Morgunblaðið - 06.05.2021, Page 18

Morgunblaðið - 06.05.2021, Page 18
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ríflega 500 fleiri íslenskir ríkis- borgarar fluttu til landsins í fyrra en fluttu þá frá landinu. Það er mesti fjöldi aðfluttra íslenskra ríkisborgara umfram brottflutta á þessari öld. Sama þróun var á fyrsta fjórðungi í ár en þá fluttu 180 fleiri íslenskir ríkisborgarar til landsins en frá því. Kórónuveirufaraldurinn einkennir þetta tímabil en tölurnar benda til að margir íslenskir ríkisborgarar hafi ákveðið að flytja heim. Hvort sú bú- seta verði varanleg á svo eftir að koma í ljós þegar faraldrinum lýkur og flugsamgöngur og búferlaflutn- ingar komast sem víðast í fyrra horf. Hvað snertir erlenda ríkisborgara fluttu ríflega 1.700 fleiri þeirra til landsins í fyrra en frá því. Hefur sú tala ekki verið svo lág síðan 2013 en ætla verður að miklar hömlur á flugi og frost í ferðaþjónustu, sem hefur reitt sig mikið á erlent vinnuafl, hafi haft mikið um þetta að segja. Ekki margir flutt frá landinu Á hinn bóginn virðist faraldurinn ekki hafa leitt til mikils brottflutnings erlendra ríkisborgara, líkt og raunin varð með efnahagshruninu haustið 2008. Árin 2009-2011 fluttu fleiri er- lendir ríkisborgarar frá landinu en til þess. Var það mikill viðsnúningur frá þensluárunum fyrir hrunið þegar er- lent vinnuafl streymdi til landsins, ekki síst til starfa í byggingariðnaði. Vegna þessara strauma í búferla- flutningum heldur samsetning þjóð- arinnar áfram að breytast. Frá aldamótum hafa rúmlega 51 þúsund fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því og þar af tæplega 33 þúsund frá 2012. Með sama áframhaldi mun hlutfall fólks af erlendum uppruna því aukast ár frá ári. Hversu hratt gæti meðal annars ráðist af mannaflsþörf í ís- lenskri ferðaþjónustu næstu ár. Í fyrsta sinn á öldinni Annað sem athygli vekur er að það hefur nú gerst í fyrsta sinn á öldinni að fleiri íslenskir ríkisborgarar eru að flytja til landsins en frá því tvö ár í röð. Þ.e.a.s. frá ársbyrjun 2020 og til loka fyrsta fjórðungs í ár. Með þeirri þróun hefur flutnings- jöfnuðurinn á öldinni lítillega breyst og hafa nú ríflega 11.100 fleiri íslensk- ir ríkisborgarar flutt frá landinu en til þess frá ársbyrjun 2000. Sú tala var öllu hærri í ársbyrjun 2020 en hefur síðan lækkað með auknum aðflutningi íslenskra ríkisborgara til landsins. Búferlaflutningar á öldinni hafa ýtt undir hraða íbúafjölgun á tímabili mikilla sviptinga í efnahagsmálum. Netbólan sprakk 2001, þá bankabólan 2008 og svo hófst samdráttur í ferða- þjónustu árið 2018 með því að WOW air fór að lækka flugið. Síðan lamaði faraldurinn flugsamgöngur um heim allan. Reynslan á öldinni bendir til að góð staða efnahagsmála leiði til aukins að- flutnings erlendra ríkisborgara en að kreppur hafi minni áhrif í hina áttina. Árið 2000 bjuggu ríflega 279 þús- und manns á landinu og í ársbyrjun 2008 ríflega 315 þúsund en eins og grafið hér fyrir ofan sýnir jókst svo aðflutningur til landsins. Í ársbyrjun 2015 bjuggu hér ríflega 329 þúsund manns en ríflega 364 þús- und manns í byrjun árs 2020 og fjölg- aði íbúum þá um 35 þúsund. Íbúafjölgunin hélt áfram í fyrra og í byrjun þessa árs bjuggu um 369 þúsund manns á landinu, eða 90 þús- und fleiri en árið 2000. Íslenskir ríkisborgarar flytja heim - Margir fluttu heim í faraldrinum - Aðflutningur leiðir til íbúafjölgunar Búferlaflutningarmilli landa eftir ríkisfangi 2000-2021* Aðfluttir umfram brottflutta Íslenskir Erlendir 2000 62 1.652 2001 -472 1.440 2002 -1.020 745 2003 -613 480 2004 -438 968 2005 118 3.742 2006 -280 5.535 2007 -167 5.299 2008 -477 1.621 2009 -2.466 -2.369 2010 -1.703 -431 2011 -1.311 -93 2012 -936 617 2013 -36 1.634 2014 -760 1.873 2015 -1.265 2.716 2016 -146 4.215 2017 352 7.888 2018 -65 6.621 2019 -175 5.136 2020 506 1.734 2021* 180 350 +7 +6 +5 +4 +3 +2 +1 0 -1 -2 -3 -4 Þúsundir '00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 Samtals Íslenskir Erlendir 2000-2021 -11.112 51.373 2005-2008 -806 16.197 2009-2011 -5.480 -2.893 2012-2021 -2.345 32.784 2015-2021 -613 28.660 Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar *Til og með 31.mars 2021 (fyrstu þrjá mánuði ársins) Fyrstu 3 mán. ársins 2021 Heimild: Hagstofa Íslands Morgunblaðið/Eggert Í Leifsstöð Skilyrði til búferlaflutninga voru erfið í faraldrinum í fyrra. 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira Körfur frá 25.000 kr. Startpakkar frá 5.500 kr. og margt fleira Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is Allt fyrir frisbígolf Töskur frá 3.990 kr. Diskar frá 2.500 kr. Fjarlægðarmælir 24.990 kr. Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a SNJALLTÆKJA VIÐGERÐIR Við gerum við alla síma, spjaldtölvur, tölvur og dróna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.