Morgunblaðið - 06.05.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Magnús Bragason sem stýrir Hótel
Vestmannaeyjum með Öddu konu
sinni er Eyjamaður eins og þeir ger-
ast bestir. Foreldrarnir Eyjamenn í
húð og hár, fædd og uppalin í Vest-
mannaeyjum. Pabbinn úteyjakarl
með stórum staf og hefur verið hluti af
íþróttasögu Vestmannaeyja fram á
þennan dag. Aðeins 77 ára og rær af
fullum krafti á trillunni Þrasa. Magn-
ús hefur eins og pabbinn verið mjög
virkur í íþróttastarfi, átti þátt í að
gera ÍBV að því stórveldi sem félagið
er í handboltanum. Nú eru það úti-
hlaup sem eiga hug hans allan og hann
á hugmyndina að Vestmannaeyja-
hlaupinu og The Puffin Run í Eyjum
sem verður nú um helgina.
Magnús er fæddur 1965 og hefur
lent í ýmsu eins og sagt er. Man eftir
gosinu 1973 þegar allt varð svart. Var
í hópi um 900 barna frá Eyjum sem
Rauði krossinn bauð til Noregs þar
sem allt var grænt. Þá aðeins sjö ára
gamall. En sæll og glaður með ferðina
í góðra vina hópi sem lenti hjá góðu
fólki. Fór fyrst í Hellisey með pabba
sínum átta ára og byrjaði að síga í
björg ellefu ára. Sama ár byrjaði hann
að vinna og hefur ekki stoppað síðan.
Alltaf með fleiri en eitt járn í eldinum.
Konan er Adda Jóhanna Sigurðar-
dóttir og saman eiga þau Braga, Daða
og Friðrik og barnabörnin eru tvö.
Í móðunni miðri kviknaði
hlaupabakterían
„Ég ólst upp við íþróttir og pabbi
var harður Þórari. Var í öllum íþrótt-
um sem krakki, góður í marki í hand-
bolta en spilaði aldrei með meistara-
flokki. Fyrirmyndin var Sigmar
Þröstur Óskarsson, einn öflugasti
markmaður sem Ísland hefur átt. Leit
upp til hans. Rosalega duglegur og
fer alla leið í því sem hann gerir,“ seg-
ir Magnús um þetta goð æsku sinnar.
„Leiðir okkar lágu svo saman þeg-
ar ég var að byrja með hlaupin. Upp-
hafið var að Adda og Guðmunda
Bjarnadóttir byrjuðu að hlaupa 2005.
Ég var þá ekkert að hreyfa mig, byrj-
aður að fitna,“ segir Magnús sem
fylgdi þeim á Reykjavíkurmaraþonið
sama ár. „Ætlaði að fylgjast með en
endaði á að skrá mig í tíu kílómetra
hlaupið,“ segir Magnús sem kom í
mark hálfmeðvitundarlaus en í móð-
unni miðri kviknaði hlaupabakterían.
Hreifst hann af stemningunni og
fjörinu í kringum hlaupið og hvað um-
gjörðin var flott. Byrjaði að hlaupa,
fór hálft og heilt maraþon í Reykjavík
með Öddu og hálft maraþon tvisvar í
Svíþjóð. „Við tókum þátt í Gauta-
borgarhlaupinu sem er stærsta hálf-
maraþonkeppni í heimi, keppendur
54 þúsund. Umgjörðin enn þá flottari,
tónleikar og fleiri viðburðir. Er ein
allsherjarmenningarveisla.“
Þarna segir Magnús að hugmyndin
að hlaupum í Vestmannaeyjum hafi
kviknað. Hvattur af góðu fólki með
mikla reynslu af hlaupum startaði
hann Vestmannaeyjahlaupinu 2011.
Hlaup sem allir geta tekið þátt í og
voru þátttakendur 250. „Það hefur
verið haldið árlega síðan fyrstu
helgina í september. Kári Steinn
Karlsson og Aldís kona hans hafa
tekið þátt í öllum hlaupunum og
strákarnir þeirra, Arnaldur og Ey-
steinn, bæði í maganum á mömmu
sinni og kerrum. Þau hafa stutt okkur
mikið.“
Erfitt hlaup en skemmtilegt
Meðganga The Puffin Run var
lengri og aftur var það gott fólk sem
hélt honum við efnið. Nefnir Magnús
hlauparana Arnar Pétursson, Guð-
mund Kristinsson og Evu Skaarpas.
