Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 36
151 293 119 83 48 35 28 15 15 Frá júní 2020 til 10. apríl 2021 Skipting eftir landshlutum, m.kr. Suðurland Norðurl. eystra Vesturland Suðurnes Austurland Norðurl. vestra Vestfirðir Fyrirtæki á landsvísu Höfuð- borgarsv. Veitingar Gisting Samgöngur Afþreying 37% 26% 12% 25% Alls 787 m.kr. Notkun ferðagjafar stjórnvalda Heimild: Stjórnarráðið Þann 10. apríl sl. höfðu 139 þúsund nýtt sér ferða-gjöfina fyrir alls um 787 milljónirkróna SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is N ýja ferðagjöfin sem stjórnvöld ætla að færa landsmönnum 18 ára og eldri í sumar verður væntanlega lögfest innan tíðar en frumvarp ferðamálaráðherra um endurnýjun á ferðagjöf stjórnvalda hefur verið lagt fram á Alþingi. Líkt og í fyrra verður fjárhæðin 5.000 kr. fyrir hvern einstakling og er lagt til að hægt verði að nýta nýju ferðagjöf- ina á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst næstkomandi. Ferðagjafirnar sem gefnar voru út á seinasta ári falla niður við endurnýjun Ferðagjaf- ar 2021 en enn er hægt að nota ónýtt- ar ferðagjafir sem gefnar voru út í fyrra allt til 31. maí næstkomandi þegar allar ónýttar ferðagjafir falla niður. Ferðagjafirnar eru liður í að styðja við bakið á ferðaþjónustunni í far- aldrinum og hvetja landsmenn til að ferðast innanlands. Margir hafa not- fært sér gjafirnar allt fá því í fyrra- sumar, en sá hópur er engu að síður nokkru stærri sem hefur ýmist ekki nálgast ferðagjöfina sína eða ekki notað hana enn sem komið er, jafnvel þótt þeir hafi sótt hana á island.is. 60 þúsund með gjöfina ónotaða Í greinargerð frumvarpsins má sjá tölur um notkunina frá því í júní á seinasta ári. Alls fengu þá um 280 þúsund einstaklingar ferðagjöfina út- gefna. Frá gildistöku gjafarinnar í júní í fyrra og til 10. apríl sl. hafa alls um 199 þúsund manns sótt gjöfina eða um 71%. Af þeim hafa svo um 139 þúsund einstaklingar þegar nýtt sér gjöfina eða tæpur helmingur (49,6%) allra þeirra sem áttu rétt á gjöfinni. Ríflega 80 þúsund manns hafa því ekki haft tök á eða ekki haft fyrir því að sækja sér ferðagjöfina. Af þeim sem það hafa gert eru um 60 þúsund einstaklingar enn með ferðagjöfina ónotaða í smáforriti í símanum sín- um. 700 milljónir ónotaðar Alls voru 1,5 milljarðar settir í ferðagjöfina þegar hún var lögfest í fyrrasumar. 10. apríl sl. voru lands- menn búnir að taka út um 787 millj- ónir kr. af ferðagjöfunum og eru því enn um 700 milljónir lausar til ráð- stöfunar allt til næstu mánaðamóta, þar sem færri hafa nýtt sér hana en upphaflega var gert ráð fyrir. Viðbú- ið er að umræðan þessa dagana í kringum endurnýjun ferðagjaf- arinnar muni ýta við einhverjum að nýta gjöfina áður en hún rennur út fyrir lok maí en í frumvarpinu er áætlað að um 30–50 milljónir kr. verði nýttar það sem eftir er af gild- istíma gjafarinnar. Því gætu 650 milljónir verið lausar til ráðstöfunar þegar gildistími ferðagjafarinnar rennur út þann 31. maí og færast þá yfir á næsta tímabil til að standa undir notkun nýju ferðagjafarinnar í sumar. Er í frumvarpinu lagt upp með að veita 750 milljónir til viðbótar vegna nýju ferðagjafarinnar þannig að samanlagður kostnaður við end- urnýjunar hennar nemi um 1,4 millj- örðum kr., þ.e.a.s. ef gjafirnar verða nýttar til fulls í sumar. Þó er á það bent að telja megi hverfandi líkur á því að endurnýjuð ferðagjöf verði nýtt til fulls á þriggja mánaða gild- istíma hennar. Frá upphafi hafa 812 fyrirtæki í ferðaþjónustu um allt land skráð sig til þátttöku og tekið á móti ferðagjöf- inni. Sjá má af upplýsingum sem fjár- mála- og