Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 30

Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 30
Golþorskur Valgeir virðist hafa verið nokkuð ánægður með risann sem hann náði 1993. Ljósmynd/Sindri Swan Flikki Þorskurinn sem áhöfnin á Sólrúnu EA náði hefur verið umtalaður. Hann er líklega með stærstu þorskum sem veiðst hafa á síðastliðinni öld en hugsanlega ekki sá stærsti í sögu Íslands. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Ein eilífðardeila þeirra sem veiða fisk, hvort sem það er í vatni eða sjó, er hver hafi veitt stærsta fiskinn. Fjöldi frásagna um stóra þorska hefur borist 200 mílum á mbl.is í kjöl- far þess að fjallað var um risaþorsk sem áhöfnin á Sólrúnu EA-151 veiddi við Kol- beinsey í síðustu viku. Vó þorskurinn við löndun á Árskógssandi í Eyjafirði hvorki meira né minna en 51 kíló. Umfjöllunin vakti mikla athygli og veltu margir því fyrir sér hvort um hafi verið að ræða stærsta þorsk Íslandssögunnar. Leitað var til lesenda og auglýst eftir upplýsingum um þorska af svipaðri stærð eða jafnvel stærri. Óhætt er að segja að sögur fóru að berast ört. Togaðist næstum útbyrðis Davíð Páll Bredesen segir frá því í tölvu- pósti að hann hafi náð stórum þorski á hand- færi á Víkurálnum árið 1993 er hann var há- seti um borð í Kristínu Finnbogadóttur BA-95, sem Ólafur Magnússon gerði út. „Ég veiddi þorsk sem viktaði 25 kíló eftir flatn- ingu og mældist 1,45 metrar. Við vorum á saltfiskeríi og flöttum alla fisk um borð. Þeg- ar þorskur er flattur er nýtingin um 45-48% sem þýðir að hann er 52-55 kíló,“ fullyrðir hann. Aðspurður segir hann ekki lítið verk að hafa komið flikkinu um borð. „Einar Ásgeirs- son varð vitni að því þegar ég togaði sjálfan mig næstum útbyrðis. Einar náði að grípa í mig þegar hann sér lappir mínar lyftast af dekkinu. Mér er mjög minnisstætt hversu mikið hann hló að mér fyrir það að gefa mig ekki í viðureigninni við þorskinn. Þetta hafð- ist þegar við hjálpuðumst að við að ná honum inn fyrir.“ Valgeir Gunnarsson, stýrimaður á Helga- felli, rifjar upp tíma sína um borð í Hrímbaki EA-306 á árunum 1990 til 1995. „Mig minnir að það hafi verið árið 1993 sem við fengum einn risaþorsk. […] Það var tekin mynd af okkur saman af Gylfa Kristjánssyni blaða- manni og birtist í DV.“ Fram kemur í umfjöllun DV þann 24. apríl 1993 að það hafi ekki munað mjög miklu á lengdinni á Valgeiri og þorskinum. Þar segir að þorskurinn hafi veiðst á Eldeyjarbanka og mælst 157 sentimetra langur, ummálið var 112 sentimetrar og sennilega hefur hann veg- ið um 50 kíló. Gellan nægði í matinn á Hoffelli „Ég á einn uppstoppaðan,“ segir Helgi Már Reynisson í tölvupósti. Hann segir þann myndarlega þorsk hafa verið veiddan af Frá VE-78 á Víkinni, sunnan við Vík í Mýrdal. Helgi Már kveðst hafa keypt fiskinn blaut- verkaðan og flattan. „Þá var hann 25,6 kíló. Nýting á blautverkuðum saltfiski er 48% þannig að óslægður hefur hann verið 53,3 kíló. Ég þurrkaði fiskinn og sprautaði og hef hann uppi á vegg hjá mér.