Fyrsta hlaupið var vorið 2018. Lá
mikil vinna að baki þar sem margir
komu að verki með Magnúsi.
Fékk hann nokkra vini sína í braut-
arvörslu og raðaði ljósmyndurum á
leiðina til að skrásetja hlaupið. „Við
fengum 80 þátttakendur, 40 Eyja-
menn og 40 öfluga hlaupara ofan af
landi. Meðal annars Guðna Pál,
landsliðsmann í utanvegahlaupum,
sem kom fyrstur í mark. Við fengum
álit þeirra á hlaupinu, hvað mætti
laga og gera betur.“
Stórkostleg en erfið hlaupaleið
Með þetta í farteskinu var lagt upp
í hlaupið 2019 þar sem 150 mættu.
„Við bjuggum okkur vel undir árið
2020 og höfðum markaðssett hlaupið
erlendis sem skilaði sér. Þá kom kóf-
ið og við urðum að endurgreiða öllum
útlendingunum sem ætluðu að koma.
Héldum að ekkert yrði af hlaupinu en
svo rofaði til og með stuttum fyrir-
vara skráðu sig hundruð manna og á
endanum hlupu 330 manns. Fólkið
þráði að gera eitthvað í miðju Covid-
ástandinu.“Allt unnið í sátt við sótt-
varnir og ekkert alvarlegt kom upp á.
„Spænsk ferðaskrifstofa fylgdist með
hlaupinu og ætlaði að koma með tugi
hlaupara í ár en ekkert verður af því
út af ástandinu. Því miður.“
Þegar rætt var við Magnús í síð-
ustu viku stefndi í að The Puffin Run
verði 8. maí og eru 1.000 manns
skráðir. Allt eftir settum sóttvarna-
reglum. „Átta eru ræstir í einu með
ákveðnu millibili og tekur rúman
hálftíma að ræsa hópinn. Þeir fljót-
ustu fara fyrst þannig að það teygist
strax á hópnum. Ekkert samkvæmi á
eftir og fólki ýtt af svæðinu um leið
og komið er í mark.“
Hlaupið hefst á Skansinum þar
sem sagan er við hvert fótmál. Farið
er rangsælis, eftir Strandveginum,
upp með Spröngunni sem margir
þekkja, með Hamarinum, í sandinum
í Klaufinni sem er erfitt og upp Stór-
höfða sem tekur í. Farinn hringur um
Höfðann sem er gífurlega falleg leið,
útsýni suður á Eyjarnar, út Kinn,
með fram Sæfellinu, út fyrir austur-
enda flugbrautarinnar, út á Hauga
og síðustu fimm kílómetrana ferðu
um gossvæði sem er svo vinsælt núna.
Hlaupum hring inni í gígnum, niður í
Gjábakkafjöru og lokum hringnum á
Skansinum. “
Konan sagði strax já
Þegar Magnús tók við rekstri Hjól-
barðastofunnar af pabba sínum,
Braga Steingríms, fylgdi með mesti
og harðasti kjaftaklúbbur bæjarins.
Fjölbreyttur hópur sem í eru Guðs-
menn, menn glöggir á lagakróka, lag-
anna verðir, sjómenn, iðnaðarmenn
og fleiri stéttir en konur sjást ekki.
„Ég sakna þeirra stundum,“ segir
Magnús sem í dag á og rekur Hótel
Vestmannaeyjar með konu sinni.
Hvernig datt ykkur í hug að fara að
reka hótel?
„Þetta er alveg sönn saga,“ segir
Magnús og horfir í augu blaðmanns.
„Árið 2011, sennilega í september og
við búin að ganga í gegnum erfiðleik-
ana sem fyrirtækjaeigendur og þjóðin
öll gekk í gegnum eftir hrunið 2008.
Lán þrefölduðust og reksturinn ekki
að gefa mér mikið. Var á leiðinni heim
eftir að hafa borgað Viktori rakara
fyrir klippingu. Geng Vestmanna-
brautina fram hjá Hótel Þórshamri
og lít upp. Þá allt í einu stendur eig-
andinn, Gísli Valur Einarsson, fyrir
framan mig og segir: Viltu ekki bara
kaupa hótelið? Þetta er dagsatt,“ seg-
ir Magnús og leggur þunga í orð sín.
