Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 30
Golþorskur Valgeir virðist hafa verið nokkuð
ánægður með risann sem hann náði 1993.
Ljósmynd/Sindri Swan
Flikki Þorskurinn sem áhöfnin á Sólrúnu EA náði hefur verið umtalaður. Hann er líklega með
stærstu þorskum sem veiðst hafa á síðastliðinni öld en hugsanlega ekki sá stærsti í sögu Íslands.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Ein eilífðardeila þeirra sem veiða fisk, hvort
sem það er í vatni eða sjó, er hver hafi veitt
stærsta fiskinn. Fjöldi frásagna um stóra
þorska hefur borist 200 mílum á mbl.is í kjöl-
far þess að fjallað var um risaþorsk sem
áhöfnin á Sólrúnu EA-151 veiddi við Kol-
beinsey í síðustu viku. Vó þorskurinn við
löndun á Árskógssandi í Eyjafirði hvorki
meira né minna en 51 kíló.
Umfjöllunin vakti mikla athygli og veltu
margir því fyrir sér hvort um hafi verið að
ræða stærsta þorsk Íslandssögunnar. Leitað
var til lesenda og auglýst eftir upplýsingum
um þorska af svipaðri stærð eða jafnvel
stærri. Óhætt er að segja að sögur fóru að
berast ört.
Togaðist næstum útbyrðis
Davíð Páll Bredesen segir frá því í tölvu-
pósti að hann hafi náð stórum þorski á hand-
færi á Víkurálnum árið 1993 er hann var há-
seti um borð í Kristínu Finnbogadóttur
BA-95, sem Ólafur Magnússon gerði út. „Ég
veiddi þorsk sem viktaði 25 kíló eftir flatn-
ingu og mældist 1,45 metrar. Við vorum á
saltfiskeríi og flöttum alla fisk um borð. Þeg-
ar þorskur er flattur er nýtingin um 45-48%
sem þýðir að hann er 52-55 kíló,“ fullyrðir
hann.
Aðspurður segir hann ekki lítið verk að
hafa komið flikkinu um borð. „Einar Ásgeirs-
son varð vitni að því þegar ég togaði sjálfan
mig næstum útbyrðis. Einar náði að grípa í
mig þegar hann sér lappir mínar lyftast af
dekkinu. Mér er mjög minnisstætt hversu
mikið hann hló að mér fyrir það að gefa mig
ekki í viðureigninni við þorskinn. Þetta hafð-
ist þegar við hjálpuðumst að við að ná honum
inn fyrir.“
Valgeir Gunnarsson, stýrimaður á Helga-
felli, rifjar upp tíma sína um borð í Hrímbaki
EA-306 á árunum 1990 til 1995. „Mig minnir
að það hafi verið árið 1993 sem við fengum
einn risaþorsk. […] Það var tekin mynd af
okkur saman af Gylfa Kristjánssyni blaða-
manni og birtist í DV.“
Fram kemur í umfjöllun DV þann 24. apríl
1993 að það hafi ekki munað mjög miklu á
lengdinni á Valgeiri og þorskinum. Þar segir
að þorskurinn hafi veiðst á Eldeyjarbanka og
mælst 157 sentimetra langur, ummálið var
112 sentimetrar og sennilega hefur hann veg-
ið um 50 kíló.
Gellan nægði í matinn á Hoffelli
„Ég á einn uppstoppaðan,“ segir Helgi
Már Reynisson í tölvupósti. Hann segir þann
myndarlega þorsk hafa verið veiddan af Frá
VE-78 á Víkinni, sunnan við Vík í Mýrdal.
Helgi Már kveðst hafa keypt fiskinn blaut-
verkaðan og flattan. „Þá var hann 25,6 kíló.
Nýting á blautverkuðum saltfiski er 48%
þannig að óslægður hefur hann verið 53,3
kíló. Ég þurrkaði fiskinn og sprautaði og hef
hann uppi á vegg hjá mér.“ Hann telur
þorskinn veiddan einhvern tímann á árunum
1992 til 1997.
