrði til búferlaflutninga voru erfið í faraldrinum í fyrra.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki,
Snúrur, Minniskort,
USB lyklar og fleira
Körfur
frá 25.000 kr.
Startpakkar
frá 5.500 kr.
og margt fleira
Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is
Allt fyrir frisbígolf
Töskur
frá 3.990 kr.
Diskar
frá 2.500 kr.
Fjarlægðarmælir
24.990 kr. Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
SNJALLTÆKJA
VIÐGERÐIR
Við gerum við alla síma,
spjaldtölvur, tölvur
og dróna