Magnús spurði Gísla Val af hverju
ég? „Hann sýndi mér hótelið og yfir
kaffibolla kveikir hann neistann. Þeg-
ar ég kem heim í Helli, spyr ég Öddu:
„Eigum við að kaupa hótelið, selja
Hjólbarðastofuna og þú hættir að
kenna? Og svarið var óvænt: „Ég er
til,“ segir Magnús sem tók við lykl-
unum og var mættur til vinnu á Hótel
Vestmannaeyjum fyrsta janúar 2012.
Herbergin 21 en áður en árið var liðið
var byrjað á viðbyggingu upp á fjórar
hæðir og skuldirnar komnar í hálfan
milljarð. Á móti kemur að vel tókst til
og herbergin orðin 43 og rúm fyrir
100 manns.
Samstaða borgar sig
Reksturinn hefur gengið upp og
ofan, hærri álögur, óhagstætt gengi
og vandræði í Landeyjahöfn gerði
þeim erfitt fyrir. Um leið voru þau að
læra. Kófið 2020 sló þau rækilega ut-
an undir. Náðu þó tveimur góðum
mánuðum, júní og júlí í fyrra. „Við í
ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum
snerum bökum saman og hjálp-
uðumst í gegnum þetta með mjög
myndarlegri aðkomu bæjarins. Náð-
um að gera Vestmannaeyjar heitan
stað fyrir Íslendinga en svo kom önn-
ur bylgjan áður en ágúst gekk í garð.
Það var áfall.“
Magnús er þó bjartsýnn á framtíð-
ina, nýr Herjólfur reynist vel, Land-
eyjahöfn virkar og sumarið vel bókað.
Magnús glímir við heilsubrest. Hann
greindist með parkinson 2014. Þrátt
fyrir að hafa fengið þennan óboðna
gest í líf sitt ætlar Magnús sér að ráða
för. Hleypur, passar upp á mataræðið
og trúir að í framtíðinni komi lækna-
vísindin honum til aðstoðar.
Hlauparar Kári Steinn og Aldís, Eva Skarpaas og Þórir með
börnum. Þau hafa jafnan mætt í hlaupin í Vestmannaeyjum.
Æskuvinir Magnús og bernskuvinurinn Óskar Ólafsson. Þeir
f́óru saman sjö ára til Noregs eftir Vestmannaeyjagosið 1973.
Eftir hlaup Magnús og Adda, Guðmunda Bjarnadóttir og
Bjarni Geir Viðarsson sonur hennar eftir hlaup í Gautaborg.
Alltaf með mörg járn í eldinum
- Magnús Bragason hótelstjóri í Vestmannaeyjum er með ólæknandi dellu fyrir hlaupum - Stendur
fyrir The Puffin Run í Eyjum um helgina og á von á þúsund hlaupurum sem hlaupa m.a. í eldgíg
Á gamlársdag Fjölskyldan eftir Gamlárshlaup til styrktar Krabbameinsfélaginu sem er árlegur viðburður í Vest-
mannaeyjum. Frá vinstri eru Magnús, Daði, Bragi, Friðrik og Adda og í kerrunni er Margrét Perla Bragadóttir.
Hringhella 4, atvinnuhúsnæði
lögg. fasteignasali
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði
Opið virka daga kl 9-17
Sími 520 2900
Netfang: as@as.is
Heimasíða: www.as.is
ÁS - í hjarta Hafnarfjarðar í yfir 30 ár
Gott 710,8 fm atvinnuhúsnæði á
sérlega góðri afgirtri og malbikaðri
lóð að hluta. Gott útipláss og hægt
að auka byggingarmagnið á lóðinni.
12.992,4 fm iðnaðarlóð á góðum stað í Hafnarfirði
Tvö 136,4 og tvö 165 fm verkstæði
- Lofthæð frá 5,4 - 7,2 m
- Hæð á innkeyrlsuhurð er 4,5 m
- Hægt að keyra í gegnum bilið
- Starfsmanna/skrifstofuhúsnæði 108 fm