efnahagsráðuneytið upp- færir reglulega að um 37% ferðagjafa hafa verið notaðar til að greiða fyrir veitingar, 25% hafa farið í afþreyingu af ýmsu tagi, 26% í gist- ingu og 12% í samgöngur. Rúmur helmingur ekki nýtt ferðagjöfina 36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fréttir fráBret-landi bera með sér að tilveran er smám saman að færast í betra horf. Þar ræður mestu að aðgerðir Breta við bólusetningar heppnuðust miklu betur þar en á meginlandi Evr- ópu þar sem hvert klúðrið tók við af öðru. Ekkert gaf Brexit flottari ein- kunn en þetta þótt marg- ar aðrar væru góðar. Valdamenn á svæðinu, sem sátu uppi með Svarta-Pétur, brugðust við með því að hrökkva í baklás eða fádæma fýlu nema að hvort tveggja væri. Þeir tóku að urra út úr sér hótunum eða þá að gefa frá sér yfirlýsingar sem áður en langur tími leið hjá höfðu stangast illa hver á annarrar horn. Forseti Frakklands hóf hatursherferð gegn bólu- efninu AstraZeneca sem Bretar og Svíar fram- leiddu og voru talsmenn smáríkja í ESB (og óbil- andi áhangendur þeirra!) fljótir að hlýða kalli. Þetta bóluefni mætti alls ekki gefa fólki í Evrópu ef það væri orðið 65 ára eða eldra. Ekki voru liðnar nema þrjár vikur eða svo, þá bárust yfirlýsingar í óðagoti um að eingöngu mætti gefa þetta bóluefni fólki sem VÆRI ORÐIÐ 65 ára eða eldra! Því næst, fáum vikum síðar, var tilkynnt að kvenfólki mætti alls ekki gefa efnið nema þær væru 49 ára eða eldri. Öll vísindin sem brúkuð voru í upphlaupin voru óþægilega vanbúin og vandræðaleg. Því er þó ekki að neita að opinberlega hefur ver- ið um það rætt að traust- leiki allra þessara bólu- efna gæti ekki fengið lokavottorð um áreið- anleika fyrr en á árinu 2023. En heimurinn, og er þá átt við ráðandi öfl hans, hefur komið sér saman um að þar sem neyðar- ástand ríki sem verði óbærilegra með hverri viku sem líður, þá væri óhjákvæmilegt að samþykkja að kostir og gallar bóluefna væru orðnir nægilega þekkt- ir til að verjandi væri að ráðleggja fólki, og reynd- ar knýja það til, ef ekki vill betur, að þiggja bólu- efnin nú þegar. Ýmsir eru þó að vonum þeirrar skoð- unar að réttlætanlegt væri að þvinga ekki börn eða yngra fólk, sem fram- tíð mannkyns veltur á, til að bólusetjast hafi for- eldrar og það sjálft efa- semdir um réttmæti þess. Í því sambandi má horfa til þess að smithætta fari hratt minnkandi þegar aðrir hópar væru vel bólusettir. Sá hópur hafi einnig sýnt að hann kemst nær alfarið vel frá því, þótt hann smitist, sem sé fremur sjaldgæft og heil- brigðiskerfi landanna komin í góða stöðu til að veita þeim sem þó veikt- ust meira en algengast er, ríkulega hjálp sem ætti að duga. Seinustu fréttir frá Bretlandi sýna að nú er svo komið að mun fleiri látast úr flensu eða lungnabólgu en vegna kórónuveirunnar. Þetta eru grípandi merki um að þar eru slík mál að kom- ast í hefðbundinn farveg. Hitt er annað mál, að hér og víðar um allan heim er það talinn sjálf- sagður hlutur að til vest- urheims berist flensa hvert einasta haust frá Kína sem felli fjölda manns, og þá auðvitað helst þá sem hafa minnst- an viðnámsþrótt. Hvað er svona sjálfsagt við það? Er ekki kominn tími til að krefjast skýringa á þessum árvissu veirum þótt þær séu ekki krýnd- ar? Farfuglarnir eru góðir gestir og við tökum þeim fagnandi. En það er ekki sjálfsagður hlutur að flensa fari að hugsa til okkar og annarra í þess- um heimshluta um sama leyti og íslensku fuglarnir eru nýfarnir til vetursetu. Getum við ekki orðið sam- mála um það? Er sjálfsagt að árviss flensa berist til vesturheims frá Kína?