Þá hefur verið bent á að Hoffell SU hafi í
maí 1991 veitt þorsk í kantinum við Beru-
fjarðarál sem var 167 sentimetrar á lengd. Vó
þorskurinn 45 til 46 kíló slægður og var talið
að hann hefði verið um 55 kíló óslægður.
„Þetta var feit hrygna og gellan úr henni var
svo stór að hún nægði í matinn handa annarri
vaktinni á Hoffellinu,“ var haft eftir Eiríki
Ólafssyni, útgerðarstjóra Hraðfrystihúss Fá-
skrúðsfjarðar, í Morgunblaðinu 15. maí 1991.
Stærsti þorskurinn sem bent hefur verið á
er 68 kílóa þorskur sem veiddist árið 1985 af
áhöfninni á Hafborgu SK-50. Skipstjóri í
ferðinni var Uni Pétursson. Frekari upplýs-
ingar um það afrek hafa ekki fundist og er
með þessu óskað eftir því að lesandi sem
kann að vita meira um málið hafi samband.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerrusmíða
2012
2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Lagt var í töluverða vinnu við að afla upplýsinga um hver stærsti þorskur Íslandssögunnar hafi
verið, til að ganga úr skugga um hvort þorskurinn hafi verið sá stærsti. Leitað var til sérfræðinga
sem sögðu erfitt að skjalfesta með afgerandi hætti hvort um stærsta fisk hafi verið að ræða.
Samkvæmt fiskabók Gunnars Jónssonar var lengsti þorskur sem veiðst hefur við Íslands-
strendur 181 sentimetri á lengd og veiddist hann á línu í Miðnessjó í apríl 1941. Ekki er vitað um
þyngdina en líffræðingar hafa gefið sér allt frá 45 til 60 kíló.
Þyngsti þorskur sem veiðst hefur á heimsvísu samkvæmt skráðum heimildum vó 73 kíló og
var tveir metrar að lengd, en hann veiddist við Nýfundnaland. Jón Már Halldórsson líffræðingur
segir hins vegar á Vísindavefnum að „þegar haft er í huga hversu lengi menn hafa stundað
þorskveiðar þá er mjög líklegt að einhvern tíma hafi veiðst enn stærri þorskur“.
Þyngsti á heimsvísu 73 kíló
ERFITT AÐ FÁ ENDANLEGA STAÐFEST MET
Margar frásagnir um risaþorska bárust
- Erfitt að ganga úr skugga um hvaða fiskur er stærsti þorskur sem veiðst hefur við Íslandsstrendur
- Margir segjast hafa vitnisburð um þorska yfir 50 kíló - Ábending barst um 68 kílóa þorsk
Afurðaverð á markaði
4. maí 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 255,48
Þorskur, slægður 326,77
Ýsa, óslægð 270,76
Ýsa, slægð 262,13
Ufsi, óslægður 72,77
Ufsi, slægður 110,05
Gullkarfi 224,58
Langa, óslægð 142,95
Langa, slægð 71,98
Keila, óslægð 38,18
Keila, slægð 56,69
Steinbítur, óslægður 55,35
Steinbítur, slægður 108,14
Skötuselur, slægður 200,07
Grálúða, slægð 12,00
Skarkoli, óslægður 145,06
Skarkoli, slægður 267,10
Þykkvalúra, slægð 597,87
Langlúra, óslægð 58,00
Sandkoli, óslægður 143,60
Sandkoli, slægður 155,00
Bleikja, flök 1.432,20
Grásleppa, óslægð 42,58
Hlýri, óslægður 21,00
Hlýri, slægður 147,72
Lúða, slægð 588,34
Lýr, óslægður 10,00
Lýsa, óslægð 27,77
Lýsa, slægð 72,00
Rauðmagi, óslægður 7,63
Skata, slægð 47,01
Stórkjafta, slægð 17,81
Undirmálsýsa, óslægð 110,00
Undirmálsýsa, slægð 176,00
Undirmálsþorskur, óslægður 143,43
Undirmálsþorskur, slægður 160,16