“ Hann telur þorskinn veiddan einhvern tímann á árunum 1992 til 1997. Þá hefur verið bent á að Hoffell SU hafi í maí 1991 veitt þorsk í kantinum við Beru- fjarðarál sem var 167 sentimetrar á lengd. Vó þorskurinn 45 til 46 kíló slægður og var talið að hann hefði verið um 55 kíló óslægður. „Þetta var feit hrygna og gellan úr henni var svo stór að hún nægði í matinn handa annarri vaktinni á Hoffellinu,“ var haft eftir Eiríki Ólafssyni, útgerðarstjóra Hraðfrystihúss Fá- skrúðsfjarðar, í Morgunblaðinu 15. maí 1991. Stærsti þorskurinn sem bent hefur verið á er 68 kílóa þorskur sem veiddist árið 1985 af áhöfninni á Hafborgu SK-50. Skipstjóri í ferðinni var Uni Pétursson. Frekari upplýs- ingar um það afrek hafa ekki fundist og er með þessu óskað eftir því að lesandi sem kann að vita meira um málið hafi samband. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is Allt til kerrusmíða 2012 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Lagt var í töluverða vinnu við að afla upplýsinga um hver stærsti þorskur Íslandssögunnar hafi verið, til að ganga úr skugga um hvort þorskurinn hafi verið sá stærsti. Leitað var til sérfræðinga sem sögðu erfitt að skjalfesta með afgerandi hætti hvort um stærsta fisk hafi verið að ræða. Samkvæmt fiskabók Gunnars Jónssonar var lengsti þorskur sem veiðst hefur við Íslands- strendur 181 sentimetri á lengd og veiddist hann á línu í Miðnessjó í apríl 1941. Ekki er vitað um þyngdina en líffræðingar hafa gefið sér allt frá 45 til 60 kíló. Þyngsti þorskur sem veiðst hefur á heimsvísu samkvæmt skráðum heimildum vó 73 kíló og var tveir metrar að lengd, en hann veiddist við Nýfundnaland. Jón Már Halldórsson líffræðingur segir hins vegar á Vísindavefnum að „þegar haft er í huga hversu lengi menn hafa stundað þorskveiðar þá er mjög líklegt að einhvern tíma hafi veiðst enn stærri þorskur“. Þyngsti á heimsvísu 73 kíló ERFITT AÐ FÁ ENDANLEGA STAÐFEST MET Margar frásagnir um risaþorska bárust - Erfitt að ganga úr skugga um hvaða fiskur er stærsti þorskur sem veiðst hefur við Íslandsstrendur - Margir segjast hafa vitnisburð um þorska yfir 50 kíló - Ábending barst um 68 kílóa þorsk Afurðaverð á markaði 4. maí 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 255,48 Þorskur, slægður 326,77 Ýsa, óslægð 270,76 Ýsa, slægð 262,13 Ufsi, óslægður 72,77 Ufsi, slægður 110,05 Gullkarfi 224,58 Langa, óslægð 142,95 Langa, slægð 71,98 Keila, óslægð 38,18 Keila, slægð 56,69 Steinbítur, óslægður 55,35 Steinbítur, slægður 108,14 Skötuselur, slægður 200,07 Grálúða, slægð 12,00 Skarkoli, óslægður 145,06 Skarkoli, slægður 267,10 Þykkvalúra, slægð 597,87 Langlúra, óslægð 58,00 Sandkoli, óslægður 143,60 Sandkoli, slægður 155,00 Bleikja, flök 1.432,20 Grásleppa, óslægð 42,58 Hlýri, óslægður 21,00 Hlýri, slægður 147,72 Lúða, slægð 588,34 Lýr, óslægður 10,00 Lýsa, óslægð 27,77 Lýsa, slægð 72,00 Rauðmagi, óslægður 7,63 Skata, slægð 47,01 Stórkjafta, slægð 17,81 Undirmálsýsa, óslægð 110,00 Undirmálsýsa, slægð 176,00 Undirmálsþorskur, óslægður 143,43 Undirmálsþorskur, slægður 160,16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.