} Nú vakna spurningar F rá síðustu áramótum hafa okkur ítrekað borist fréttir af klúðri heil- brigðisyfirvalda við flutning skim- unar á leghálskrabbameini frá Krabbameinsfélaginu til heilsu- gæslustöðva, Landspítala og danskrar rann- sóknarstofu í Hvidovre. Starfsfólk allra þessara staða er vel hæft til sinna starfa en það breytir því ekki að ákvarðanataka heilbrigðisyfirvalda um flutning sýnanna úr landi og framkvæmdin í kjölfarið virðist vera svo illa unnin og ómarkviss að eftir standa þúsundir kvenna í óvissu um heilsufar sitt. Þessar konur hafa bent á vandann en ekki náð að opna augu heilbrigðisyfirvalda. Fjöldi heilbrigðisstarfsmanna hefur einnig látið í sér heyra undanfarna mánuði en ekkert er held- ur á þá hlustað heldur haldið áfram með ferlið eins og ekkert sé. Á Alþingi hefur þetta dæmalausa ástand verið rætt margsinnis, hvort tveggja í þingsal sem og í velferðarnefnd Alþingis. Þá hefur Alþingi, að frumkvæði allra þingmanna stjórnarandstöðu, samþykkt skýrslubeiðni til heilbrigðisyf- irvalda um það hvernig staðið var að undirbúningi og fram- kvæmd þessarar ákvörðunar. Eftir því sem málið er rætt frekar hér á Alþingi kemur æ betur í ljós hversu illa ígrunduð sú ákvörðun var að flytja öll leghálssýni úr landi. Svör virðast berast seint og illa frá hinni dönsku rannsóknarstofu til Íslands. Einnig hefur komið fram að færa þarf sýnin yfir á danskar kennitölur áð- ur en þau eru send úr landi og þegar svörin berast til baka þarf að færa sýnin til baka yfir á íslenskar kennitölur viðkomandi kvenna. Þannig þarf að tvíbreyta grunnupplýsingum á þessum krabba- meinssýnum og eykur það eitt og sér mjög á flækjustig og hættu á mistökum á að rangar upplýsingar berist umræddum konum. Loks hefur verið á það bent að þegar niðurstöður rannsókna kvenna, sem leitað hafa til kven- sjúkdómalækna utan heilsugæslu, berast til baka til Íslands þá sé oft ansi djúpt á svörum til þeirra kvenna og ekki síður þeirra lækna sem þær þjónusta. Þeir læknar, sem vegna sjúkra- sögu kvennanna þurfa að fá frekari upplýsingar um einstaka sýni, geta ekki eins og áður átt samtal við rannsóknaraðila, því lítil tenging er við rannsóknarstofuna ytra. Það getur skipt máli, að sögn sérfræðinga, hvort umrædd kona hafi einhverja sögu um frumubreytingar þegar teknar eru ákvarðanir um meðferð eða ekki. Þetta samtal hefur nú, vegna ákvarðana heilbrigðisyfirvalda, verið rofið og heilsuöryggi kvenna minnkar. Eftir að hafa heyrt álit fjölda sérfræðinga í málaflokkn- um held ég að ráð sé að færa þessar rannsóknir aftur til Ís- lands. Hér er þekking og tækjabúnaður til að annast þetta og þeim mun meiri tími sem líður í þeirri óvissu sem nú ríkir þeim mun meiri hætta er á að óafturkræft tjón eigi sér stað. Enginn vill bera ábyrgð á slíku. helguvolu@gmail.com Helga Vala Helgadóttir Pistill Heilsuöryggi kvenna Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Landsmenn hafa notað ferða- gjöfina hjá ferðaþjónustu- fyrirtækjum víðsvegar um land- ið. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að 293 milljónir kr. hafa verið nýttar hjá ferða- þjónustufyrirtækjum á höfuð- borgarsvæðinu. 119 milljónir hafa verið nýttar hjá fyrir- tækjum á Suðurlandi. 83 millj- ónir hafa verið nýttar á Norður- landi eystra, 48 milljónir á Vesturlandi, 35 milljónir á Suð- urnesjum, 28 milljónir á Austur- landi, 15 milljónir á Norðurlandi vestra og 15 milljónir á Vest- fjörðum. Þá hefur 151 milljón verið notuð hjá fyrirtækjum sem starfa á landsvísu. Nýta á ferð um landið SVÆÐISBUNDIN SKIPTING Á ferð Með ferðagjöfinni er fólk hvatt til að ferðast um landið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.